Sæl,
Ég hef einmitt velt þessu fyrir mér. Mér tekst ekki að finna heimildina núna, en í umræðu um deilur sveitarfélaga á suðvesturhorninu var því haldið fram að ef ágreiningur er á milli hnita og kennileita á mörkum sveitarfélaga, þá skuli kennileitin alltaf gilda fram yfir hnitin. Þannig tel ég að sveitarfélagamörkin séu óhjákvæmilega háð landfræðilegum mörkum, nema annað komi fram. Það gæti verið talin besta venja í ýmsum löndum að hafa þetta tvennt óháð, en ég tel að það þurfi að taka ákvörðun um það í hverju tilfelli fyrir sig. Þess ber að geta að mörkin sem eru hjá LMÍ eru sjálf dregin, beint eða óbeint, eftir þessum sömu kennileitum.
Ég þekki ekki til þess að viðhald se mikið erfiðara þegar kennileiti eru hluti af mörkum; ef einhver veit um gott dæmi þá er ég mjög forvitinn að sjá það.
-Tómas Ingi
Sæl verið
Fékk ábendingu um að sveitarfélagamörk væru að klístrast saman við ár og fleira, sem gerir viðhald á þeim og öðrum kennileitum miklu erfiðara. Dæmi til dæmis Bláskógabyggð sem er með 10 árhluta sem hluta af "relationinu".
https://www.openstreetmap.org/relation/9177051#map=9/64.4711/-20.1114
Stjórnsýslumörk ættu,samkvæmt bestu venju, að vera óháð landfræðilegum mörkum, mér sýnist því að best gæti verið að hreinlega eyða þeim sveitarfélögum sem nota önnur vensl og flytja inn mörkin sem LMÍ er með hjá sér og eru opin og frjálst að nota. Þau væru þá ekki vensluð við önnur mörk, vegi, ár, strandlínur eða annað.
--Jóhannes / Stalfur @ OSM
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is