[Talk-is] Beðni um aðstoð Fisfélagsins við að taka loftmyndir af Höfuðborgarsvæðinu fyrir OpenStreetMap
Þórir Tryggvason
thorir at tmail.is
Sun Sep 20 14:16:55 BST 2009
Þeir eru nú engu að síður mjög duglegir að fljúga hérna yfir Grafarholtið þó
það sé takmarkað... :)
/ÞT
2009/9/19 Ágúst Guðmundsson <ag at teigar.net>
> Flugstjórnarsvið Reykjavíkur sem er um 12km frá miðju Reykjavíkurflugvallar
> er takmörkuð umferð allra flugfara, fisa sérstaklega.
> Auk þess er takmörkun yfir þéttbýl svæði borga og bæja.
>
> Þetta er í reglugerðum.
>
> Kveðja
> Ágúst
>
> -----Original Message-----
> From: Ævar Arnfjörð Bjarmason [mailto:avarab at gmail.com]
> Sent: 19. september 2009 19:29
> To: Ágúst Guðmundsson
> Cc: Arni Geirsson; siggi at isb.is; Hans Kr.. Gudmundsson; elin at skapa.is;
> OpenStreetMap in Iceland
> Subject: Re: Beðni um aðstoð Fisfélagsins við að taka loftmyndir af
> Höfuðborgarsvæðinu fyrir OpenStreetMap
>
> Það vissi ég ekki. En loftmyndir af öðrum svæðum væri gott að hafa líka.
>
> Hvar er hægt að nálgast reglugerðirnar um þetta? Á þetta við um allt byggt
> ból á höfuðborgarsvæðinu eða Reykjavíkurborg sérstaklega?
>
> 2009/9/19 Ágúst Guðmundsson <ag at teigar.net>:
> > Fis mega ekki fljúga yfir höfuðborginni nema með sérstöku leyfi.
> > Það gæti verið áhugi einhverra með önnur svæði en höfuðborgina sjálfa.
> >
> > Kveðja
> > Ágúst
> >
> >
> > -----Original Message-----
> > From: Ævar Arnfjörð Bjarmason [mailto:avarab at gmail.com]
> > Sent: 19. september 2009 17:42
> > To: Ágúst Guðmundsson; Arni Geirsson; siggi at isb.is; Hans Kr..
> > Gudmundsson; elin at skapa.is
> > Cc: OpenStreetMap in Iceland; Postlisti Fisfelags Reykjavikur
> > Subject: Re: Beðni um aðstoð Fisfélagsins við að taka loftmyndir af
> > Höfuðborgarsvæðinu fyrir OpenStreetMap
> >
> > Hérna er dæmi um fólk sem gerði svona í Stratford á Englandi fyrir
> nokkrum dögum síðan:
> >
> > http://milliams.com/verticalitymetre/map.html
> >
> > Hægt er að smella á punktana til að sjá myndir.
> >
> > Hérna er bloggpóstur um málið:
> > http://www.openstreetmap.org/user/Milliams/diary/7969
> >
> > En hvernig er það, er einhver í þessu félagi sem hefur áhuga fyrir þessu
> eða er ég að tala fyrir óháhugasömum eyrum?
> >
> > 2009/9/5 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
> >> Hæ öllsömul.
> >>
> >> Fyrir það fyrsta: Ég sendi þennan póst á þá sem voru listaðir sem
> >> Tengiliðir á fisflug.is sem eru stjórnarmeðlimir félagsins. Ég vissi
> >> ekki betur og það getur vel verið að annar vettvangur eigi betur við.
> >>
> >> En til að koma mér að efninu. Ævar heiti ég og hef samband við ykkur
> >> því að í frítíma mínum legg ég til gögn í OpenStreetMap verkefnið:
> >>
> >> http://is.wikipedia.org/wiki/OpenStreetMap
> >>
> >> OpenStreetMap er frjáls (og ókepis) kortagrunnur af öllum heiminum
> >> (þ.á.m. Íslandi) sem hver sem er getur lagt gögn í og tekið gögn úr
> >> sér að kostnaðarlausu. Við erum komin með ágætis kort af Íslandi
> >> eftir nokkura ára framlög nokkura einstaklinga:
> >>
> >> http://osm.org/go/e1obM--
> >>
> >> hér má t.d. sjá höfuðborgarsvæðið:
> >>
> >> http://osm.org/go/e0UvhIF-
> >>
> >> En af hverju er ég að hafa samband við ykkur?
> >>
> >> OpenStreetMap á Íslandi er nær eingöngu búið til upp úr GPS ferlum.
> >> Þ.e. einhver áhugasamur notandi labbar/hjólar/keyrir um eitthvað
> >> svæði og teiknar kort upp úr ferlunum. Hér má t.d. sjá hvernig
> >> Akranes var teiknað upp:
> >>
> >> http://blip.tv/file/1624794
> >>
> >> En það væri mun fljótlegra að kortleggja ef við værum með loftmyndir,
> >> og það er þar sem þið komið inn.
> >>
> >> Einu loftmyndirnar sem við erum með aðgang að eru Landsat myndir frá
> >> NASA sem eru í það lágri upplausn að við erum heppin að geta teiknað
> >> stór vötn og ár upp úr þeim. Aðrir myndagrunnar eins og t.d. grunnur
> >> Loftmynda.is og SPOT5 grunnur LMÍ kosta morðfjár sem nokkrir
> >> hobbýistar hafa ekki ráð á.
> >>
> >> Því vildi ég kanna hvort áhugi væri hjá einhverjum félagsmanni eða
> >> félagsmönnum ykkar til að fljúga um t.d. Höfuðborgarsvæðið með
> >> einhvern áhugasaman einstakling frá OpenStreetMap verkefninu sem
> >> myndi taka myndir af jörðu niðri. Við svo varpað þessum myndum á
> >> þekkta punkta á jörðu niðri (e. control points) og teiknað upp
> >> nákvæmara kort út frá því.
> >>
> >> Þetta gæti líka verið ykkur til beinna hagsbóta. Við gætum t.d.
> >> kortlagt flugbrautir ykkar (on annað sem fisflugmenn hafa áhuga á)
> >> með mikilli nákvæmni. Sjá t.d. Kastrup flugvöll sem dæmi:
> >>
> >> http://osm.org/go/0NWr7xnO-
> >>
> >> Svo gætið þið hlaðið OSM grunninum á Garmin tækin ykkar og notað
> >> afraksturinn beint:
> >>
> >> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Garmin_map_of_Iceland
> >>
> >
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20090920/a76e4690/attachment.html>
More information about the Talk-is
mailing list