[Talk-is] Nesið er Stærra!

Thorir Jonsson thorirmar at gmail.com
Mon Aug 15 14:38:27 BST 2011


Hér er svar frá mér frá því á laugardaginn sem ég óvart vistaði í stað þess
að senda á listann:

Sælir félagar.

Ég er sammála Morten og Pjetri, við þurfum að skoða þessi mál með
gangstéttar, göngu- og hjólastíga og ákveða hvernig við viljum að þeir séu
merktir.  Hér á landi eru lang flestir stígar bæði fyrir gangandi og
hjólandi og því erfitt að átta sig á því hvernig eigi að merkja þá.
Sumstaðar eru aðskildar reinar fyrir hjólandi og gangandi annarsstaðar eru
engar merkingar.

Ég hef hingað til merkt hjólastíga sem highway=cycleway og blandaða hjóla-
og göngustíga og gangstéttar sem highway=footway, og bicycle=yes.

Hafið þið einhverjar betri tillögur?  Hvað með tengingar yfir götur og
gatnamót?

Kv. Þórir Már


2011/8/15 Baldvin Hansson <baldvin at rogg.is>

> >#2
> >Mörg hús í Lambastaðahverfi eiga sér nöfn auk númera frá því í den.
> >Auðvitað á maður að merkja þetta líka eða hvað?
>
> Mér finnst ástæða til að merkja bæði. En það er bara mín persónulega
> skoðun.
> Hef ekki skoðað hvernig þetta er almennt gert þar sem sambærilegar aðstæður
> eru uppi, t.d. í öðrum löndum.
>
> >#3
> >Ég var að duglegur í smá-stund við að setja inn gangstíga og gangstéttir.
> >Komst svo að raun um að þetta ruglar rútureikninga forrita osmand,
> navit...
>
> Mér hefur sýnst að þegar verið er að henda út eldri gögnum og nota í
> staðinn
> LUKR gögnin þá verði einfaldlega að hafa í huga að það þarf að tengja
> stígana við göturnar hvar sem almennt má telja að "rétt" sé að fara á og af
> stígunum. Ég skoðaði þetta aðeins í kringum Ferjuvog í Reykjavík t.d. þar
> sem mér sýnist eldri gögn hafa verið þokkalega tengd en ný gögn alls ekki.
> Þetta býr til eyjur af stígum sem rútunin (með tilliti til hjólreiða t.d.)
> tekur aldrei inn í myndina og niðurstaðan verður víða fjarri því sem best
> gæti orðið.
>
> Getur verið að það sé til betri leið, en mér sýnist einfaldlega verða að
> tengja stígana gatnakerfinu á viðeigandi stöðum. En þá fæst líka ágætis
> virkni á þetta.
>
> >Komst einnig að raun um að reglan í OSM er:
> >       "Ekki vera að flækja málið með gangstéttum"
>
> Það er reyndar sjónarmið, finnst mér, að á meðan við erum enn ekki komin
> inn
> með allar helstu götur almennt, þá sé kannski ástæða til að láta vera að
> merkja allar gangstéttar meðfram öllum vegum sem nú eru komnir inn.
> Vinnunni
> væri betur varið í að þétta veganetið og auka við aðrar staðarupplýsingar á
> svæðum þar sem enn er mikið óunnið. En hins vegar finnst mér alltaf ástæða
> til að líta á stíga sem liggja aðskildir frá vegum þannig að þá eigi að
> kortleggja líkt og vegina, jöfnum höndum (eins og stíg meðfram
> Suðurlandsbraut t.d.).
>
> Þegar einstaklingur lítur á kortið og skoðar hvaða leið hann getur valið á
> milli tveggja staða (óháð því svo hvað sjálfvirk rútun myndi gera í slíku
> tilfelli) þá er okkur eðlislægt að draga þá ályktun að meðfram götum á
> Íslandi eru gangstéttar og því óþarfi kannski að kortið sýni þær
> sérstaklega
> til að teljast vel nothæft. En hins vegar hjálpa stígar sem kortið sýnir
> einstaklingnum við að velja leið í slíkum tilfellum.
>
> mbk,
> Baldvin
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20110815/0943b5c2/attachment.html>


More information about the Talk-is mailing list