[Talk-is] Vallar- og Helluhverfi í Hafnarfirði

Jóna Þórunn Ragnarsdóttir hrekkjalomur at gmail.com
Sun Dec 27 00:37:55 GMT 2009


Ég nota Garmin Nüvi og það virkar bara fínt, amk. hef ég ekki rekið mig
á stóra galla við það tæki. Ég þarf ekki auka forrit til að nálgast
punktana, tengi bara USB-snúruna við tölvuna (Ubuntu) og ekkert vesen.
Tækið mitt er hægt að stilla á nákvæmni; hvort sem maður er fótgangandi,
á hjóli eða bílandi og það virkar vel.

Annars hef ég litla reynslu af öðrum tækjum.

Kv. Jóna Þórunn.

On Sun, 2009-12-27 at 00:23 +0000, Christoph L. Hess wrote:

> GPS tæki: held sé best að kaupa Garmin GPS tæki (þetta á ekki að vera 
> auglysing...).
> 
> ég er að nota Garmin etrax Vista HCx (kostar um 40.000 ISK hjá elko) og 
> er mjög ánægð. Þetta er svona GPS tæki fyrir gangandi fólk en virkar 
> jafnvel í bílnum, en ekki eins sog svona sérstakt GPS-tæki fyrir bíla 
> með stóran skjár og leiðarútreikning og "talar" ekki. Mjög auðvelt að 
> safna punktur og setja á OSM.
> 
> En ég veit ekki hvort svona Garmin nüvi bíla-GPS-tæki getur safnað 
> punktur? þú þarfst auka software, en samt er það ekki alveg gott og gæti 
> verið að virki ekki 
> (http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Garmin/N%C3%BCvi_series).
> 
> Vonandi íslenskan min var skiljanleg... :-)
> 
> Gleðileg jól
>      Christoph
> 
> Am 25.12.2009 22:14, schrieb Svavar Lúthersson:
> > Hæ.
> >
> > Ég er nokkuð nýr á þessum póstlista en frétti þó af OSM fyrir eitthvað
> > um ári síðan þegar ég reyndi að redda ókeypis korti á Garmin tækið mitt.
> > Ævar rifjaði upp kynni mín af OSM verkefninu þegar hann kom með
> > tilkynningu um gengi þess síðastliðið ár á FSFÍ póstlistann.n a Stuttu
> > eftir það nefndi ég á sama póstlista að ég myndi glaður redda punktum ef
> > ég fengi lánað tilsvarandi tæki. Baldvin hjá Rögg stökk á það boð og
> > sótti ég tækið til hans svo ég gæti safnað punktum yfir eina helgi. Þar
> > sem ég gat ekki tekið þá úr tækinu sendi hann mér punktana og setti ég
> > þá inn með hjálp JOSM. Það ferli tók enga stund miðað við þann tíma sem
> > það tók að safna þeim.
> >
> > Reynslan var nokkuð dýrmæt þar sem ég bæði safnaði punktum fyrir OSM og
> > kynntist nágrenninu betur (í sumum tilvikum rifjaði ég þau upp).
> > Nágrennið sem um ræðir er Vallarhverfið í Hafnarfirði ásamt
> > Helluhverfinu (iðnaðarhverfi) en þið ættuð að geta séð afraksturinn á
> > OSM vefnum. Í einhverjum tilvikum þurfti ég að leiðrétta punkta en í
> > langflestum tilvikum bætti ég þeim við. Því miður skráði ég ekki alltaf
> > hvað göturnar hétu svo að sumar þeirra eru nafnlausar þessa stundina.
> > Einnig yfirsást mér nokkrar götur en ég setti þær á OSM bugs. Ef einhver
> > hefur tillögur um það sem mætti fara betur hjá mér er það velkomið.
> >
> > Það væri betra ef ég þyrfti ekki alltaf að fá tæki að láni og langar mig
> > því að kaupa mitt eigið tæki punktasöfnunartæki. Það væri betra upp á að
> > geta safnað punktum án mikils fyrirvara og í smærri skömmtum. Review
> > listinn á OSM er (því miður) alltof stór og torlesinn svo ég efast um að
> > ég muni nokkurn tímann getað notað hann til að finna hentugt tæki. Ég
> > væri þakklátur ef þið getið bent á ákveðið tæki sem ég ætti að geta
> > notað hvort sem það er í bíl eða fótgangandi. Það má alveg kosta nokkra
> > þúsundkalla og þarf ekki að vera ódýrasta tækið á markaðnum (þó ekki of
> > dýrt).
> >
> > Það er mikið verk fyrir höndum í Hafnarfirðinum þar sem það vantar mikið
> > af götum. Sem Hafnfirðingi sárnar mér að sjá götuskortinn í Hafnarfirði
> > og langar mig að bæta úr því sem fyrst. Bara svo þið fáið nasaþef af því
> > sem þarf að laga er hér grófur listi.
> >
> > Vantar í Hafnarfirði:
> > * Góður hluti af Hvömmunum.
> > * Götur hér og þar í Holtinu.
> > * Götur hjá suðurhluta hafnarinnar (Suðurhöfn).
> > * Nokkuð margar götur sunnan Lækjargötu.
> > * Góður hluti gatnanna sem liggja út frá Hlíðarbergi (afgangurinn af
> > Setberginu virðist vera nokkuð ítarlegur).
> > * Vantar götur í miðbænum.
> > * Vantar mikið af götum í Hraununum vestan Fjarðarhrauns.
> > * "Gamli bærinn" að mestu ókortlagður.
> >
> > Vantar í nágrenni Hafnarfjarðar:
> > * Ýmislegt milli Hafnarfjarðar og Álftaness (vegir, sveitabæir o.s.frv.)
> > * Ýmsir bæir á Álftanesinu (aðallega þeir sem eru að Suðurnesvegi og
> > Norðurnesvegi).
> > * Götur hjá Stígunum á Álftanesi ásamt tilheyrandi sveitabæjum.
> > * Eiginlega allt Ásahverfið í Garðabæ.
> >
> > Ef ég kemst ekki í þetta eða einhver vill hjálpa mér með þetta, þá hafið
> > þið allavega listann.
> >
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20091227/deb97937/attachment.html>


More information about the Talk-is mailing list