[Talk-is] LUKR gögnin komin & staðan á því máli
nifgraup at gmail.com
nifgraup at gmail.com
Sun Sep 19 19:42:41 BST 2010
Stigar og þrep komu líka fram á fundinum, LUKR á ítarlegt safn af þeim. Ég
skal athuga hvort við fáum þau gögn líka.
Þann 19.9.2010 17:23 skrifaði Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
> Þetta eru nokkuð flott gögn. Er búinn að líta aðeins á þau. Það er
> eitt eigindi sem mér finnst vanta mjög mikið svo þetta nýtist í
> hjólavefsjána, þ.e. staðsetning stiga og þrepa. Skoðaði allavega þá
> stiga sem eru nálægt mér og sá ekki í eigindalistanum að það sé skráð
> þar inn. Þetta eru sennilega bara miðlínur göngustíga sem búið er að
> afhenda okkur. Það er spurning hvort þessar upplýsingar hangi á
> einhverjum öðrum gagnalögum sem við höfum ekki enn aðgang að.
> Ég sé að Hnitavörpunarmálið er leyst. Allavega lenda hlutirnir á
> réttum stöðum hjá mér.
> Það er samt ljóst að það er mikil vinna framundan við að koma þessum
> gögnum inn í osm gagnagrunninn. Endilega látið okkur á listanum vita
> hvernig við getum best orðið að liði.
> 2010/9/18 Ævar Arnfjörð Bjarmason avarab at gmail.com>:
> > Hér er smá uppfærsla á LUKR + OpenStreetMap málinu, ég sendi þetta á
> > OpenStreetMap póstlistann fyrir Ísland, Pálma hjá Reykjavík og á
> > nokkra aðra:
> >
> > Björgvin Ragnarsson tók við diski með LUKR gögnum í dag sem við erum
> > með leyfi til að nota í OpenStreetMap.
> >
> > Það var líka ritað um þetta í dagbók borgarstjóra:
> > http://www.facebook.com/dagbok.borgarstjora (kann einhver að tengja
> > *bara* í viðkomandi þráð þarna á Facebook?)
> >
> > Hérna eru gögnin eins og þau komu frá borginni:
> >
> > http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18
> >
> > Og hérna er conversion á þeim í WGS84 sem *virkaði ekki*:
> >
> >
> http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18/raw/convert/gonguleidir_LUKR_170910-wgs84.osm
> >
> > Ég breytti hnitunum úr ISNET93 í WGS84. En þetta er líkast til í
> > sérhnitakerfi sem LUKR notar, ég veit ekki hvernig á að breyta því
> > almennilega, en það fylgir með gonguleidir_LUKR_170910.prj skrá með
> > vörpuninni. Það þarf bara að tala rétt við gdal/proj4 til að fá þetta
> > í gegn, aðstoð með það velkomin.
> >
> > En það er hægt að skoða þessa OSM skrá í td JOSM og sjá circa
> > hvernig þetta lítur út.
> >
> > Þessi gögn eru við fyrstu skoðun bara stígar og gangstéttir í
> > Reykjavík, ss engir bílvegir, byggingar og annað. Ég veit ekki
> > hvernig þessar umræður fóru hjá borginni/LUKR með það hvaða hluta af
> > þessum gögnum við getum fengið (bætti Pálma hjá Reykjavík á CC),
> > ss hvort það sé um það að ræða að við fáum stærri hluta af
> > grunninum.
> >
> > Það væri mun betra fyrir almenna notkun á LUKR gögnum bæði fyrir okkur
> > og aðra ef þetta væri stærri hluti af grunninum. Það er svoldið vesen
> > að sameina OSM og LUKR gögnin hjá okkur ef þetta eru bara gangstéttir,
> > því við þurfum þá að klæða þá utan um vegi sem eru þegar til.
> >
> > Svo þarf líka að spá í hvernig við ætlum að uppfæra þessi gögn ef og
> > þegar þau fara inn. Það væri leiðinlegt að setja þetta inn á þann máta
> > að við endum með úrelt gögn eftir 1 ár.
> >
> > Svo er annað, ég fæ ekki betur séð en að skv. þessari yfirlýsingu sem
> > var skrifað undir:
> >
> >
> http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18/blob/convert/Scan.JPG
> >
> > Sé ósamhæf frjálsum leyfum eins og OpenStreetMap er undir, því þarna
> > er nefnt að niðurfelling gjalds sé bundið við OpenStreetMap
> > verkefnið. En þar sem OpenStreetMap er að búa til frjálsan grunn sem
> > hver sem er má nota í tengslum við hvaða verkefni sem er.
> >
> > Svo er líka spurning hvort með ODbL leyfinu sem OpenStreetMap er að
> > fara nota að það sé ekki hægt að koma því þannig fyrir að LUKR og
> > aðrir geti svo tekið þessi gögn aftur út úr OSM eftir einhverjar
> > breytingar og notað þau.
> >
> > Einfaldasta lausnin á öllum þessum leyfismálum væri að fá einhvern sem
> > hefur umboð til að gefa okkur gögnin til að skrá sig á
> > openstreetmap.org, samþykkja "contributor terms" skilmálana, og hlaða
> > inn gögnum. Þessir skilmálar sjást hérna:
> >
> > http://www.osmfoundation.org/wiki/License/Contributor_Terms
> >
> > Og voru nýlega skrifaðir af lögfræðingum á vegum OSM einmitt fyrir
> > svona aðstæður.
> >
> > Svona í lokin: Það er margt sem þarf að gera og laga, og þá kannski
> > helst samkiptin á milli okkar allra. Allt-í-allt er þetta alveg
> > frábært framtak hjá Reykjavíkurborg og LUKR sem ég vona að heppnist
> > sem best.
> >
> > Vonandi náum við að koma þessu öllu í gegn þannig að allir málsaðilar
> > hagnist á þessu, og að þetta verði fordæmisgefandi og ryðji veginn
> > fyrir opin gögn á Íslandi.
> >
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20100919/0798b9fc/attachment.html>
More information about the Talk-is
mailing list