[Talk-is] Nöfn jökla

Ævar Arnfjörð Bjarmason avarab at gmail.com
Sat Sep 26 14:42:44 BST 2009


2009/9/24 Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
> Við höfum fengið jákvæð svör frá Richard.
> Allur textinn er almenningseign og ef ég skil rétt falla hnit örnefna
> líka undir það. Dugir þetta okkur sem leyfi til að nota hnitin og
> örnefnin eða þurfum við að fá það á hreint frá Oddi hver uppruni
> hnitanna er?

Ég held að þetta ætti að nægja. En ef þú hefur orku í að vera eltast
við þetta væri gott að fá þessar upplýsingar.

> Ég ætla að senda annan póst og spyrjast fyrir um þennan GIS gagnagrunn
> sem hann minnist á, upp úr hvaða gögnum þau eru unnin. Er einhver með
> á hreinu hvaða ár loftmyndirnar sem jöklar í grunninum okkar eru
> teiknaðir eftir eru teknar?

Ég veit það ekki nákvæmlega en þetta er allt tekið með Landsat:
http://en.wikipedia.org/wiki/Landsat_program

> En annað tengt mál. Hvernig ber að skrá svona gögn inn í gagnagrunnin
> okkar. Á að teikna skriðjökla sem sér polygon eða á að láta stakan
> punkt með nafni og öðrum eigindum duga á skriðjökla? Ég tók eftir að
> því að Ævar hefur einhverntímann teiknað Sólheimajökul sem sér jökul
> frá Mýrdalsjökli (á kanski að vera svo, ég er enginn sérfræðingur í
> örnefnum jökla). Ættum við kanski að nota tengsl til að tákna þetta
> eða fer þá allt í rugl varðandi renderingar og önnur tól sem notast
> við jöklagögnin? Endilega komið með ykkar skoðanir.

Við þurfum litlar áhyggjur að hafa af því að brjóta eitthvað. Það er
öllum sama um jökla á OSM virðist vera nema okkur, nokkrum norðmönnum
og kannski einhver í ölpunum. Við uppdiktum bara eitthvað gáfulegt
kerfi og notum það.

> Þegar ég hugsa um Vatnajökul þá finnst mér það nafn eiga við allan
> jökulinn, einnig alla skriðjökla sem úr honum ganga. Hverjar eru
> skoðanir ykkar á þessu máli?

Sammála. Gögnin sem við setum inn ættu að endurspegla þetta. Jöklar og
skriðjöklar þeirra ættu að vera merktir þannig að skriðjöklarnir séu
hluti af stóra jöklinum, rétt eins og hverfi eru hluti af borginni sem
þau eru í.

Einnig viljum við líkast til merkja þann hluta af Vatnajökli sem er
ekki nefndur skriðjökull sem aðal hveljökulinn (plateau glacier).




More information about the Talk-is mailing list