[Talk-is] Kort af Ásbrú, Reykjanesbæ
Thorir Jonsson
thorirmar at gmail.com
Mon Jun 15 16:52:19 BST 2009
Já og eins þarf að athuga hvort búið sé að færa girðingarnar eins og
gefið er til kynna í pdf skjalinu, eða hvort þær séu enn eins og þær
voru þegar ég kortlagði þetta upphaflega.
Kv. Þórir Már
2009/6/15 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
> 2009/6/14 Thorir Jonsson <thorirmar at gmail.com>:
>> Já og það er rétt að taka það fram að ég hef enn ekki fengið neitt
>> svar frá Óla varðandi þennan GIS gagnagrunn.
>
> Það væri náttúrulega kjörstaða, bæði upp á nákvæmni og að fá önnur
> gögn sem sjást ekki á þessu PDF skjali, t.d. húsnúmer, stíga, lóðamörk
> og annað.
>
> Af kortlagningunni á PDF-inu er það að segja að ég er búinn að rekja
> svo-til allt nema það sem er við flugvöllinn. Ég bætti líka inn
> landuse svæðum byggt á þeim svæðum sem voru í PDF skjalinu. Síðan
> flokkaði ég þau residential/commercial/industrial eftir því hvað ég
> hélt að væri þar á ferð, og notaði þá merkingar á PDF kortinu, stærð
> bygginga, nálægð við skóla o.fl. til hliðsjónar, þannig þetta er
> svoldið ónákvæmt eflaust.
>
> Svo þarf að athuga margt þarna, eru t.d. þessir Háskólagarðar
> virkilega það stórir að þeir ná yfir c.a. 2/5 af íbúðarhúsum þarna,
> eða eru merkingarnar á PDF kortinu villandi?
>
> En skoðið þetta endilega, bætið við meiru og lagið.
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
More information about the Talk-is
mailing list