[Talk-is] Varðandi merkingar á hjólaleiðum
Ævar Arnfjörð Bjarmason
avarab at gmail.com
Sat Aug 28 10:26:28 BST 2010
2010/8/27 Arni Davidsson <arnid65 at gmail.com>
>
> Varðandi merkingar á hjólaleiðum.
> Á vefnum: http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways
> Ég er sammála merkingu á hjólaleiðum eins og fram kemur í “Suggested rules for cycleways in Reykjavík” Nær allir stígar og gangstéttir eru blandaðir stígar og gangstéttir en ekki sérstakar hjólaleiðir hönnuð með umferð reiðhjóla í huga.
> Ég skil því ekki merkingarnar sem eru á :http://www.opencyclemap.org/ þar sem virðist vera sagt að mjög mikið af stígum séu sérstakir hjólreiðastígar (bláar brotalínur) ef ég skil það rétt.
Þessar merkingar hjá okkur eru í svoldlu rugli, og ég ber örruglega
meiri ábyrgð á þessu rugli en margir aðrir.
Ég fór einhvertíman í gegnum megnið af þessum vegum á
höfuðborgarsvæðinu og endurmerkti þetta eitthvað, en þetta hefur
breyst síðan þá. Það má endilega endurhugsa hvernig á að gera þetta,
og það hefur verið rætt áður t.d. hér:
http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000056.html
Ég veit ekki hvort ég er sammála nokkru sem ég færði fram í þeirri
umræðu ennþá, en sá punktur var í grunninn (og mikið af
höfuðborgarsvæðinu er merkt út frá þessu):
1. Að við merkjum hluti eins og þeir eru "on the ground". Sem er
grunngildi OpenStreetMap (sjá "On the ground rule").
2. Þar að auki, að vegir séu merktir highway=cycleway eftir ákveðnu
óljósu huglægu mati. Það er *engin* opinber flokkun fyrir þessa
vegi sem er vit í, og ef vegirnir eru merktir sem cycleway sjást
þeir á áberandi hátt á kortum eins og OpenCycleMap o.fl.
Í staðin fyrir #2 væri algerlega hægt að sleppa þessu huglæga mati og
merkja basically allt sem highway=path.
Þetta myndi endurspegla lagalega stöðu þessara vega, og forðast þann
bias sem kemur óhjákvæmilega inn þegar verið er að merkja hluti
huglæga, ég er mun hrifnari að þessari pælingu en ég var þegar við
ræddum þetta síðast 2008. Sérstaklega þar sem það hefur komið á daginn
að það eru margar mismunandi hugmyndir um hvað ætti að vera cycleway,
sjá t.d. fossvoginn v.s. Grafarholtið v.s. Mosfellsbæinn.
> Varðandi “Details about cycleways“ tel ég að flokkunin ætti að vera nokkurn vegin svona:
>
> Stígar (útivistarstígar), aðskildir frá akbraut, blönduð umferð gangandi (sem eru í forgangi) og hjólandi.
> Venjulega eru þeir ca. 2,5m breiðir en breiddin er samt misjöfn allt niður í 1,5 m líklega.
> Til stóð að leggja 4 m breiða stíga á höfuðborgarsvæðinu og var það gert t.d. fyrir Blikastaðanes en ekki annar staðar svo ég viti til. Þarf mismunandi flokka af útivistarstígum eftir breidd? Þarf að merkja varasama staði s.s. blindbeygjur/blindhorn, holur eða annað?
> Merking: Tag:highway=path with Tag:bicycle=yes and Tag:foot=yes
Ég held þú þurfir ekki mismunandi flokka eftir breidd, bara
width=<breidd í metrum>.
Blindbeygjur, horn og annað er um að gera að merkja. Gætir t.d. notað
þetta skema:
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/hazard
> Gangstéttir, samsíða akbrautum en aðgreind með kantsteini, blönduð umferð gangandi (sem eru í forgangi) og hjólandi. Á að merkja þær með öðrum hætti en stíga?
