[Talk-is] Gögn fyrir Skorradal og nágrenni

baldvin at baldvin.com baldvin at baldvin.com
Fri Apr 24 01:30:35 BST 2009


Sæl.

 

Ég veit ekki hvort það er almennt verið að trufla aðra með því sem maður er
að fást við, en vildi þó láta vita af fyrirhugaðri gagnasöfnun fyrir
Skorradal og nágrenni um næstu helgi, 25. og 26. apríl 2009. Við erum að
byrja að fóta okkur með söfnun og innsetningu og þetta svæði liggur vel við
fyrir okkur og mér sýnist það ekki hafa verið skráð að neinu ráði nú þegar.
Tilkynni þessa fyrirætlan hér til þess að fá ábendingar ef þetta væri vel
þekkt/skráð svæði nú þegar (og það farið framhjá mér) eða ef einhver hefði
sérstakar athugasemdir eða góðar ábendingar varðandi það hvað við ættum að
passa að hafa með í gagnasettinu.

 

Svo á auðvitað eftir að koma í ljós hvernig okkur tekst að vinna úr söfnuðu
upplýsingunum en við gerum okkar besta til að gera þetta almennilega.

 

Ef menn vilja alls ekki svona fyrirfram tilkynningar um það hvar maður er að
hugsa um að safna (eða vinna í), þá endilega látið mig vita svo ég geti
tekið tillit til þess.

 

Kveðja,

Baldvin Hansson

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20090424/aef0c4d7/attachment.html>


More information about the Talk-is mailing list