<html>
<head>
<meta content="text/html; charset=ISO-8859-1"
http-equiv="Content-Type">
</head>
<body text="#000000" bgcolor="#FFFFFF">
Búið að stofna rás varðandi íslenska hluta OSM á
irc://irc.oftc.net:6667<br>
<br>
<a href="http://www.oftc.net/">http://www.oftc.net/</a><br>
<br>
Rásin er #osm-is í samræmi við aðrar #osm rásir þar. Hægt er að
tengjast með hefðbundnum IRC-client eða með WebChat í browser: <a
href="http://webchat.oftc.net/">http://webchat.oftc.net/</a><br>
Nick: Þitt nafn<br>
Channel: #osm-is<br>
<br>
Gert er ráð fyrir því að á fundinum verði þessi rás vöktuð og þeir
sem þar eru staddir geti tekið þátt.<br>
<br>
<br>
<br>
<div class="moz-cite-prefix">Þann 15.10.2013 16:12, skrifaði Svavar
Kjarrval:<br>
</div>
<blockquote cite="mid:525D6953.6040805@kjarrval.is" type="cite">
<meta http-equiv="content-type" content="text/html;
charset=ISO-8859-1">
Hér með er formlega boðað til stofnfundar félags sem hefur þann
tilgang að vera í forsvari fyrir málstað opinna og frjálsra
landupplýsingagagna eins og þau sem OpenStreetMap heldur utan um.
Stofnfundurinn mun eiga sér stað í salnum Kórinn á 1. hæð
Bókasafns Kópavogs[1] fimmtudaginn 24. október 2013 klukkan 17-19.
Open Access vikan er 21. til 27. október og er táknræn fyrir það
sem félagið mun standa fyrir.<br>
<br>
Nafn félagsins er ekki fastslegið og er opið fyrir tillögur þar
til stofnfundur tekur ákvörðun. Þær tillögur sem hafa borist eru:<br>
Almenna kortafélagið<br>
Almenna landupplýsingafélagið<br>
Hið Almenna land[a]fræðifélag (HAL)<br>
<br>
Meðfylgjandi eru drög að samþykktum félagsins en þær gætu tekið
breytingum í meðförum stofnfundar.<br>
<br>
[1]
<meta http-equiv="content-type" content="text/html;
charset=ISO-8859-1">
<a moz-do-not-send="true"
href="http://www.openstreetmap.org/?mlat=64.11163&mlon=-21.90930#map=17/64.11163/-21.90930">http://www.openstreetmap.org/?mlat=64.11163&mlon=-21.90930#map=17/64.11163/-21.90930</a><br>
<br>
Með kveðju,<br>
Svavar Kjarrval<br>
<br>
--------------------------------------<br>
Drög að lögum félagsins:<br>
<br>
1. gr. <br>
Félagið heitir ...<br>
<br>
2. gr. <br>
Heimili félagsins og varnarþing er lögheimili formanneskju
félagsins.<br>
<br>
3. gr. <br>
Tilgangur félagsins er að vera í forsvari fyrir málstað opinna og
frjálsra landupplýsingagagna.<br>
<br>
4. gr.<br>
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með almennum kynningum á
málstaðnum ásamt samskiptum við hið opinbera og aðra aðila eftir
því sem þörf er á.<br>
<br>
5. gr. <br>
Rétt á að ganga í félagið eiga allir þeir sem eru hlynntir
markmiðum þess. Skráning í félagið skal ætíð vera í boði.<br>
<br>
6. gr. <br>
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn
gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn hafa atkvæðisrétt
á aðalfundi en allir skulu hafa málfrelsi og tillögurétt.<br>
<br>
7. gr. <br>
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. júní ár hvert og skal boða
til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum
hætti, sem meðal annars telst sem tilkynning send á netföng
félagsmanna. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Ef
aðalfundur telst ekki löglega boðaður skal boða til nýs aðalfundar
að viku liðinni. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður
úrslitum mála.<br>
<br>
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:<br>
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara<br>
2. Skýrsla stjórnar lögð fram<br>
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar<br>
4. Lagabreytingar<br>
5. Ákvörðun félagsgjalds<br>
6. Kosning stjórnar<br>
7. Önnur mál<br>
<br>
Heimilt er að leyfa félagsmönnum að taka þátt í aðalfundarstörfum
og greiða atkvæði með rafrænum hætti. Þátttaka með rafrænum hætti
telst mæting. Stjórn setur nánari reglur um framkvæmd rafrænna
kosninga.<br>
<br>
8. gr.<br>
Stjórn félagsins skal skipuð 3 félagsmönnum, formanneskju og 2
meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn.
Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni
félagsins milli aðalfunda. Formanneskja boðar til funda.
Firmaritun og prókúra er í höndum meirihluta stjórnar. <br>
<br>
9. gr.<br>
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Greiðsla þeirra
skal vera valkvæð. Félaginu er heimilt að taka við styrkjum ásamt
því að standa í sölu á vöru eða þjónustu í þeim tilgangi að
fjármagna starfsemi þess.<br>
<br>
10. gr. <br>
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í
samræmi við tilgang félagsins. Sé hann ekki allur nýttur á einu
starfstímabili skal afgangurinn flytjast yfir á það næsta.<br>
<br>
11. gr.<br>
Lagabreytingar skulu eingöngu eiga sér stað á aðalfundi. Tillögur
um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins 10 dögum
fyrir aðalfund. Þær skulu sendar félagsmönnum í tölvupósti með
minnst viku fyrirvara fyrir aðalfund. Þær skulu eingöngu teljast
samþykktar ef þær teljast löglega kynntar og hljóta 2/3 hluta
atkvæða þeirra félagsmanna sem mættir eru á löglegan aðalfund.<br>
<br>
12. gr. <br>
Ákvörðun um slit félagsins verður eingöngu tekin á aðalfundi með
einföldum meirihluta atkvæða. Skulu eignir þess að frádregnum
skuldum vera færðar til Félags um Stafrænt Frelsi á Íslandi til
varðveislu þar til annað félag er stofnað sem telst vera
sannarlegur arftaki félagsins.<br>
<br>
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins.<br>
Dagsetning: 24.10.2013.<br>
<br>
<fieldset class="mimeAttachmentHeader"></fieldset>
<br>
<pre wrap="">_______________________________________________
Talk-is mailing list
<a class="moz-txt-link-abbreviated" href="mailto:Talk-is@openstreetmap.org">Talk-is@openstreetmap.org</a>
<a class="moz-txt-link-freetext" href="https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is">https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is</a>
</pre>
</blockquote>
<br>
</body>
</html>