Hljómar eins og eitthvað sem er hægt að merkja með auka-taggi,
t.d. kantsteinn=yes eða eitthvað þannig.
> Hjólreiðabraut, merkt með hjólamerki, aðskilin frá akbraut (eins og útivistarstígur), aðeins hjólandi umferð (eða a.m.k. umferð hjólandi í forgangi). Oftast hjólað í gagnstæðar áttir á sömu braut. T.d. Ægissíða.
> Merking Tag:highway=cycleway value=track?? and also have ??Tag:foot=designated ?? and Tag:segregated=yes og líka Tag:surface=paved.
Já, eða í "on the ground" stíl:
highway=path
segregated=yes
foot=designated
bicycle=designated
surface=paved
cycleway:width=1m
footway:width=2m
Eða eitthvað þannig.
> Hjólreiðarein, merkt með hjólamerki, sérrein á akbraut fyrir umferð reiðhjóla, ætluð aðeins hjólandi umferð (eða a.m.k. umferð hjólandi í forgangi). Hjólað í stefnu með umferð. T.d. Hverfisgata. (Athugið samt að Hverfisgata er ekki merkt með akreinalínu og er því í raun ekki sérrein í lagalegum skilningi).
> Merking Merking Tag:highway=cycleway value=lane?? and also have ??Tag:foot=designated ?? and Tag:segregated=yes og líka Tag:surface=paved.
Hljómar eins og cycleway=lane, t.d. er þetta merkt þannig á
Langholtsveginum: http://www.openstreetmap.org/browse/way/5118949
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:cycleway?uselang=is
> Hjólavísar (bike and chevron) á akbraut. Hjólreiðamenn hjóla á akbraut í aksturstefnu með bílum á þeirra akrein en hjólavísamerki sýna aksturstefnu og staðsetningu hjólreiðamanna inna akreinar. Geta verið hluti af markaðri hjólaleið (Local Cycle Network) eins og á Einarsnesi.
> Merking Hvernig er hægt að merkja þá???
Ég veit ekki :)
> Hjólaleiðir skilgreindar (Cycle network). Á að merkja þær inná að einhverju leyti.
Já, það er spurning að merkja þetta opinbera fantasíu-reiðhjólanet
einhvernvegin. En oftast þegar er verið að nota "cycle network" merkir
það *einhverja* séraðstöðu fyrir hjólreiðamenn, það er ekki tilfellið
í Reykjavík t.d. á Nesveginum, sem er bara venjuleg gata, en er merkt
í þetta opinbera hjólanet því einhverjum fannst þurfa einhverja leið
út á Seltjarnarnes.
> Merking ???
> Local cycle network lcn_ref = “ZZ” or lcn = “yes” Various, including London Cycle Network
>
> Hjólaslóðar sem eru hjólaðar t.d. í Heiðmörk og viðar. Á að setja þær inná?
> Merking: Tag:highway=track tracktype=* with Tag:bicycle=yes and Tag:foot=yes
>
>
> Hjólabúðir.
> Vantar
> Kríu í Ármúla 42
> Hjólasprettur Bæjarhrauni 22
> Hjólreiðameistarinn á Nýbýlavegi
Endilega bættu þessum við með svipuuð tögg og t.d. Markið, ættir að
geta gert það tilturulega nákvæmt upp úr minni útfrá núverandi
veganeti, eða eftir GPS.
En til samantektar: Ég er basically sammála því sem Christoph Hess var
að segja á sínum tíma, að við ættum að sleppa því að merkja hluti sem
eru ekki lagalega séð sérhjólabrautir sem highway=cycleway og merkja
basically allt sem highway=path.
Það er mikið til gert í Þýskalandi þar sem lagastaðan er svipuð, og
það er mun einfaldara að kenna fólki að merkja *bara* hluti sem það
sér "on the ground" en að vera spá í stóru myndina.
Ef við viljum eitthvað sér hjólakort sem sýnir ákveðnar leiðir
áberandi er alltaf hægt að gera það út frá gögnunum seinna.
More information about the Talk-is
mailing list