[Talk-is] Beðni um aðstoð Fisfélagsins við að taka loftmyndir af Höfuðborgarsvæðinu fyrir OpenStreetMap
Ævar Arnfjörð Bjarmason
avarab at gmail.com
Sat Sep 19 20:28:53 BST 2009
Það vissi ég ekki. En loftmyndir af öðrum svæðum væri gott að hafa líka.
Hvar er hægt að nálgast reglugerðirnar um þetta? Á þetta við um allt
byggt ból á höfuðborgarsvæðinu eða Reykjavíkurborg sérstaklega?
2009/9/19 Ágúst Guðmundsson <ag at teigar.net>:
> Fis mega ekki fljúga yfir höfuðborginni nema með sérstöku leyfi.
> Það gæti verið áhugi einhverra með önnur svæði en höfuðborgina sjálfa.
>
> Kveðja
> Ágúst
>
>
> -----Original Message-----
> From: Ævar Arnfjörð Bjarmason [mailto:avarab at gmail.com]
> Sent: 19. september 2009 17:42
> To: Ágúst Guðmundsson; Arni Geirsson; siggi at isb.is; Hans Kr.. Gudmundsson; elin at skapa.is
> Cc: OpenStreetMap in Iceland; Postlisti Fisfelags Reykjavikur
> Subject: Re: Beðni um aðstoð Fisfélagsins við að taka loftmyndir af Höfuðborgarsvæðinu fyrir OpenStreetMap
>
> Hérna er dæmi um fólk sem gerði svona í Stratford á Englandi fyrir nokkrum dögum síðan:
>
> http://milliams.com/verticalitymetre/map.html
>
> Hægt er að smella á punktana til að sjá myndir.
>
> Hérna er bloggpóstur um málið:
> http://www.openstreetmap.org/user/Milliams/diary/7969
>
> En hvernig er það, er einhver í þessu félagi sem hefur áhuga fyrir þessu eða er ég að tala fyrir óháhugasömum eyrum?
>
> 2009/9/5 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
>> Hæ öllsömul.
>>
>> Fyrir það fyrsta: Ég sendi þennan póst á þá sem voru listaðir sem
>> Tengiliðir á fisflug.is sem eru stjórnarmeðlimir félagsins. Ég vissi
>> ekki betur og það getur vel verið að annar vettvangur eigi betur við.
>>
>> En til að koma mér að efninu. Ævar heiti ég og hef samband við ykkur
>> því að í frítíma mínum legg ég til gögn í OpenStreetMap verkefnið:
>>
>> http://is.wikipedia.org/wiki/OpenStreetMap
>>
>> OpenStreetMap er frjáls (og ókepis) kortagrunnur af öllum heiminum
>> (þ.á.m. Íslandi) sem hver sem er getur lagt gögn í og tekið gögn úr
>> sér að kostnaðarlausu. Við erum komin með ágætis kort af Íslandi eftir
>> nokkura ára framlög nokkura einstaklinga:
>>
>> http://osm.org/go/e1obM--
>>
>> hér má t.d. sjá höfuðborgarsvæðið:
>>
>> http://osm.org/go/e0UvhIF-
>>
>> En af hverju er ég að hafa samband við ykkur?
>>
>> OpenStreetMap á Íslandi er nær eingöngu búið til upp úr GPS ferlum.
>> Þ.e. einhver áhugasamur notandi labbar/hjólar/keyrir um eitthvað svæði
>> og teiknar kort upp úr ferlunum. Hér má t.d. sjá hvernig Akranes var
>> teiknað upp:
>>
>> http://blip.tv/file/1624794
>>
>> En það væri mun fljótlegra að kortleggja ef við værum með loftmyndir,
>> og það er þar sem þið komið inn.
>>
>> Einu loftmyndirnar sem við erum með aðgang að eru Landsat myndir frá
>> NASA sem eru í það lágri upplausn að við erum heppin að geta teiknað
>> stór vötn og ár upp úr þeim. Aðrir myndagrunnar eins og t.d. grunnur
>> Loftmynda.is og SPOT5 grunnur LMÍ kosta morðfjár sem nokkrir
>> hobbýistar hafa ekki ráð á.
>>
>> Því vildi ég kanna hvort áhugi væri hjá einhverjum félagsmanni eða
>> félagsmönnum ykkar til að fljúga um t.d. Höfuðborgarsvæðið með
>> einhvern áhugasaman einstakling frá OpenStreetMap verkefninu sem myndi
>> taka myndir af jörðu niðri. Við svo varpað þessum myndum á þekkta
>> punkta á jörðu niðri (e. control points) og teiknað upp nákvæmara kort
>> út frá því.
>>
>> Þetta gæti líka verið ykkur til beinna hagsbóta. Við gætum t.d.
>> kortlagt flugbrautir ykkar (on annað sem fisflugmenn hafa áhuga á) með
>> mikilli nákvæmni. Sjá t.d. Kastrup flugvöll sem dæmi:
>>
>> http://osm.org/go/0NWr7xnO-
>>
>> Svo gætið þið hlaðið OSM grunninum á Garmin tækin ykkar og notað
>> afraksturinn beint:
>>
>> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Garmin_map_of_Iceland
>>
>
More information about the Talk-is
mailing list