<html>
<head>
<meta http-equiv="content-type" content="text/html; charset=ISO-8859-1">
</head>
<body text="#000000" bgcolor="#FFFFFF">
Hæ.<br>
<br>
Nú hefur umræðan á þessum lista verið nokkuð einátta og er kominn
tími á að bæta úr því. Hvernig líst ykkur á að hittast fyrir jól og
taka upp samræður og mögulega vinna smá í OSM? Er einhver hér með
aðgang að aðstöðu gegnum vinnu eða félagsskap þar sem við gætum hist
og komist í þráðlaust net?<br>
<br>
Á fundi hjá LÍSU-samtökunum seinasta þriðjudag var rætt um opin
landupplýsingagögn og komst ég þá að því að margar stofnanir eru að
reyna að losna við gjaldtökumúrinn þar sem gögnin sem liggja hjá
þeim nýtast nokkuð fáum. Þó er baráttan ekki alveg unnin þar sem
þessar stofnanir eru að verða af sértekjum sem þær hefðu annars
fengið með sölu gagnanna og því geta þær ekki opnað fyrir öll gögnin
sí svona. Enginn fyrirlesari og enginn úr sal mælti gegn því að
opinber gögn yrðu gjaldfrjáls og var andinn greinilega sá að opinber
gögn ættu að vera gjaldfrjáls svo almenningur geti notað þau.<br>
<br>
Þjóðskrá er að reyna að fá í gegn gjaldskrá þar sem þeim er heimilt
að bjóða endurgjaldslaust niðurhal á hluta fasteignaskrár, þar á
meðal hnitum. Þá munum við líklega hafa heiti, auðkennisnúmer og
hnit fyrir hverja einustu fasteign á landinu. Gefið auðvitað að
ráðuneytið samþykki verðskrána.<br>
<br>
Landmælingar Íslands eru einnig að vinna í því að gera gögnin sín
gjaldfrjáls en á vef þeirra eru nú þegar niðurhalanleg gögn.<br>
<br>
Þá ræddi ég við nokkra frá Vegagerðinni og þeir voru nokkuð opnir á
að leyfa okkur að fá sín gögn. Þeir nefndu að þeir ættu stórt safn
og nefndi ég að við værum opin fyrir öllu sem nýtist í kortagerð.
Það væri lítið sem þeir gætu komið með og enginn hefði áhuga á. Þeir
höfðu áður látið af hendi gögn til Ívars hjá gpsmap.is en samkvæmt
lýsingunni fyrir útgáfu 2012.5 (
<meta http-equiv="content-type" content="text/html;
charset=ISO-8859-1">
<a
href="http://gpsmap.is/gps/index.php?option=com_content&view=article&id=121:utgafa-5-2012&catid=45:frettir&Itemid=93">http://gpsmap.is/gps/index.php?option=com_content&view=article&id=121:utgafa-5-2012&catid=45:frettir&Itemid=93</a>)
fékk hann 6 þúsund vegi sem hann hafði ekki áður ásamt brúm og
jarðgöngum úr gagnasafni Vegagerðarinnar. Miðað við framangreint
samtal held ég að þeir hjá Vegagerðinni eigi miklu meira af gögnum
og nefndu þeir meðal annars 60 eða 70 þúsund nóður með
umferðarmerkjum. Gögnin sem við munum fá þaðan munu kalla á mörg
stór import í grunn OSM og mikla vinnu við að koma þeim inn.<br>
<br>
Með kveðju,<br>
Svavar Kjarrval<br>
</body>
</html>