[Talk-is] Dæmi úr hjólavefsjá og hugleiðingar um virkni

Björgvin Ragnarsson nifgraup at gmail.com
Thu Aug 26 01:48:07 BST 2010


Ég lagaði aðeins til
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways<http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways#Other_map_features_important_to_cyclists>
og
bætti við punktunum hans Mortens í flýti. Nú þarf bara að skrásetja reglur
sem fólk getur komið sér saman um.

kv.

Björgvin

2010/8/25 Björgvin Ragnarsson <nifgraup at gmail.com>

> (english summary: responding to comments about RideTheCity, explaining OSM
> basics and encurraging people to contribute to the WikiProject
> Iceland/Cycleways, see link below.)
>
> Sæll Morten,
>
> 2010/8/25 Morten Lange <morten7an at yahoo.com>
>
>>>
>> Jamm, það er margt furðulegt sem kerfið stingur upp á og sumt geti tengst
>> því að  ekki sé búið að tengja saman stíga, eða tengja þá við almenna
>> gatnakerfið.  Hef séð nokkur dæmi um slíkt, og hef gert tvær tilraunir til
>> að bæta úr með því að bæta inn "way"  ( norðvesturhorn Kópavogs )
>>
>> Já, þessar furðulegu tillögur eru flestar vegna þess að stígar eru ekki
> tengdir gatnakerfinu.
>
>
>>  Svo er ég ( og margir/flestir  innan stjórnar  Landssamtaka
>> hjólreiðamanna og Íslenska fjallahjólaklúbbsins )  ekki sannfærður um  gildi
>> þess að hengja merkimiðinn "örugg leið" á sumum af  þessum stígum.   Kannski
>> frekar kalla þetta "umferðarminni", "græn" eða "friðsamleg" leið.
>>
>
> Sammála, ég kem þessum tillögum áfram til RideTheCity, brugðist mjög vel
> við mínum athugasemdum hingað til. Ég þróaði ekki vefinn heldur þýddi hann
> bara ásamt Ævari.
>
>
>> Ég vil fyrir alla muni sleppa því að vara alltaf við með rauðu letri og
>> upphrópunarmerki þegar  "Bein leið"  valkosturinn er valin.  Frekar hafa
>> almennan "disclaimer" , því ekki getur vefurinn ábyrgst öryggið á stígunum,
>> með blindhornum, svell, sand, lítill sýnileiki þar sem sem vegur þverar stíg
>> (eða öfugt :-)
>>
>> Alveg sammála, reyni að fá þessu breytt.
>
>
>> Mér finnst líka vanta fleir tegunda í kerfinu. Hægt er ( að einhverju
>> marki, háð reiðhjóli, tilgangi ferðar ofl )  að hjóla á  eftirfarandi sem
>> ekki sé til í kerfinu ( að mig minnir / eftir minni takmarkaðri vitneskju)
>>
>> * mjóir moldarstígar
>> * singeltrack slóðir sem kíkast mest mjóir (moldar)göngustígar, en henta
>> til að hjóla nokkuð hratt ef maður hefur þá út af fyrir sig.
>> * gangstétt sem ekki er upp við opnanlega hurði, né morandi í  útkeyrslum
>> með lélegan sýnileika
>> * hefðbundin borgargangstétt
>> * hjólavísar ( Eitthvað hefur þetta verið merkt á Langholtsvegi, og
>> Einarsnesi ?)
>> * hjólastígur sem er  varasamur
>> * hjólarein sem er varasamur
>> * aðskilin hjólarein / hjólastíg ( gjarnan við hlið gangstéttar)
>> * Sér tegund sem þýðir gangbraut ?  Ljósastýrð og ekki ?  Morandi í 5 til
>> 7 begjum til að komast yfir eða úrtfærslur sem henta vel fyrir hjól með
>> kerrur, fyrir Kristianiuhjól (eða almennara ladcykel upp á dönsku), og
>> snjóruðningstæki ?    Svipað og sér tegund /attribute fyrir jarðgöng/brú.
>
> Og ekki síst :
>> * Venjuleg gata /vegur sem hentar sérstaklega vel til hjólreiða í bland
>> við og í samstarfi við aðra umferð.  Eða reikna með að allir vegir með
>> skiltaðan hámarkshraða undir 50 séu þannig ?
>>
>> Góð athugasemd. Málið með OpenStreetMap er að það er hægt að skrá allt!
> Menn þurfa bara að koma sér saman um hvað hlutirnir eiga að heita. Ég mæli
> með þessum leiðbeiningum:
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Beginners_Guide_1.3
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Beginners_Guide_1.4
>
> Allar þessar nákvæmu upplýsingar þínar er hægt að skrá sem "key-value" tög.
> Hver og einn metur hversu nákvæmlega hann vill skrá. Hér er svo wikisíða til
> að halda utan um samræmingu á hjólaleiða-skráningu fyrir Ísland:
