[Talk-is] OSM beiðni fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Björgvin Ragnarsson
nifgraup at gmail.com
Wed Nov 10 00:54:40 GMT 2010
Sælt
Ég ætla bara að skjóta því að að ég er enn að bíða eftir svörum frá
Rvk um skýrari höfundarrétt, hvort við fáum fleiri gögn en stígana
o.fl.
Ég reyni að ýta betur á eftir því.
kv.
Björgvin
2010/11/9 Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
> Sæl
>
> Mín tilfinning er sú að Reykjavík sé eina sveitarfélagið sem hefur selt
> aðgang að þessum vektorgögnum. Minni sveitarfélögin hafa bent manni á að
> hafa samband við umsjónaraðila landupplýsingakerfis til að nálgast þau gögn
> sem maður þarf við sína vinnu endurgjaldslaust (með minni sveitarfélögum á
> ég við þau sveitarfélög sem notast við infrapath frá Snertli eða Granna frá
> Verksud). Ég sé því ekki að sveitarfélögin hafi neinn hag af því að liggja á
> þessum gögnum og sé frekar að valda þeim kostnaði þar sem að þau enda
> eflaust sjálf á að vera rukkuð fyrir þeirri vinnu sem er fólgin í því að
> sækja gögnin úr kerfunum í hvert skipti. (Þetta gæti samt hafa breyst frá
> því að ég var að vinna í þessu)
>
> Það sem mætti bæta við þessa upptalningu Þóris eru hæðarlínur sem myndu
> nýtast sérstaklega vel í hjólavefsjána (Hver er annars statusinn á því
> máli?).
>
> Annars er ég sammála um að gagnasöfnunin ætti ekki að einskorðast við þá
> hluti sem eru sýnilegir á kortunum okkar en ef þú heldur að við stöndum
> sterkari í þessari viðræðu með því að skorða okkur við einhvert subset af
> gögnum myndi ég stinga upp á eftirfarand:
>
> -Götur (miðlínur og flákar)
> -Göngustígar (miðlínur og flákar)
> -Hús og lóðir
> -Sveitarfélagsmörk
> -hæðalínur
>
> Þetta subset myndi gagnast mjög vel í því sem ég veit til að sé verið að
> nota þessi gögn í í dag. Ástæða þess að ég segi miðlínur og fláka er að
> mikið af gagnlegum gögnum hanga oftast á miðlínum gatna svo sem nafn,
> hámarkshraði og einstefnur.
>
> Ég veit lítið um hvernig þessi gagnaöflun fór fram við Reykjavíkurborg en á
> því sem var sent á póstlistann fékk ég það á tilfinninguna að þeir væru bara
> að gefa göngustígana sína frjálsa og vonuðust til þess að fá eitthvað
> nothæft útúr því. Ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að reyna að "selja"
> þeim hjá Hafnarfjarðarbæ allt value-ið sem þeir eru í raun og veru að fá með
> því að því að gefa öll þessi gögn frjáls en það borgar sig kannski að taka
> þetta smærri skrefum.
>
> kv. Daníel G
>
> 2010/11/9 Thorir Jonsson <thorirmar at gmail.com>
>>
>> Sæll Svavar,
>>
>> Það er ánægjulegt að sjá að Hafnarfjarðarbær hafi áhuga á þessu verkefni.
>> Helst af öllu viljum við auðvitað sjá að allt Landupplýsingakerfi
>> Hafnarfjarðar verið gert Public Domain, eða að minnstakosti nógu opið til að
>> við getum nýtt það í OSM. Annars er bara að biðja um allt sem getur nýst
>> okkur s.s. miðlínur (eða útlínur), gatna, stíga og stétta. Útlínur
>> bygginga, staðsetningar húsnúmera, útlínur bæjarfélagsins (þar með talið
>> strandlínan), almenningsgarðar, tré og runnar, annar gróður. Loftnet og
>> annar fjarskiptabúnaður. Það mætti þessvegna óska eftir upplýsingum eins og
>> skólplögnum, rafmagnsleiðslum, ljósleiðurum, heitu og köldu vatni og hverju
>> því fleiru sem er grafið í jörðina undir okkur (það þarf ekki að takmarka
>> gagnasöfnunina við það sem er teiknað á MAPNIK eða OSMARENDER kortin).
