[Talk-is] Beðni um aðstoð Fisfélagsins við að taka loftmyndir af Höfuðborgarsvæðinu fyrir OpenStreetMap

Ævar Arnfjörð Bjarmason avarab at gmail.com
Sat Sep 5 20:24:29 BST 2009


Hæ öllsömul.

Fyrir það fyrsta: Ég sendi þennan póst á þá sem voru listaðir sem
Tengiliðir á fisflug.is sem eru stjórnarmeðlimir félagsins. Ég vissi
ekki betur og það getur vel verið að annar vettvangur eigi betur við.

En til að koma mér að efninu. Ævar heiti ég og hef samband við ykkur
því að í frítíma mínum legg ég til gögn í OpenStreetMap verkefnið:

http://is.wikipedia.org/wiki/OpenStreetMap

OpenStreetMap er frjáls (og ókepis) kortagrunnur af öllum heiminum
(þ.á.m. Íslandi) sem hver sem er getur lagt gögn í og tekið gögn úr
sér að kostnaðarlausu. Við erum komin með ágætis kort af Íslandi eftir
nokkura ára framlög nokkura einstaklinga:

http://osm.org/go/e1obM--

hér má t.d. sjá höfuðborgarsvæðið:

http://osm.org/go/e0UvhIF-

En af hverju er ég að hafa samband við ykkur?

OpenStreetMap á Íslandi er nær eingöngu búið til upp úr GPS ferlum.
Þ.e. einhver áhugasamur notandi labbar/hjólar/keyrir um eitthvað svæði
og teiknar kort upp úr ferlunum. Hér má t.d. sjá hvernig Akranes var
teiknað upp:

http://blip.tv/file/1624794

En það væri mun fljótlegra að kortleggja ef við værum með loftmyndir,
og það er þar sem þið komið inn.

Einu loftmyndirnar sem við erum með aðgang að eru Landsat myndir frá
NASA sem eru í það lágri upplausn að við erum heppin að geta teiknað
stór vötn og ár upp úr þeim. Aðrir myndagrunnar eins og t.d. grunnur
Loftmynda.is og SPOT5 grunnur LMÍ kosta morðfjár sem nokkrir
hobbýistar hafa ekki ráð á.

Því vildi ég kanna hvort áhugi væri hjá einhverjum félagsmanni eða
félagsmönnum ykkar til að fljúga um t.d. Höfuðborgarsvæðið með
einhvern áhugasaman einstakling frá OpenStreetMap verkefninu sem myndi
taka myndir af jörðu niðri. Við svo varpað þessum myndum á þekkta
punkta á jörðu niðri (e. control points) og teiknað upp nákvæmara kort
út frá því.

Þetta gæti líka verið ykkur til beinna hagsbóta. Við gætum t.d.
kortlagt flugbrautir ykkar (on annað sem fisflugmenn hafa áhuga á) með
mikilli nákvæmni. Sjá t.d. Kastrup flugvöll sem dæmi:

http://osm.org/go/0NWr7xnO-

Svo gætið þið hlaðið OSM grunninum á Garmin tækin ykkar og notað
afraksturinn beint:

http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Garmin_map_of_Iceland




More information about the Talk-is mailing list