[Talk-is] Átak í Hafnarfirðinum
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Sun Jun 6 07:27:15 BST 2010
Hæ aftur.
Ætlaði að koma með smá status update í átakinu í Hafnarfirði:
Þar sem ég ofmat þann tíma sem ég gat sett í verkefnið hafa orðið
einhverjar tafir á því. Þær áttu sér stað vegna anna í skólanum og hafði
ég meira að segja áætlað að klára allar göturnar í Hafnarfirði seinasta
febrúar en ekkert varð af því. Einnig má búast við einhverjum töfum í
sumar þar sem Garmin tækið sem ég notaði áður er bilað (get ekki hlaðið
það). Ætti að komast aftur af stað þegar ég hef fengið nýtt tæki eða ef
mér tekst að laga það gamla.
Staðan er þannig að ég var að klára að setja inn Setbergið en þær skrár
hafa hangið í tölvunni síðan seinasta janúar. Þið viljið líklegast kíkja
þarna inn og fylla inn þau götunöfn sem þið kunnið utan að. Það ætti að
spara mér einhverja vinnu þegar ég fer yfir það síðar.
Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval (svavar at kjarrval.is)
s. 863-9900
On 13.1.2010 17:39, Svavar Kjarrval wrote:
> Hæ póstlisti!
>
> Ég hef áður „nöldrað“ yfir Hafnarfirðinum en ætla ekki að gera það
> núna. Ef ég geri það mun einhver annar verða þreyttur á því og taka
> alla vinnuna frá mér. ;)
>
> Svo ég komi mér að efninu, þá er á áætlun að klára Hafnarfjörðinn á
> árinu. Aðalmarkmiðið er að því ljúki fyrir árslok. Öðrum er velkomið
> að taka þátt ef þeir óska, hvort sem það er í samstarfi við mig eða
> sjálfstætt. Símanúmerið mitt og netfang er hér neðst ef einhver
> vill/þarf að ná sambandi við mig.
>
> Áætlunin er gróflega svona (í röð):
> 1. Safna vegahnútum fyrir öll hverfi aftur (fyrir utan þær götur sem
> ég hef þegar sett inn), líklegast í þessari röð:
> * Ásland
> (http://www.openstreetmap.org/?lat=64.05422&lon=-21.94151&zoom=16&layers=B000FTF).
>
> * Holtið og götur hjá Suðurhöfn
> (http://www.openstreetmap.org/?lat=64.06311&lon=-21.98376&zoom=15&layers=B000FTF).
>
> * Setbergið
> (http://www.openstreetmap.org/?lat=64.06668&lon=-21.91771&zoom=15&layers=B000FTF).
>
> * Götur á „þessu svæði“ fyrir utan Hvammagöturnar sem ég setti inn
> (http://www.openstreetmap.org/?lat=64.06285&lon=-21.9519&zoom=16&layers=B000FTF).
>
> * Miðbærinn og Hraunin austan Reykjavíkurvegar
> (http://www.openstreetmap.org/?lat=64.07492&lon=-21.93799&zoom=15&layers=B000FTF).
>
> * Nýja verslunarsvæðið ásamt nálægu svæði norðan Reykjanesbrautar
> (http://www.openstreetmap.org/?lat=64.07721&lon=-21.91653&zoom=15&layers=B000FTF).
>
> * Vesturbærinn
> (http://www.openstreetmap.org/?lat=64.07541&lon=-21.9596&zoom=15&layers=B000FTF).
>
> * Norðurbærinn - þ.e. allt vestan Reykjavíkurvegur á kortinu fyrir
> utan Vesturbæinn (sama kort).
> * Bera saman afraksturinn við önnur kort og sjá hvort vanti eitthvað
> upp á. Ef svo er, redda viðeigandi hnútum.
>
> 2. Safna POI (points of interest) og þá meðal annars:
> * Skólar þ.e. leikskólar, grunnskólar og framhaldsskólar.
> * Hverfisstaðir (búðir, sjoppur, fyrirtæki o.s.frv.) sem hafa verið
> þarna frá „örófi alda“.
> * Þekktar keðjur sem hafa útibú í Hafnarfirði (verslanir, bankar).
> * Strætisvagnastöðvar (mun spyrja Strætó bs. um hnitin eða safna
> sjálfur ef svarið er neitandi).
> * Bensínstöðvar.
> * Söfn (m.a. bókasafnið).
> * Almenningsþjónusta (lögreglustöðin, bæjarskrifstofa o.s.frv.)
> * Kirkjugarðurinn.
> * Umferðarljós og umferðarmerkingar eftir því sem OSM-táknun leyfir.
> * Almenningsgarðar og helstu bílastæði.
>
> 3. Aukadót sem ég vonast eftir en gæti verið að það komist ekki inn:
> * Húsnúmer. Annaðhvort frá opinberum gögnum eða safnað sjálfstætt. Ef
> það síðarnefnda á við mun ég sjá til hversu mikið ég mun nenna að
> safna og setja inn.
> * Bæjarmörkin út frá opinberum gögnum.
> * POI sem hægt er að fá út frá opinberum gögnum.
> * Göngustígar.
>
> - Í sumum tilvikum mun ég setja inn nýjar götur og í öðrum setja inn
> nýjar.
> - Ég mun líklegast safna veghnútum í öðrum bæjum inn á milli.
> - Þegar ég meina opinber gögn, þá meina ég gögn sem eru frá hinu
> opinbera og til frjálsra afnota (leyfi sem samræmast CC eða í
> almenningseigu).
> - Býst við því að setja allan afraksturinn inn jafnóðum þ.e. matað inn
> eftir því sem lengra er komið.
>
> Fyrsti liðurinn ætti að taka 1-2 mánuði. Annar liðurinn gæti tekið
> jafnlangan tíma þar sem ég mun standa í bréfasamskiptum og síðan safna
> saman þeim stöðum sem eiga heima á OSM og merkja inn. Veit ekki hvað
> þriðju liðurinn mun taka langan tíma en það aðallega fer eftir
> samvinnuþýði hins opinbera og nennu minni. Tímarnir eru þar að auki
> háðir því hversu mikið annað er að gera hjá mér.
>
> Ef allt gengur eftir ætti að verða úr þessu routanlegt kort af
> Hafnarfirði sem yrði nothæft í leiðsagnartækjum.
>
More information about the Talk-is
mailing list