[Talk-is] OpenStreetMap og Fjallabyggð

Ævar Arnfjörð Bjarmason avarab at gmail.com
Sat Oct 4 19:00:32 BST 2008


Sæl Ingibjörg, ég talaði við þig í dag á sjávarútvegssýningunni í dag
um OpenStreetMap, hérna eru tveir tenglar í verkefnið:

Kortið: http://openstreetmap.org/
Wiki síða: http://wiki.openstreetmap.org/index.php/Main_Page

Það er líka undirverkefni fyrir Ísland og samsvarandi póstlisti:

http://wiki.openstreetmap.org/index.php/WikiProject_Iceland
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Það væri mjög gott að öll frekari samskipti varðandi aðgang
OpenStreetMap (og annara) að aðalskipulagi og öðrum kortagögnum
Fjallabyggðar færu fram á talk-.is póstlistanum, bæði til að við eigum
opinbera skjalaslóð af þessum samskiptum og svo aðrir áhugasamir geti
tekið þátt.

Varðandi leyfis- og höfundaréttarmál er allt efni á OpenStreetMap
gefið út undir Creative Commons Attribution-Share Alike 2.0 leyfinu
sem tryggir hverjum sem er afnot af gagnasafninu auk rétts til að
deila því áfrám svo lengi sem höfunda er getið og efnið er áfrám gefið
undir sama leyfi, hægt er að lesa allt leyfið hér:
http://creativecommons.org/licenses/by-sa/2.0/

Til þess að OSM verkefnið geti notað gögn frá fjallabyggð þyrfti
rétthafi eða rétthafar fyrir þeim (t.d. fulltrúi bæjarstjórnar ef
bærinn er leyfishafi) að skrifa upp á að gögnin megi nota undir þessu
leyfi svo hægt sé að nota þau til kortagerðar.

Þegar það er komið er það praktískt vandamál hvernig við notum hver
þau gögn sem þið egið til að teikna upp kort í OSM grunninum og er það
eitthvað sem eflaust er hægt að leysa á einfaldan hátt enda er OSM
þegar að nota mikið af gögnum frá hinum ýmsu stöðum.


More information about the Talk-is mailing list