[Talk-is] Vallarheiði komin á kortið (að hluta til)
Thorir Jonsson
thorirmar at gmail.com
Sun Jan 11 15:29:11 GMT 2009
Ég fékk mér bíltúr um Vallarheiði (nýja íbúðabyggðin á Miðnesheiðinni,
þar sem varnarliðið var áður) á nýjársdag og kom því svo loks í verk
að færa þetta inn á kortið í gær. Árangurinn má sjá hér:
http://www.informationfreeway.org/?lat=63.968677865852655&lon=-22.57134004056163&zoom=14&layers=B0000F000F
Það vantar slatta af götunöfnun þarna, að hluta til vegna þess að ég
hef gleymt að taka myndir af þeim, en líka að stórum hluta vegna þess
að göturnar eru ómerktar. Eins held ég að það vannti ennþá slatta af
götum þarna, enda er svæðið mun stærra en ég hafði gert mér grein
fyrir, ég hafði hreinlega ekki tíma til að gera meira þennan daginn.
Það þarf eflaust líka að athuga eitthvað flokkunina á götunum hjá mér.
Ég merkti inn mikið af þeim sem highway=residential og eflaust
eitthvað af því sem má endurskoða (það borgar sig ekki að bíða með að
færa inn það sem maður hefur loggað með gps tækinu).
Þess má svo til gamans geta að þetta er fyrsta svæðið (mér vitanlega)
á Íslandi, þar sem við erum með betri kort en t.d. map24.is og ja.is
Bestu kveðjur frá Kaupmannahöfn
Þórir Már
More information about the Talk-is
mailing list