[Talk-is] Hjolavefsja.is flott framtak. Hvernig geta hjólarar aðstoðað ?

Björgvin Ragnarsson nifgraup at gmail.com
Wed Aug 25 00:14:17 BST 2010


Gott að vita að þetta gekk vel. Það er akkúrat lítið mál að leiðrétta
svo fólk er bara hvatt til að vera óhrætt við að gera breytingar og
sjá hvernig þær koma út. Hér, http://osm.nix.is/diff/latest/, er svo
hægt að sjá skýrslur yfir allar breytingar s.l. dag, viku eða mánuð.

Varðandi hækkun þá eigum við engin góð hæðarlínugögn sem við megum
nota en það ætti að vera forgangsverkefni að fá þau frá borginni fyrir
góða hjólavefsjá. Eins og þú sérð á síðunni þá er hækkun sýnd fyrir
leiðina en ég þekki ekki nákvæmlega hvernig hún er notuð í
útreikningana, það ætti að standa einhvers staðar á heimasíðu
CloudMade.com. Flottast væri að hafa mynd af "elevation profile" eins
og hér: http://www.cyclestreets.net/blog/2009/10/08/elevation-profiles/.

kv.

Björgvin

2010/8/24 Morten Lange <morten7an at yahoo.com>:
> Frábært !
>
> Ég er búinn að bæta inn stubba í norð-austurhorni Kópavogs, nálægt Reykjanesbraut.  Tók sénsin á að gera þetta eftir minni.  Mér sýnist vera lítið mál að leiðrétta eftirá. Verður spennandi að sjá hvenær þessar viðbætur detta inn á hjólavefsjá.is
>
> Mér finnst góð hugmynd að halda kynningu á klúbbhúsi Íslenska fjallahjólaklúbbsins, að Brekkustíg 2, Rvk, eitthvert fimmtudagskvöld.  Þá munu reyndar pottþétt koma upp spurningar varðandi að taka tillit til halla / hækkun við útreikninga, og fleira í þeim dúr.
>
> Skal koma því á framfæri við klúbbinn að svoleiðis kynning væri möguleiki. ( Enginn hefur lofað neitt ennþá að vísu )
>
> --
> Regards / Kvedja
> Morten Lange, Reykjavík
>
>
> --- On Tue, 24/8/10, Björgvin Ragnarsson <nifgraup at gmail.com> wrote:
>
>> From: Björgvin Ragnarsson <nifgraup at gmail.com>
>> Subject: Re: [Talk-is] Hjolavefsja.is flott framtak. Hvernig geta hjólarar aðstoðað ?
>> To: "OpenStreetMap in Iceland" <talk-is at openstreetmap.org>
>> Date: Tuesday, 24 August, 2010, 23:21
>> Sæll Morten og aðrir,
>>
>> http://www.hjólavefsjá.is ætti að vera komið í
>> lag núna. Endilega
>> spurðu ef þú lendir í einhverjum vandræðum. Athugaðu
>> að breytingarnar
>> koma ekki um leið inn á kortið, ef einhver veit hversu
>> ört kortin frá
>> CloudMade uppfærast væri gott að vita það.
>>
>> Kannski væri það góð hugmynd að hafa smá kennslu á
>> OpenStreetMap í
>> klúbbhúsi Fjallahjólaklúbbs Íslands, einhver sem
>> býður sig fram í það?
>> Það væri hægt að byrja á að fara í smá hjólatúr
>> og skrásetja með hjálp
>> http://walking-papers.org/ og hafa síðan kennslustund
>> fyrir framan
>> skjávarpann.
>>
>> kv.
>>
>> Björgvin
>>
>>
>>
>> 2010/8/24 Thorir Jonsson <thorirmar at gmail.com>:
>> > Sæll Morten.
>> >
>> > Bæði www.hjolavefsja.is og www.hjólavefsjá.is
>> sýna Reykjavík hjá mér?
>> > Veit ekki hvað er á seiði þar.
>> >
>> > Varðandi tengingar og hjólastíga sem vantar á
>> kortið, þá er auðvelt að
>> > bæta þeim inn.  Hjólavefsjá.is notar kortagögn
>> frá openstreetmap.org.
>> > Þessi gögn eru öllum aðgengileg og auðvelt er að
>> breyta þeim og bæta.
>> > Fyrst þarf stofna notanda hjá openstreetmap.org.
>>  Þegar það er búið er
>> > hægt að byrja að breyta kortinu með því að opna
>> Potlatch (velja edit
>> > ofan við kortið á openstreetmap.org og skrá sig
>> inn).
>> >
>> > Leiðbeiningar fyrir Potlatch er að finna hér:
>> > http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Potlatch
>> > Lista með öllum algengustu tögunum ásamt
>> leiðbeiningum um notkun
>> > þeirra finnur þú hér: http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Map_Features
>> >
>> > Það er svo rétt að taka það fram að Potlatch er
>> ekki eina forritið sem
>> > hægt er að nota til að breyta og bæta
>> openstreetmap.  JOSM er það
>> > forrit sem ég held að flest okkar hér á
>> póstlistanum noti.  Það er mun
>> > öflugra en Potlatch en er erfiðara að læra á og
>> engu betra fyrir
>> > litlar lagfæringar eins og að bæta tengingar á
>> hjólastígum.
>> >
>> > Þar sem þú nefnir Borgarvefsjá í póstinum
>> þínum þá er rétt að taka það
>> > fram að við höfum ekki fengið leyfi til að bæta
>> gögnum úr
>> > Landupplýsingakerfi Reykjavíkur (landafræðigögnin
>> sem Borgarvefsjá
>> > byggir á) í openstreetmap grunninn.  Það má
>> því ekki bæta inn
>> > upplýsingum sem fengnar eru af Borgarvefsjá.  Allar
>> upplýsingar sem þú
>> > getur bætt inn eftir minni og eigin þekkingu eru
>> aftur á móti vel
>> > þegnar.
>> >
>> > Bestu kveðjur,
>> > Þórir Már
>> >
>> >
>> >
>> > 2010/8/24 Morten Lange <morten7an at yahoo.com>:
>> >> Sælar :-)
>> >>
>> >>
>> >> www.hjolavefsja.is  er flott.  (Reykjavík)
>> >> www.hjólavefsjá.is  virkar ekki eins vel :-þ
>>   (New York)
>> >>
>> >>
>> >> Það eru fullt af litlum tengingum sem vanta.
>> (t.d. við enda Blesugrófar) Hvernig getur maður sem er
>> ekki með GPS, en þekkir leiðirnar  ( og kann á
>> Borgarvefsjá ofl.  ) aðstoðað ?
>> >>
>> >> --
>> >> Regards / Kvedja
>> >> Morten Lange, Reykjavík
>> >> ( í varastjórn Landssamtaka hjólreiðamanna )
>> >>
>> >>
>> >>
>> >>
>> >> _______________________________________________
>> >> Talk-is mailing list
>> >> Talk-is at openstreetmap.org
>> >> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>> >>
>> >
>> > _______________________________________________
>> > Talk-is mailing list
>> > Talk-is at openstreetmap.org
>> > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>> >
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>



More information about the Talk-is mailing list