[Talk-is] Póstnúmer inn á kortið

Daníel Gunnarsson danielgunnars at gmail.com
Thu Jan 15 01:06:33 GMT 2009


2009/1/15 Arnar Birgisson <arnarbi at gmail.com>:
> 2009/1/14 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
>> 2009/1/14 Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
>>> Var að hugsa um möguleigar leiðir til að koma póstnúmerum inn á kortið
>>>
>>> Inn á vefsíðu Íslandspósts er m.a. póstnúmera og gatnaskrá
>>> http://www.postur.is/desktopdefault.aspx/tabid-145/
>>>
>>> Um notkunarskilmála  segir
>>> * Leyfð er ótakmörkuð gjaldfrjáls notkun á skránum bæði fyrir
>>> einstaklinga og fyrirtæki.
>>> * Skrárnar má fella inn í tölvukerfi til að stuðla að réttri skráningu
>>> á póstnúmerum, götum og bæjarnöfnum fyrir póstáritanir og
>>> heimilisföng.
>>> * Óheimilt er að setja þessar skrár beinnt upp á eigin vefsíðu til
>>> dreifingar, notið frekar tilvísun á þessa síðu.
>>>
>>> Er þetta nóg til þess að við getum notað skránna sem source fyrir póstnúmer?
>>
>> Ekki eins og þetta er skrifað þarna, þar sem við værum að dreifa þessu
>> óháð þeim og undir leyfi sem hefur ekki þessa tilteknu skilmála.
>
> Ég er sammála því að betra er að fá OK hjá Póstinum, en af hverju ætti
> þetta ekki að vera nóg? Ótakmörkuð notkun er leyfð og skrárnar má
> fella inn í tölvukerfi (OSM myndi teljast tölvukerfi). Það eina sem
> ekki má er að hýsa skrárnar beint (þ.e. óbreyttar).
>
> kv,
> Arnar
>

Ég er sammála þér með þetta. Ef þeir leyfa okkur að fella þetta inn í
okkar tölvukerfi geta þeir varla verið að banna okkur að dreifa
gögnunum með tölvukerfinu undir leyfi að okkar vali.

Ég sé samt annan notkunarmöguleika gagnanna. Skráin ætti að innihalda
allar götur á íslandi. Með því að bera saman osm- og íslandspósts-
gögnin gætum við fengið stöðu verfefnisinns (þ.e. að koma öllum götum
á kortið).

Það gæti verið liður í þessum (hálf)sjálfvirka ferli að birta lista
yfir þær götur sem ekki eru komnar á kortið. Þeir dreifa þessu sem
.xml sem inniheldur gögn sem er dumpað úr gagnagrunninum þeirra kl 07
(nú síðast í gær)

En við ættum nú samt að fá OK frá þeim




More information about the Talk-is mailing list