<html>
<head>
<meta http-equiv="content-type" content="text/html; charset=windows-1252">
</head>
<body text="#000000" bgcolor="#FFFFFF">
Þessi póstur átti að fara á listann en ég sá hann aldrei<br>
<div class="moz-forward-container"><br>
Tillaga frá Kára Gunnarssyni<br>
<br>
<br>
---------- Forwarded message ----------<br>
From: <b>Kári Gunnarsson</b> <br>
Date: Friday, 11 October 2013<br>
Subject: Tillaga um endurvakningu Landfræðifélagsins fyrir opna og
frjálsa útgáfu kortaganga.<br>
<br>
<br>
Tillaga um endurvakningu Landfræðifélagsins fyrir opna og frjálsa<br>
útgáfu kortaganga.<br>
<br>
Landfræðifélagið „the Geographical Society of Iceland (GSI)“ var<br>
stofnað árið 1979 og starfaði til ársins 1991 en þá tók við
verkefnum<br>
þess Félag landfræðinga „The Association of Icelandic Geographers<br>
(AIG)“, stofnað 1988.<br>
<br>
Meginmunur var á stefnum þessara tveggja félaga, þar sem annað var<br>
opið öllum almenningi á meðan hitt var aðeins opið þeim sem höfðu<br>
lokið menntun sem landfræðingar. Í dag er sá veruleiki að það eru<br>
margar námsbrautir sem mennta fólk til landfræðilegrar hugsunar
með<br>
áherslu á eitt eða fleiri viðfangsefni, þar get ég nefnt sem dæmi<br>
skipulagsfræði, umhverfisfræði, náttúrufræði og ferðamálafræði. Þó
svo<br>
að þessi fjölbreytni sé góð í sjálfusér þá tel ég að best væri að<br>
skipta þessum tveim félögum upp að nýju.<br>
<br>
Sprottinn er upp hópur þar sem ég er meðlimur sem safnar frjálsum<br>
landfræðigögnum fyrir verkefnið <a moz-do-not-send="true"
href="http://openstreetmap.org" target="_blank">openstreetmap.org</a>
(OSM) þessi hópur á<br>
það sameiginlegt með hugsjón gamla landfræðifélagsins að það er
opið<br>
öllum almenningi. Nú er sú stund hjá þessum hóp að hann vill gera
um<br>
sig félag og taka jafnvel upp fleiri landfræðileg verkefni þar sem<br>
gögnum væri safnað og þau gefin frjáls og opin. Þegar ég áttaði
mig á<br>
þeim metnaði sem liggur í hópnum um fjölbreytt verkefnatök í
umræðu<br>
um nafngift nýs félags þá var mér hugsað til gamla
Landfræðifélagsins<br>
og þeirra verkefna sem félag landfræðinga hefur haft óhreyfð til<br>
nokkura ára, til dæmis landfræðiorðasafnið, en ég hef verið með<br>
formlega umsjá um það frá aðalfundi AIG 2005.<br>
<br>
Ég vil því gera það að tillögu minni hjá OSM hópnum að hýsa OSM<br>
verkefnið hjá Landfræðifélaginu (GSI), bjóða OSM hópnum að taka
við<br>
stjórn þess félags og halda formlegan aðalfund GSI. Sem
stjórnarmaður<br>
AIG þá tel ég að þessi útfærsla gagnist okkur öllum hvað best.<br>
<br>
Mér ætti vænt um að heyra frá ykkur um þessa tillögu mína, bréf
þetta<br>
er sent út bæði á póstlista AIG og OSM. Eldri félagar AIG gætu<br>
upplýst mig um atriði sem hafa farið framhjá mér við skoðun mína
og<br>
félagar OSM gætu haft einhverjar efasemdir sem gott væri að hafa í<br>
huga við útfærsluna á þessari tillögu. Ef þetta gengur ekki upp,
þá er<br>
svo sem lítið mál að stofna nýtt félag um OSM verkefnið og önnur<br>
verkefni sem við viljum sinna innan þess ramma, en mér finnst
þetta<br>
reynandi þar sem Landfræðifélagið á sér góða sögu og góðan tilgang
sem<br>
byggja má á.<br>
<br>
Fréttir af stofngerð almenna Landfræðifélagsins (GSI) má lesa hér:<br>
(<a moz-do-not-send="true"
href="http://landfraedi.is/PDF/Landp%C3%B3star/1979/tbl1vol01.pdf"
target="_blank">http://landfraedi.is/PDF/Landp%C3%B3star/1979/tbl1vol01.pdf</a>)<br>
<br>
Skráning Landfræðifélagsins (GSI) í fyrirtækjaskrá , sjá hér:<br>
(<a moz-do-not-send="true"
href="http://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit/kennitala/5005790139"
target="_blank">http://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit/kennitala/5005790139</a>)<br>
<br>
Skráning Félag landfræðinga (AIG) í fyrirtækjaskrá, sjá hér:<br>
(<a moz-do-not-send="true"
href="http://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit/kennitala/6501881289"
target="_blank">http://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit/kennitala/6501881289</a>)<br>
<br>
Með bestu kveðjum<br>
<br>
Kári Gunnarsson landfræðingur<br>
<br>
<br>
--<br>
Kári Gunnarsson<br>
<a moz-do-not-send="true" href="javascript:;" onclick="_e(event,
'cvml', 'kari.gunnarsson@simnet.is')">kari.gunnarsson@simnet.is</a><br>
gsm: +354 8645189<br>
<br>
<br>
<br>
-- <br>
Kári Gunnarsson<br>
<a moz-do-not-send="true" href="mailto:kari.gunnarsson@simnet.is"
target="_blank">kari.gunnarsson@simnet.is</a><br>
gsm: +354 8645189<br>
<br>
<br>
</div>
<br>
</body>
</html>