[Talk-is] Vallarheiði komin á kortið (að hluta til)

Thorir Jonsson thorirmar at gmail.com
Sun Jan 11 18:56:35 GMT 2009


2009/1/11 Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
> 2009/1/11 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
>> 2009/1/11 Thorir Jonsson <thorirmar at gmail.com>:
>>> Ég fékk mér bíltúr um Vallarheiði (nýja íbúðabyggðin á Miðnesheiðinni,
>>> þar sem varnarliðið var áður) á nýjársdag og kom því svo loks í verk
>>> að færa þetta inn á kortið í gær.  Árangurinn má sjá hér:
>>> http://www.informationfreeway.org/?lat=63.968677865852655&lon=-22.57134004056163&zoom=14&layers=B0000F000F
>>
>> Frábært, ég merkti það sem landuse=residential í stað
>> landuse=commercial. Bjóst við að það væri réttara.

Flott er, ég er lítið sem ekkert byrjaður að skoða landuse lyklana, og
því gerði ég ekkert annað við þetta en að hliðra til nokkrum punktum
svo þetta passaði aðeins betur utan um svæðið.

>>
>>> Það vantar slatta af götunöfnun þarna, að hluta til vegna þess að ég
>>> hef gleymt að taka myndir af þeim, en líka að stórum hluta vegna þess
>>> að göturnar eru ómerktar.  Eins held ég að það vannti ennþá slatta af
>>> götum þarna, enda er svæðið mun stærra en ég hafði gert mér grein
>>> fyrir, ég hafði hreinlega ekki tíma til að gera meira þennan daginn.
>>> Það þarf eflaust líka að athuga eitthvað flokkunina á götunum hjá mér.
>>>  Ég merkti inn mikið af þeim sem highway=residential og eflaust
>>> eitthvað af því sem má endurskoða (það borgar sig ekki að bíða með að
>>> færa inn það sem maður hefur loggað með gps tækinu).
>>
>> Svo getur verið að Bandaríski sjóherinn eigi kort af svæðinu sem þeir
>> gerðu, spurning annars hvert sé best að snúa sér í þeim efnum.
>
> Það myndi vissulega hjálpa að hafa Bandarískt kort af svæðinu til að
> koma götunum á kortið en það myndi ekki hjálpa við að nafngreina
> göturnar þar sem að nöfnunum var breytt eftir að Reykjanesbær tók við
> svæðinu.

Ég veit ekki til þess að götunöfnunum hafi verið neitt breytt.
Göturnar þarna hafa alla tíð, eða síðustu 10 árin að minnsta kosti,
haft bæði íslensk og ensk nöfn.  Hinsvegar er ólíklegt að sjóherinn
hafi neitt nema ensku nöfnin (sem er þó betra en ekki neitt).

> Ég held ég eigi track af nokkrum götum þarna síðan ég keyrði þar í
> sumar. Skal setja hann inn ef ég finn hann.
>
> en annars bara vel gert!
>
>>
>>> Þess má svo til gamans geta að þetta er fyrsta svæðið (mér vitanlega)
>>> á Íslandi, þar sem við erum með betri kort en t.d. map24.is og ja.is
>>
>> Við erum með betri kort á stöku stað, en þetta er eina íbúðarhverfið
>> sem vantar algerlega hjá þeim en er til hjá okkur.


Ég ætla að próf að tala við Flugmálastjórn Keflavíkurflugvelli og
athuga hvort þeir eigi einhver kort sem við getum fengið að nota.  Það
myndi auðvelda mjög að kortleggja tildæmis allt innan
öryggisgirðingarinnar í Keflavík.

Ég setti mig í samband við Flugstoðir síðasta vetur (áður en þessi
póstlisti var stofnaður) og reyndi að fá leifi til að nota gögnin úr
AIP (http://www.caa.is/FlugmalahandbokinAIP).  Þessi beiðini mín setti
allt á annan endan hjá þeim, enda kom það í ljós að höfundarrétturinn
var hvergi skráður og alls óvíst um hver ætti leifi fyrir hverju í
bókinni.  Þetta endaði þó með því að beiðninni var hafnað að svo
stöddu.  Það er spurning hvort maður ætti ekki að reyna að senda þeim
aðra fyrirspurn núna og sjá hvort einhver breyting hafi orðið á
afstöðunni.

Kv. Þórir Már




More information about the Talk-is mailing list