>>
>> Eins væri hægt að biðja um aðgang að loftmyndum. Það gæti verið að bænum
>> þætti auðveldara að gera loftmyndirnar public domain en vektor gögnin í
>> LUKR.
>>
>> Í stuttu máli, því meira sem við fáum, því betra.
>>
>> Á síðunni um Hafnarfjörð á Lýsigagnavefnum má fá ágætis hugmynd um hvaða
>> gögn bærinn á. Þú getur haft hana til hliðsjónar.
>> http://landlysing.lmi.is/data/ig-o94.htm
>>
>> Annars segi ég bara, gangi þér vel og við bíðum spennt eftir niðurstöðum
>> af fundinum.
>>
>> Bestu kveðjur,
>> Þórir Már
>>
>>
>> 2010/11/9 Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is>
>>>
>>> Sælt fólk.
>>>
>>> Mun hitta einn hjá skipulags- og byggingasviði á morgun til að ræða
>>> nánari útfærslur á þessu. Þætti betra ef helstu hugmyndir kæmu fram í
>>> upphafi ferilsins í stað þess að það komi smátt og smátt, sérstaklega ef
>>> þeir eru nokkuð opnir fyrir þessu núna. Yrði nokkuð pirrandi fyrir þá ef ég
>>> kæmi alltaf reglulega og bæði um fleiri og fleiri tegundir af gögnum.
>>>
>>> Og aftur bið ég um tillögur að því sem ég ætti að biðja um umfram GPS
>>> hnit af vegum og stígum. Þá er hægt að athuga hvort bærinn búi yfir þessum
>>> upplýsingum og hvort það gæti verið með í endanlegu útfærslunni. Markmiðið
>>> verður að setja fram að upplýsingarnar verði public domain en til vara
>>> OSM-samhæft leyfi.
>>>
>>> Með kveðju / With regards,
>>> Svavar Kjarrval (svavar at kjarrval.is)
>>> s. 863-9900
>>>
>>>
>>> On 4.11.2010 13:35, Svavar Kjarrval wrote:
>>>>
>>>> Vildi láta ykkur vita að erindið var tekið fyrir í skipulags- og
>>>> byggingarráði þann 2. nóvember með eftirfarandi bókun:
>>>>
>>>> „Tekið til umræðu erindi Svavars Kjarrval Lútherssonar f.h.
>>>> OpenStreetMap sjálfboðaverkefnis varðandi kortlagningu göngu- og
>>>> hjólreiðastíga um afnot af kortagrunnum Hafnarfjarðarbæjar.
>>>>
>>>> Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið en felur skipulags-
>>>> og byggingarsviðs að skoða útfærslu í samvinnu við umsækjanda.“
>>>>
>>>> Þeir hafa ekki enn haft samband svo ég veit ekkert meira en stendur í
>>>> þessari bókun. Ef þið lumið á útfærsluatriðum sem ætti að hafa í huga,
>>>> endilega sendið þau á póstlistann.
>>>>
>>>> Með kveðju / With regards,
>>>> Svavar Kjarrval (svavar at kjarrval.is)
>>>> s. 863-9900
>>>>
>>>>
>>>> On 30.9.2010 23:11, Svavar Kjarrval wrote:
>>>>>
>>>>> Sælt póstlistafólk.
>>>>>
>>>>> Fylgdi eftir greininni í Fjarðarpóstinummeð bréfi til bæjarstjórnar
>>>>> Hafnarfjarðar fyrr í dag. Veit ekki hvenær það verður tekið fyrir. Erindið
>>>>> fylgir í viðhengi.
>>>>>
>>>>> Með kveðju,
>>>>> Svavar Kjarrval
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Talk-is mailing list
>>> Talk-is at openstreetmap.org
>>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
More information about the Talk-is
mailing list