[Talk-is] Rútanlegt Garmin kort af Íslandi
Ævar Arnfjörð Bjarmason
avarab at gmail.com
Tue Jan 13 13:33:42 GMT 2009
Garmin kortið sem ég er að búa til daglega úr OSM gögnunum er nú rútanlegt:
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Garmin_map_of_Iceland
Einnig breytti ég ferlinu sem býr það til þannig að nær
undantekningarlaust (nema xapi sé niðri) er kortið búið til úr OSM
gögnum eins og þau eru 07:00 um morguninn hvern dag, en ekki jafnvel
um morguninn síðasta dag eins og áður var. Þannig að notendur ættu að
geta búist við því að geta hlaðið korti á garmin tækið sitt og séð
svæðið sem þeir voru að breyta daginn áður.
Þar að auki er sem aukaafurð .mp (polish format) skrá búin til, það
ætti að vera hægt að opna hana í cGPSmapper:
http://osm.nix.is/latest/Iceland.mp.bz2
Það væri mjög gott að fá feedback ef einhver prófar þetta, og ef
einhverjum tekst að opna .mp skránna (er ekki með cGPSmapper). En
þetta virkar ágætlega á mínu 60CSx, getur rútað leiðum hvar sem er á
milli tveggja punkta á Íslandi og gefið mér leiðbeiningar um hvernig
ég eigi að fara í gegnum hver gatnamót.
More information about the Talk-is
mailing list