[Talk-is] hjólavefsjá.is, DV í dag o.fl.

Björgvin Ragnarsson nifgraup at gmail.com
Wed Aug 18 00:40:41 BST 2010


Ef einhver væri til í að setja inn þennan glænýja hjólastíg væri það
mjög hjálplegt.

http://visir.is/hjolastigur-a-hverfisgotu/article/2010263738966

kv.

Björgvin

2010/8/17 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
> 2010/8/17 Davíð Jakobsson <rimmugygur at gmail.com>:
>> Þann 16. ágúst 2010 18:33, skrifaði Ævar Arnfjörð Bjarmason
>> <avarab at gmail.com>:
>>>
>>> 2010/8/14 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
>>> > 2010/8/14 Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is>:
>>> >> Ég hef illan grun um að gögnin fyrir hjólavefsjána muni vera fengin úr
>>> >> gögnum háð sömu takmörkunum og þau sem borgarvefsjáin er unnin eftir.
>>> >> Það
>>> >> kæmi mér allavega ekkert á óvart.
>>> >
>>> > Planið hérna er að fá borgina til að gefa út þessi gögn undir frjálsu
>>> > leyfi í staðin fyrir að gera sitt egið verkefni, ég veit ekki hvort
>>> > það gengur eftir, en það má vona.
>>> >
>>> > Gísli Marteinn allavegana virðist jákvæður:
>>> >
>>> >    http://twitter.com/gislimarteinn/status/21018574846
>>> >    http://twitter.com/gislimarteinn/status/21018677592
>>> >
>>> > Þetta hjólavefsjármál verður tekið fyrir hjá borginni bráðlega, planið
>>> > er að vera fyrir þann tíma komnir með hjólavefsjá á Íslensku (byggt á
>>> > hugbúnaði sem er til) sem hægt verður að benda á og segja "hérna er
>>> > þetta, gjaldfrjálst og aðgengilegt öllum, þið þurfið bara að gefa út
>>> > gögnin sem þið egið nú þegar til að gera þetta betra", eða eitthvað
>>> > þannig.
>>>
>>> Þetta verkefni er komið aðeins lengra. Það var keypt lén fyrir þetta:
>>>
>>>    http://xn--hjlavefsj-81a4q.is/ (eða http://hjolavefsja.is/)
>>>
>>> Kannski sést þetta ekki því það er enn í ISNIC kerfinu, en hér er
>>> afrit þangað til:
>>>
>>>    http://v.nix.is/~avar/hjolavefsja/
>>>
>>> Það var líka tekið viðtal við mig út af þessu af DV, það er í blaðinu
>>> í dag (16. ágúst 2010) á síðu #4, ég hef ekki enn séð það þannig ég
>>> veit ekki hvað stendur þar.
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Talk-is mailing list
>>> Talk-is at openstreetmap.org
>>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>> Flott framtak!
>>
>> Það er kannski spurning um að gera smá átak í hjólreiðakortinu okkar þar sem
>> þetta er að fá svona fína auglýsingu.
>
> Jú, endilega. Get því miður ekki hjálpað með það beint þar sem ég er
> ekki á landinu.
>
>> Það sem mér finnst hafa stungið sérstaklega útúr er Grafarholtið þar
>> sem hver einasti stígur er taggaður sem cycleway. Er einhver sem
>> þekkir til þarna sem getur lagað þetta?
>
> Ég sé ekki betur en að þetta sé rétt, ef það er eitthvað jafngildi
> erlendra hjólreiðastíga á Íslandi er það líkast til netið í
> grafarholtinu.
>
>
>> Að öðru leyti þá er til pdf skjal frá rvk hér
>>
>> http://www.rvk.is/Portaldata/1/Resources/framkvaemdasvid/gongu_og_hjolastigar/Uppl-skilti-St_rRvk.pdf
>>
>> Að mstu leyti er það rétt held ég, þó að ég geti séð nokkrar villur þarna,
>> en það er spurning hvort að það megi ekki nota það til viðmununar?
>
> Þetta er lítið dæmi um gögn sem við erum að reyna fá leyfi til að
> nota, þannig við getum ekki notað þetta eins og er.
>
> En burtséð frá því er þetta skjal nánast ónothæft, ég man ekki hvar ég
> heyrði þetta en ég frétti einhverstaðar að þetta hefði fyrst verið
> gert fyrir einhverja ráðstefnu Evrópskra borga, þá til að einhver
> embættismaðurinn gæti litið vel út úti og auglýst hversu hjólavæn
> Reykjavík væri.
>
> Það getur vel verið að það sé lygi, en það sést ekki annað á þessu
> korti. Þessar leiðir eru í engum tengslum við raunveruleikann, þarna
> er allt frá ágætis hjólaleiðum (t.d. Skerjafjörðurinn) niður í
> venjulegar gangstéttir við götur, síðast þegar ég athugaði var líka
> eitthvað af þessu sem fór upp og niður stiga!
>
> Það eina sem er *ekki* á þessu korti er Langahlíð og kafli Laugarvegar
> frá Snorrabraut til Barónsstígs, sem eru einu tvö dæmin um kafla þar
> sem reynt hefur verið að búa til pláss fyrir hjólafólk ásamt bíla og
> gönguumferð.
>
> Það flotta við OpenStreetMap er einmitt að við getum búið til *alvöru*
> hjólakort sem er með einhver tengsl við raunveruleikann, það þarf bara
> að merkja breidd vegsins, hvort umferð er aðskilin, hvernig undirlagið
> er o.s.f.
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>



More information about the Talk-is mailing list