[Talk-is] Póstnúmer inn á kortið

Ævar Arnfjörð Bjarmason avarab at gmail.com
Thu Jan 22 14:44:21 GMT 2009


2009/1/15 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
> 2009/1/15 Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
>> 2009/1/15 Arnar Birgisson <arnarbi at gmail.com>:
>>> 2009/1/14 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
>>>> 2009/1/14 Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
>>>>> Var að hugsa um möguleigar leiðir til að koma póstnúmerum inn á kortið
>>>>>
>>>>> Inn á vefsíðu Íslandspósts er m.a. póstnúmera og gatnaskrá
>>>>> http://www.postur.is/desktopdefault.aspx/tabid-145/
>>>>>
>>>>> Um notkunarskilmála  segir
>>>>> * Leyfð er ótakmörkuð gjaldfrjáls notkun á skránum bæði fyrir
>>>>> einstaklinga og fyrirtæki.
>>>>> * Skrárnar má fella inn í tölvukerfi til að stuðla að réttri skráningu
>>>>> á póstnúmerum, götum og bæjarnöfnum fyrir póstáritanir og
>>>>> heimilisföng.
>>>>> * Óheimilt er að setja þessar skrár beinnt upp á eigin vefsíðu til
>>>>> dreifingar, notið frekar tilvísun á þessa síðu.
>>>>>
>>>>> Er þetta nóg til þess að við getum notað skránna sem source fyrir póstnúmer?
>>>>
>>>> Ekki eins og þetta er skrifað þarna, þar sem við værum að dreifa þessu
>>>> óháð þeim og undir leyfi sem hefur ekki þessa tilteknu skilmála.
>>>
>>> Ég er sammála því að betra er að fá OK hjá Póstinum, en af hverju ætti
>>> þetta ekki að vera nóg? Ótakmörkuð notkun er leyfð og skrárnar má
>>> fella inn í tölvukerfi (OSM myndi teljast tölvukerfi). Það eina sem
>>> ekki má er að hýsa skrárnar beint (þ.e. óbreyttar).
>>>
>>> kv,
>>> Arnar
>>>
>>
>> Ég er sammála þér með þetta. Ef þeir leyfa okkur að fella þetta inn í
>> okkar tölvukerfi geta þeir varla verið að banna okkur að dreifa
>> gögnunum með tölvukerfinu undir leyfi að okkar vali.
>
> Við erum að nota CC-BY-SA 2.0 (og erum reyndar líkast til að fara
> skipta yfir í annað leyfi, en það er annað mál). Almennt séð er það
> forsenda fyrir því að hægt sé að taka höfundaréttvarið efni frá
> uppruna A og fella það inn í B að A tilgreini ekki takmarkanir á
> notkun þess sem gilda ekki einnig um B.
>
> Ég get ekki séð betur en að þessir þrír punktar frá póstinum setji
> okkur afmarka sem gilda ekki um CC-BY-SA 2.0, og því sé ekki að
> óbreyttu máli hægt að nota þessi gögn í OSM, sér í lagi:
>
>> Leyfð er ótakmörkuð gjaldfrjáls notkun á skránum bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
>
> Hérna eru þeir að leyfa ótakmarkaða notkun en setja svo annmörk í
> næstu 2 punktum.
>
>> Skrárnar má fella inn í tölvukerfi til að stuðla að réttri skráningu á póstnúmerum, götum og bæjarnöfnum fyrir póstáritanir og heimilisföng.
>
> Frjáls notkunarleyfi tilgreina ekki takmörkanir á því hvað má nota
> hluti í. Ef þetta væri gefið undir CC-BY-SA gæti hver sem er notað
> gögnin til einhvers allt annars en að stuðla að réttri skráningu á
> póstnúmerum, t.d. til að rannsaka stafatíðni í götuheitum almennt, eða
> - til að benda á það augljósa - til að setja upp tölvukerfi sem
> stuðlar að rangri skráningu póstnúmera. Þetta er leyfilegt undir
> CC-BY-SA, en ekki þessu leyfi eftir því sem ég fæ best séð.
>
>> Óheimilt er að setja þessar skrár beinnt upp á eigin vefsíðu til dreifingar, notið frekar tilvísun á þessa síðu.
>
> Ef við flytjum þetta inn í grunninn okkar undir okkar leyfi er hægt að
> gera nánast hvað sem er með þau, þ.á.m. að taka þessi póstgögn út
> aftur og raða þeim saman á sambærilegan máta við upprunalegu
> póstskránna, ef afraksturinn yrði hýstur einhverstaðar myndi það
> brjóta á þessum lið.

Við erum nú komin með leyfi til að nota póstnúmeraskrá, sjá
http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2009-January/000122.html




More information about the Talk-is mailing list