[Talk-is] Reykjavíkurborg gefur OpenStreetMap verkefninu gögn
Björgvin Ragnarsson
nifgraup at gmail.com
Fri Sep 17 19:00:18 BST 2010
Á morgun verður okkur gefin gögn úr Landsupplýsingakerfi
Reykjavíkurborgar sem borgin telur að muni nýtast við gerð
hjólavefsjáar.
Á móti mun ég fyrir hönd OpenStreetMap verkefnisins á Íslandi gefa
borginni lénin hjolavefsja.is / hjólavefsjá.is.
Þessi gjörningur mun fara fram í Ráðhúsinu sem hluti af dagskrá sem
hefst kl. 13:00 í tilefni samgönguviku. Allir velkomnir.
Björgvin Ragnarsson
ps.
gleðilegan Software Freedom Day á morgun :)
More information about the Talk-is
mailing list