[Talk-is] Þjóðgarðar
Ævar Arnfjörð Bjarmason
avarab at gmail.com
Tue Dec 16 16:22:56 GMT 2008
2008/12/16 Bjarki Sigursveinsson <bjarki at gmail.com>:
> Í ljósi þess að byrjað er að afmarka mörk sveitarfélaga á Íslandi í OSM vil
> ég benda á að í reglugerðum er að finna skilgreiningar á mörkum (lista af
> hnitum) þjóðgarðanna í kringum vatnajökul og snæfellsjökul sem kannski er
> hægt að flytja yfir í OSM. Reglugerðir eru utan höfundaréttar (PD) þannig að
> réttindamál eru í lagi.
> http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/608-2008
> http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/568-2001
Takk fyrir það. Ég var búinn eins og sést[1] að bæta
Þingvallaþjóðgarði á kortið, en á vef þingvallanefndar fann ég PDF
skjal með WGS84 punktum sem afmörkuðu þjóðgarðinn.
Ég hafði ætlað mér að flytja inn mörk Vatnajökuls- og
Snæfellsjökulsþjóðgarðs á svipaðan hátt með því að nota einmitt þessar
reglugerðir sem þú bendir á, en það stoppaði lengi vel á því að ég
hafði ekki leið til að umbreyta úr ÍSNET93 hnitakerfinu í WGS84 sem
eru þau hnit sem ég þyrfti að bæta þessu inn í. Sú fyrirstaða hvarf
hinsvegar fyrir u.þ.b. 2 vikum þegar ég fékk JavaScript kóða frá
kunningja kunningja sem er fær um þetta. Ég sendi hann hér með en ég
var búinn að vefja honum í Perl lag svo ég geti keyrt hann frá
skipanalínunni:
$ perl isnet93.pl 537575 447537
64.52731,-18.21725
Þá er ekkert annað eftir en að ráðast í þessa rosalegu afmarkalýsingu
sem stendur í þessum reglugerðum, ég ætlaði að fara í það einn góðann
veðurdag. Afmörkin yrðu hinsvegar seint hárrétt þar sem þjóðgarðar
styðjast oft við afmörk eignarlenda, háspennulínur og annað sem við
erum ekki með gögn um. Það var líka tilfelið með Þingvallaþjóðgarð og
hafði ég þann háttinn á þegar ég setti hann inn að teikna mörk hans
sem rúmlega þau sem þau voru líkast til raunverulega. Þannig fer fólk
ekki t.d. að gerast sekt um veiðiþjófnað ef það fer eftir kortunum
okkar.
Annars ættum við líka að bæta inn þjóðlendum, fólkvöngum og öðrum
álíka svæðum. Umhverfisráðuneytið er með skrá yfir þau svæði og er
spurning hvort væri hægt að fá þau gögn frá þeim.
1. http://informationfreeway.org/?lat=64.2340332874108&lon=-21.13672330874927&zoom=10&layers=B0000F000F
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: isnet93.pl
Type: application/x-perl
Size: 2079 bytes
Desc: not available
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20081216/31b2a987/attachment.bin>
More information about the Talk-is
mailing list