<html>
<head>
<meta content="text/html; charset=ISO-8859-1"
http-equiv="Content-Type">
</head>
<body text="#000000" bgcolor="#FFFFFF">
Jóhannes hér.<br>
<br>
Ég er búinn að panta Kórinn í Bókasafni Kópavogs (sem er ekki Kórinn
í Kórahverfi Kópavogs). Þetta er fundarsalur á fyrstu hæð í
Hamraborg, strætó stoppar beint fyrir utan (á 2. hæð...) , það er
gott aðgengi fyrir fatlaða, lyfta við hlið efri inngangs og
fundarherbergis. <br>
<br>
Upplýsingar um salinn: <a
href="http://bokasafnkopavogs.is/is/page/korinn">http://bokasafnkopavogs.is/is/page/korinn</a><br>
Kort: <a
href="http://www.openstreetmap.org/?mlat=64.11163&mlon=-21.90930#map=17/64.11163/-21.90930">http://www.openstreetmap.org/?mlat=64.11163&mlon=-21.90930#map=17/64.11163/-21.90930</a><br>
<br>
<br>
Salurinn er pantaður fimmtudaginn 24. október 2013, klukkan 17 til
19. Jólaleikrit hafði af okkur laugardaginn. <br>
<br>
Open Access vikan er 21. til 27. október þannig að tímasetningin
rímar skemmtilega við það.<br>
<br>
Ég sló fram nafninu "Almenna kortafélagið" og finnst það
skemmtilegri nálgun að því að gögnin séu í almannaeign heldur en
"Opna kortafélagið" eða "Frjálsa kortafélagið", opin og frjáls gögn
er ekki alveg að festa sig í sessi í mínum munni. Bíð spenntur eftir
öðrum hugmyndum að nafni félagsins.<br>
<br>
Varðandi tilgang félagsins þá er ég sjálfur veikur fyrir því að
einskorða okkur ekki bara við Ísland, reynsla okkar og þekking getur
vonandi nýst öðrum fjarlægari stöðum, hér hugsa ég persónulega til
dæmis til Færeyja og Botswana.<br>
<br>
Áhersla á OSM finnst mér að megi vera til staðar í starfinu en
almennt ætti félagið að bera opna kortagerð í hjarta sínu, ef að OSM
dettur niður sjálfdautt þá væri það ekki ástæða til þess að leggja
félagið niður enda hægt að nálgast öll tól sjálfur til að koma
svipuðu á laggirnar, þó ekki nema fyrir Ísland.<br>
<br>
Að auki hýsir OSM ekki hæðarupplýsingar til dæmis og hefur engan
áhuga á því. Þau kort með hæðarlínum sem byggja á OSM fá
hæðarlínurnar annar staðar frá.<br>
<br>
--Jói<br>
<br>
<br>
<br>
<div class="moz-cite-prefix">Þann 8.10.2013 18:21, skrifaði Svavar
Kjarrval:<br>
</div>
<blockquote cite="mid:52544D2D.20304@kjarrval.is" type="cite">
<pre wrap="">Hæ.
Nú erum við Jóhannes að undirbúa stofnfundinn sem á að vera síðar í
þessum mánuði. Það eru pælingar hvort félagið ætti að einbeita sér að
OpenStreetMap þar sem önnur opin kortagerð ætti að vera afleiðing/í
hjáverkum, eða ætti aðaltilgangur þess að vera opin kortagerð á Íslandi,
hvort sem það er OSM eða ekki?
Auglýsi ég eftir skoðun ykkar á því og einnig tillögur að því hvað
félagið ætti að heita.
Með kveðju,
Svavar Kjarrval
</pre>
<br>
<fieldset class="mimeAttachmentHeader"></fieldset>
<br>
<pre wrap="">_______________________________________________
Talk-is mailing list
<a class="moz-txt-link-abbreviated" href="mailto:Talk-is@openstreetmap.org">Talk-is@openstreetmap.org</a>
<a class="moz-txt-link-freetext" href="https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is">https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is</a>
</pre>
</blockquote>
<br>
</body>
</html>