[Talk-is] Hæðarlínur fyrir Ísland

Ævar Arnfjörð Bjarmason avarab at gmail.com
Sat Sep 26 23:21:41 BST 2009


2009/9/26 Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
> 2009/6/30 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
>> 2009/6/30 David Jakobsson <rimmugygur at gmail.com>:
>>> Fyrir áhugasama að nota þessa hæðarlínur á kortin sín vil ég benda á þessa
>>> frétt
>>> http://igorbrejc.net/openstreetmap/groundtruth-works-with-srtm-again
>>
>> Ahm, það eru til ágætis hæðarlínur á viewfinerpanoramas en þær er ekki
>> hægt að nota opinberlega þar sem þær eru ófrjálsar og koma frá ýmsum
>> aðilum. T.d. eru hæðarlínurnar þar fyrir Ísland teiknaðar eftir
>> Atlaskortum LMÍ.
>
> Fékkstu það uppgefið frá þeim sem rekur síðuna að hæðarlínurnar voru
> teknar upp úr Atlaskortunum?

Já. Ég var í tölvupóstsamskiptum við Jonathan de Ferranti sem rekur
viewfinderpanoramas.org. Hann rak hæðarlínurnar sínar úr 1:100k
atlaskortunum. Þetta er sýnt á síðunni hans:

http://www.viewfinderpanoramas.org/contours/ISL.zip
http://www.viewfinderpanoramas.org/contours/icelandindex.jpg

>> Hérna er fréttatilkynning varðandi þessi Aster gögn:
>>
>> https://lpdaac.usgs.gov/lpdaac/content/download/3992/20018/file/ASTER%20GDEM%20METI%20and%20NASA%20News%20Release%2029June09.pdf
>>
>> Þar er bara tekið fram að þau séu ókepis, þannig kannski er þetta ekki
>> jafn frjálst og STRM gögnin (sem eru óhöfundaréttvarin). En maður
>> vonar það besta.
>
> Ég er búinn að vera að fylgjast með umræðunni um þessi Aster gögn á
> [OSM-legal-talk]
> http://lists.openstreetmap.org/pipermail/legal-talk/2009-July/002672.html
> og [OSM-talk]
> http://www.mail-archive.com/talk@openstreetmap.org/msg17461.html
>
> Það sem ég var að velta fyrir mér er hvort notkunarskilmálarnir setji
> sömu takmarkanir á afleidd gögn og þeir setja á frumgögnin þ.e. að
> þeim sé bara dreyft innan sömu stofnunar og sótti gögnin. Samanber
> þetta: https://lpdaac.usgs.gov/lpdaac/about/news_archive/thursday_july_30_2009
> þá ætti að vera í lagi að dreyfa hæðarlínum sem unnar eru eftir Aster
> gögnunum þar sem að ekki er hægt að endurheimta frumgögnin.

Ég var að reyna fá þá til að setja eitthvað þessu líkt í skilmálana
sína en ég fæ ekki séð að þeir hafi gert það á þann hátt að við getum
notað þetta.

Annars er ég ekki lögfræðingur. Það er betra að spurja um þetta á
legal-talk þar sem áhugalögfræðingarnir halda sig.




More information about the Talk-is mailing list