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways . Hún
> hefur ekki verið uppfærð í tvö ár en ég skal reyna að koma henni í betra
> form seinna í kvöld. T.d. setja upp töflu með þessum atriðum þínum og
> hvernig skal tagga. Einnig vil ég hvetja alla hér á póstlistanum til að
> aðstoða.
>
> Svo er það annað hvernig gögnin eru birt. CloudMade býður upp á að búa til
> eigin stíl á kort svo ef þarf þá getum við (eða Reykjavíkurborg sem þykir
> hjólavefsjá áhugavert verkefni) búið til nýjan stíl sem leggur áherslu a
> hjólreiðar í Reykjavík:
> http://developers.cloudmade.com/projects/show/style-editor .
>
>
>>
>> Í framhaldi af síðasta punktinum : Hvernig ákveður kerfið hvort stinga
>> eigi upp á að hjóla eftir akveg / þjóðveg ?   þjóðveg í þéttbyli ?    Er
>> algorithman til ?  Er hún auðskijanleg ?
>>
>>
>> Ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki algórithmann, hann er saminn af
> CloudMade.com og RideTheCity notar hugbúnað frá þeim til að birta kortið og
> reikna og sýna leiðina. Ég ætla að afla mér upplýsinga um hann og skrifa þér
> síðar um það. Ef hann reynist ekki góður er hægt að láta síðuna
> hjólavefsjá.is <http://xn--hjlavefsj-81a4q.is> benda aðra hjólavefsjá en
> RideTheCity sem þó notar gögn frá OSM. Þó efast ég um að hann sé slæmur, við
> þurfum bara að læra hann til að vita hvernig er best að við töggum til að
> nýta hann.
>
>
>> Svo er spurnig hvort ekki ætti að gera ráð fyrir að merkja inn einstefnu,
>> eins og til dæmis varðandi hjólareinina á Hverfisgötu.
>>
>> Það er gert með að bæta við tagginu oneway=yes á veginn, sjá
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Map_Features#Cycleway og
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:oneway .
>
>>
>> OK þessui upptalning hér fyrir ofan er kannski full ítarleg, en
>> hjólaleiðir eru skemmtilega fjölbreyttar og skemmtilega lélegar, enda fæst
>> þeirra hannaðir með samgönguhjólreiða í huga   ;-)
>>
>>
> Ef þessi atriði eru mikilvæg fyrir hjólreiðafólk þá er þetta bara akkúrat
> passleg upptalning. Lélegar hjólaleiðir hins opinbera hljóta að krefjast
> nákvæmari korta.
>
> kv.
>
> Björgvin
>
>
>
>> --
>> Regards / Kvedja
>> Morten Lange, Reykjavík
>>
>> --- On *Wed, 25/8/10, baldvin at baldvin.com <baldvin at baldvin.com>* wrote:
>>
>>
>> From: baldvin at baldvin.com <baldvin at baldvin.com>
>> Subject: [Talk-is] Dæmi úr hjólavefsjá og hugleiðingar um virkni
>> To: "'OpenStreetMap in Iceland'" <talk-is at openstreetmap.org>
>> Date: Wednesday, 25 August, 2010, 12:51
>>
>>
>>  Sæl.
>>
>>
>>
>> Ég prófaði að rúta „leirutangi“ til „barðastaðir“ til að sjá hvað
>> hjólavefsjáin leggur til.
>>
>>
>>
>> Leiðin sem ég valdi var „Öruggari leið“ og ég er að velta fyrir mér hvers
>> vegna kerfið rútar upp á Vesturlandsveg frekar en að fara hjólastígana sem
>> liggja meðfram sjónum.
>>
>>
>>
>> Ég hef verið að bæta inn (ásamt öðrum, vissulega) hjólastígunum í
>> Mosfellsbæ með skipulegum hætti og held að netið þar sé orðið nokkuð gott.
>> En nú langar mig að skoða hvort við getum merkt þessa vegi, hjólastígana
>> annars vegar og Vesturlandsveg hins vegar, eitthvað öðruvísi en þeir eru,
>> til að leggja frekar til „hættuminni“ leiðir s.s. hjólastíga, jafnvel þó þær
>> væru e.t.v. örlítið lengri.
>>
>>
>>
>> Ef einhver hefur eitthvað um þetta að segja eða hefur reynslu af því að
>> tagga með tilliti til öryggis leiðanna eða annað sem við gætum viljað merkja
>> upp vegna hjólavefsjár sérstaklega, þá væri gaman að heyra frá ykkur.
>>
>>
>>
>> Kveðja,
>>
>> Baldvin
>>
>> -----Inline Attachment Follows-----
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org<http://mc/compose?to=Talk-is@openstreetmap.org>
>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20100826/3297b939/attachment.html>


More information about the Talk-is mailing list