<html>
<head>
<meta content="text/html; charset=UTF-8" http-equiv="Content-Type">
</head>
<body bgcolor="#FFFFFF" text="#000000">
Þjóðverjar hafa verið að ræða eitthvað um skráningu á grafreitum.
Sjá
<meta http-equiv="content-type" content="text/html; charset=UTF-8">
<a href="http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Friedhofmapping">http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Friedhofmapping</a>
(á þýsku).<br>
<br>
Hef skoðað sum kortin sem eru á gardur.is og finnst eins og þau muni
ekki duga til þess að hnitsetja grafirnar, allavega ekki af þeirri
nákvæmni sem væri ásættanleg til að leiðbeina fólki í gegnum slæmt
skyggni.<br>
<br>
Dauðinn er auðvitað viðkvæmt mál og ég veit ekki hversu langt væri
hægt að ganga til þess að hnitsetja grafirnar almennilega. Til dæmis
hvort það væri hægt að komast upp með, undir umsjón
kirkjugarðsvarðar, að fara um grafirnar með myndavél og taka myndir
af legsteinunum. Upplýsingarnar á legsteinunum ásamt GPS upplýsingum
á myndunum væri hægt að nota til þess að tengja við
skráningarupplýsingarnar á gardur.is. Einnig eru til síður þar sem
hægt er að senda GPS taggaðar myndir af legsteinum og þeir eru
skráðir í leitanlegar færslur (billiongraves.com sem dæmi).<br>
<br>
Mark Gray ræddi skráningu grafreita á SOTM 2010. Hér er slideshowið:
<a class="moz-txt-link-freetext" href="http://vatavia.net/osmqc/OSM_US_ManyFacets.odp">http://vatavia.net/osmqc/OSM_US_ManyFacets.odp</a>.<br>
<br>
Upplýsingarnar um hverja einstöku gröf eru ekki birtar á kortinu á
osm.org (nema grafir frægs fólks) en það eitt og sér bannar ekki
skráningu almennra grafa. Svo virðist vera að möguleikinn sé til
staðar en ekki mikið notaður. Að mínu mati ætti fyrst að skrá
nokkrar grafir til prufu, forrita appið og síðan byrja að safna
upplýsingum í massavís þegar allir eru sannfærðir um að þetta sé
eitthvað sem fólk vill almennt sjá. Ef appið er komið ætti að vera
auðveldara að sannfæra umsjónaraðila kirkjugarða um að
upplýsingarnar verði örugglega notaðar og í þeim tilgangi sem við
lýsum. Mögulega væri hægt að sannfæra þá um að styrkja verkefnið með
fjárveitingu, sérstaklega ef þeir geta notað myndirnar og hnitin sem
við myndum safna.<br>
<br>
- Svavar Kjarrval<br>
<br>
<div class="moz-cite-prefix">On 25/10/13 14:21, Jóhannes Birgir
Jensson wrote:<br>
</div>
<blockquote cite="mid:bdb6abade5e060b935e03b7fb2c88c3e@betra.is"
type="cite">Þættinum hefur borist bréf...
<br>
<br>
Í samtali á kaffistofunni kom fram ósk um að það væri fínt að fá
app í símann sem gæti leitt mann að grafreit ættingja. Tilvalið á
Þorláksmessu þegar fólk reikar um kirkjugarðana hundruðum saman í
misgóðu skyggni.
<br>
<br>
Þetta var sagt í hálfkæringi en er engu að síður hugsanlega
eitthvað sem væri jafnvel hægt að leysa að hluta. Á gardur.is er
hægt að fletta upp í legstaðaskrá og á kirkjugardar.is eru til
ratkort þar sem búið er að reitaskipta kirkjugörðum. Ég sé ekki
fyrir mér að þessi gögn eigi heima í OpenStreetMap sjálfu nema að
litlum hluta (reitaskipting ratkorta hugsanlega) en það gæti verið
áhugavert að kynna sér leyfismálin á bakvið legstaðaskrána þar sem
137 þúsund nöfn (ekki öll með nákvæma staðsetningu) er að finna.
<br>
<br>
Ef ekki annað væri sniðugt PR að geta búið til lítið HTML-app sem
leyfir fólki að rata að réttum reit (en ekki endilega legsteini,
held þau gögn séu ekki til?) í réttum kirkjugarði, byggðum á
nafnaleit í legstaðaskránni. Í appinu gæti svo verið "Favorites"
þar sem fólk getur geymt ömmur og afa og aðra látna ættingja svo
það þurfi ekki einu sinni að leita á næstu jólum...
<br>
<br>
Hvað telur fólk hér um þetta, eitthvað sem að nýstofnað félag,
Hliðskjálf, félag um opin og frjáls upplýsingagögn, ætti að skoða
ef ekki meira, helst í samstarfi við þá aðila sem standa að
gardur.is?
<br>
<br>
<br>
kveðja,
<br>
Jóhannes
<br>
<br>
P.S. Sendur verður út annar póstur sem býður fólki að gerast
félagar í Hliðskjálf.
<br>
<br>
_______________________________________________
<br>
Talk-is mailing list
<br>
<a class="moz-txt-link-abbreviated" href="mailto:Talk-is@openstreetmap.org">Talk-is@openstreetmap.org</a>
<br>
<a class="moz-txt-link-freetext" href="https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is">https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is</a>
<br>
</blockquote>
<br>
</body>
</html>