[Talk-is] Bakka með breytingu sem rauf tengingu stíga ?

Svavar Kjarrval svavar at kjarrval.is
Mon May 9 17:00:20 BST 2011


Hæ.

Þetta vandamál er hálfgert mér að kenna þar sem ég hef verið að stroka 
út stíga sem tengjast við enda gatna við yfirferð á LUKR stígum og það 
veldur greinilega vandræðum fyrir leiðarvélina þar sem tengingin er 
rofin við enda gatna.

Ég skal fara í að laga þetta fyrir hverfin sem ég hef unnið með. 
Hjólavefsjáin er samt að nota gömul gögn eins og sjá má af þeirri 
staðreynd að Grafarvogurinn og 104 Reykjavík eru löngu búin hvað stígana 
varðar en samt koma þeir ekki fram þar. Ef vandamálið er einnig þar er 
þetta einnig almennt vandamál með leiðarvélina og ekki bara í því sem ég 
gerði.

Gæturðu annars komið með dæmi svo við getum vandamálagreint þetta betur?

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 09/05/11 15:12, Morten Lange wrote:
> Sæl
>
> Ég hefði át að kveikja á perunni fyrr, en átakið Hjólað í vinnuna ytir 
> eftir mér að  skoða betur  hvernig hjolacefsja.is virkar.
> "Rötunarvélin" virkar núna nánast ekki, amk í Reylkjavík.
> Kerfið sér að stígar séu eylönd, enda eru stíganir skilgreindir þannig 
> í LUKR.
>
> Mér fyndist betra að hafa bæði inni, þangað til búið séw að tengja 
> saman LUKR-stígana.
> Nema mjög veigamikill rök hniga að því að gera það ekki. ( Eða ef 
> vænta megi góða tengingu stíga, og gangstétta  innan fárra daga )
>
> --
> Regards / Kvedja
> Morten Lange, Reykjavík
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



More information about the Talk-is mailing list