[Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi

Jóhannes Birgir Jensson joi at betra.is
Tue Aug 12 19:33:54 UTC 2014


Já ég held, að svo stöddu, að þetta sé besta lausnin. Pössum auðvitað 
upp á að allir sértækir hjólastígar séu merktir inn sérstaklega.

http://cycle.travel/map er nýtt dæmi með rútun, þeir hafa ekki sett 
Ísland inn en það ætti að vera auðvelt - ég ætlaði að hafa samband aftur 
við þá þegar höfuðborgarsvæðið væri orðið aðeins betra.

Var að prófa hvernig rútunin virkar hjá þeim með því að velja tvo staði 
á kortinu, fór fyrstu beygjurnar á hjólastíg, svo vísað á umferðargötu, 
aftur á hjólastíg, götu og endaði á hjólastíg.

--Jói


Þann 12.8.2014 15:31, skrifaði Arni Davidsson:
> Takk fyrir þetta.
>
> Er lausnin þá að láta hjólaleiðir liggja um vegi og um sérstaka 
> hjólastíga en ef slíkar leiðir eru ekki finnanlegar þá er sett 
> bicycle=yes á foot path líka til að tengja?
>
> Ég sendi póst á Ride the city og spurði hversu oft þeir uppfæra gögnin.
>
> Er hægt að benda á önnur Open street map kort sem uppfæra oftar en 
> Ride the city og hafa svipaða notkunarmöguleika.
> http://openrouteservice.org/?lang=en er eitt en er ekki alveg jafn 
> liðlegt að færa upphafs- og endastað.
>
> kveðja
> Árni
>
>
>
>
>
>
>
> 2014-08-11 19:25 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is 
> <mailto:joi at betra.is>>:
>
>     Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar RideTheCity
>     uppfærir sig sést að mikið af gangstéttum hverfa sem hjólastígar.
>
>     Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka
>     hjólaleiðir (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést betur á
>     OpenCycleMap sem uppfærir kortið vikulega frá OSM. Nýjar leiðir
>     frá mér þarna eru Kópavogsstígur, Kársnesstígur og svo
>     Elliðaárdalsstígarnir.
>
>     http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
>
>     Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum foot path
>     og svo bætum við þeim á það sem við teldum vera hjólastíga, ekki
>     gangstéttir nema þær geta hins vegar verið hluti hjólaleiða.
>
>     Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski að
>     það var eiginlega allt í bláum strikum á öllum gangstéttum sem
>     flækti málin frekar en einfaldaði.
>
>     Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til fyrir
>     OSM, þar sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að hjálpa OSM að
>     nálgast betur leiðir. Það verður enginn svikinn af þessum
>     fyrirlestri og tólið sem þeir benda á þar svínvirkar, ég var að
>     prófa það. http://stateofthemap.us/session/slide/
>
>     Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna, til
>     dæmis rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór Jaðarinn
>     sagði hann.
>
>     Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru til
>     fleiri tól en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í að updeita.
>
>
>
>     Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:
>>     Sæl
>>
>>     Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á
>>     íslensku.
>>
>>     Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir
>>     gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open street
>>     map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir stíga frá
>>     sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast stígar oft ekki
>>     tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar leiðavalið ekki
>>     vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki tengdir. Það er
>>     fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að tengja stígana. Sjá
>>     t.d. það sem gerist hér að neðan í ridethecity og hvernig gögnin
>>     líta út í openstreetmap og í borgarvefsjá:
>>
>>     http://is.ridethecity.com/#3655489
>>     http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>>     http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>>
>>     Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki verið
>>     hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en spurningin er
>>     hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í að tengja stíga
>>     við götur og yfir götur þar sem um þverun er að ræða. Eins og þið
>>     sjáið í Hátúni er fullt af þverunum og meira að segja þveranir á
>>     gangbrautarljósum á Laugavegi koma ekki fram í Openstreetmap.
>>
>>     Einhverjar snjalla hugmyndir?
>>
>>     kveðja
>>     Árni Davíðsson
>>
>>
>>
>>     -- 
>>     Árni Davíðsson
>>     arnid65 at gmail.com <mailto:arnid65 at gmail.com>
>>
>>
>>     _______________________________________________
>>     Talk-is mailing list
>>     Talk-is at openstreetmap.org  <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>>     https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>     _______________________________________________
>     Talk-is mailing list
>     Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>     https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
>
> -- 
> Árni Davíðsson
> arnid65 at gmail.com <mailto:arnid65 at gmail.com>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20140812/bbb03e56/attachment-0001.html>


More information about the Talk-is mailing list