[Talk-is] Ferðamennska og POI upplýsingar
Jóhannes Birgir Jensson
joi at betra.is
Mon Sep 30 13:28:09 UTC 2013
OSM-félag er gjörsamlega málið, okkur vantar einhvers konar formlegan
stimpil, hingað til hefur maður bara geta kynnt sig sem sjálboðaliða og
áhugamann um OSM í þeim erindum sem maður sendir tengdu því.
Varðandi POI þá er ég sammála að það er gott að hafa fleiri, spurning
hvort að ýmis samtök hafi ekki að geyma þvílíkar upplýsingar nú þegar,
félög kaupmanna í ýmsum fögum eða annað. Það gæti tekið tíma að þræða
vefi eða hringja til að fá upp opnunartíma.
Á hvaða sniði er opnunartíminn svo, það hefur mér sýnst bara vera
textasvæði með hentistefnu, allt á ensku?
Er ekki málið að allar verslanir séu merktar sem POI (en ekki area?).
--Jói
Þann 30.09.2013 12:21, Svavar Kjarrval reit:
> Hæ.
>
> Nú var ég að koma frá útlöndum (nánar tiltekið Búdapest) og var
> vopnaður
> OSM korti af svæðinu í OsmAnd. Nokkrum sinnum í ferðinni tók ég eftir
> því að það hefði verið afar gagnlegt ef það væru fleiri POI (Points
> of
> Interest) upplýsingar fyrir nágrennið og einnig um opnunartíma
> staðanna.
> Síðan komu upp nokkur skipti þar sem ég var ánægður með að geta
> dregið
> fram farsímann, kveikt á OsmAnd og látið það vísa mér aftur leiðina
> að
> hótelinu (sem ég hafði sett í favourites); sparaði mikinn tíma. Ef ég
> hefði neyðst til að nota Google Maps hefði ég þurft að kveikja á
> mobile
> data í símanum með tilheyrandi kostnaði.
>
> Ef við berum Búdapest saman við Reykjavík er augljóst að miðborg
> Reykjavíkur er með álíka þétta skráningu af POI upplýsingum og
> miðborg
> Búdapest en miklu meira af húslínum; þó auðvitað mætti bera upp þau
> rök
> að miðborg Búdapest er miklu stærri og loftmyndirnar þar eru í lægri
> upplausn. En auðvitað væri frábært að gera betur. Því legg ég til að
> við
> förum í söfnunarátak í vetur til að auka við POI safnið okkar og
> einnig
> yfirfara þá POI sem þegar eru komnir inn. Við þyrftum þá að hittast
> til
> að ræða hvernig best væri að standa að söfnuninni og hvernig skrá
> eigi
> afraksturinn.
>
> Á hverju ári kemur mikill straumur ferðafólks sem veit (nánast)
> ekkert
> um nágrennið sem það er statt í hverju sinni, t.d. um næstu opnu
> verslun
> og veitingastað. Þá væri tilvalið að hjálpa þeim með því að veita því
> aðgang að uppfærðum kortagrunni sem ekki þarf gagnaáskrift til að
> nota.
> Aldrei að vita hvort það sé mögulegt að fá ferðaþjónustuaðilana til
> að
> aðstoða okkur, sérstaklega hvað varðar þá staði sem hafa enga eða of
> fáa
> virka OSMara. Tekið yrði samt meira mark á svona samstarfsbeiðnum ef
> það
> væri til lögformlegt félag í kringum OSM á Íslandi.
>
> Ættum við að kalla saman skipulagshitting fyrir POI söfnunarátak sem
> ætti sér stað nú í vetur?
> Hvað finnst ykkur um að láta verða af því að stofna formlegt félag í
> kringum OSM hér á landi? Þess vegna stofna það í október og með
> einföldum samþykktum.
>
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
More information about the Talk-is
mailing list