[Talk-is] Varðandi merkingar á hjólaleiðum
Karl Georg
kalli at ekkert.org
Sun Aug 29 09:38:52 BST 2010
Afsakið, pósturinn fór ekki á réttan stað.
Kv.
Kalli
On Aug 29, 2010, at 8:26, Karl Georg <kalli at ekkert.org> wrote:
> Á meðan Routing tólin Gúddera síga taggaða "highway=path" sem hjólaleið þá er það fín skilgreining á milli hjólreiðabrautar og hjólaleiðar í almenna stíga/götu kerfinu. Það hlýtur að vera mikilvægt að setja footway tag á almenna stíga þar sem það á við. Skokkar og göngufólk hljóta að njóta góðs af því.
>
> Ég er frekar sáttur við þessar skilgreiningar á stígum sem fram hafa komið.
> Væri ekki ráð að búa til Presets fyrir þessar skilgreiningar ásamt wikisíðu með ljósmyndum og guidelines af hvernig ætti að tagga leiðirnar.
>
>
> Nöfn á presetin gæti hljómað svona:
> (Ég tek það fram að ég er glænýr notandi og þekki ekki virkni presets fullkomnlega)
>
> Stígur,malbik
> Stígur Möl (gæti átt við heiðmörk og fl útivistarsvæði)
> Hjólreiðabraut
> Gangstéttir
> Hjólreiðarein
> Hjólavísar
>
>
> Persónulega skil ég ekki merkingu orðsins Hjólavísir en það er væntanlega bara orðaforðaskortur hjá mér. Mér dettur í hug "Almenn akbraut" ef að ég túlka þessa skilgreiningu rétt. Er þetta ekki basicly þeir staðir þar sem hjólreiðamenn kjósa eða þurfa að hjóla á götunni?
> Svona reiðhjólaumferð eins og hefur td. stóraukist við Hafnarfjarðarveginn Ásamt ýmissa tenginga á milli annara hjólaleiða í gegnum íbúðargötur, yfir bílastæði, gatnamót og fl.
>
> Er hægt að skilgreina götur sem þegar eru inni sem hjólavísa? Eða eru þetta leiðir sem við ættum að teikna upp á nýtt ? Skiptir það máli þegar það kemur að virkni hjolavefsjáa?
>
>
> það væri ekki vitlaust að finna svo nokkur vel valin aukatögg til að auðvelda áframhaldandi úrvinnslu (td. fyrir hjólavefsjá)
>
> Ég veit ekki hvernig þessar vefsjár sem eru að routa hjólaleiðir skilgreina öryggi leiðanna geta tögg eða stöðluð preset hjápað þar ?
>
> Það væri kanski hægt að gefa leiðunum einkun eftir hversu hjólavænar þær eru (A leið B leið og C leið?). Aðkoma að gatnamótum, bílaumferð, stígabreidd, útsýni og brekkur geta spilað þarna inní.
>
>
>
> 2010/8/28 Ævar Arnfjörð Bjarmason<avarab at gmail.com>
> 2010/8/27 Arni Davidsson <arnid65 at gmail.com>
> >
> > Varðandi merkingar á hjólaleiðum.
> > Á vefnum:http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways
> > Ég er sammála merkingu á hjólaleiðum eins og fram kemur í “Suggested rules for cycleways in Reykjavík” Nær allir stígar og gangstéttir eru blandaðir stígar og gangstéttir en ekki sérstakar hjólaleiðir hönnuð með umferð reiðhjóla í huga.
> > Ég skil því ekki merkingarnar sem eru á :http://www.opencyclemap.org/ þar sem virðist vera sagt að mjög mikið af stígum séu sérstakir hjólreiðastígar (bláar brotalínur) ef ég skil það rétt.
>
> Þessar merkingar hjá okkur eru í svoldlu rugli, og ég ber örruglega
> meiri ábyrgð á þessu rugli en margir aðrir.
>
> Ég fór einhvertíman í gegnum megnið af þessum vegum á
> höfuðborgarsvæðinu og endurmerkti þetta eitthvað, en þetta hefur
> breyst síðan þá. Það má endilega endurhugsa hvernig á að gera þetta,
> og það hefur verið rætt áður t.d. hér:
> http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000056.html
>
> Ég veit ekki hvort ég er sammála nokkru sem ég færði fram í þeirri
> umræðu ennþá, en sá punktur var í grunninn (og mikið af
> höfuðborgarsvæðinu er merkt út frá þessu):
>
> 1. Að við merkjum hluti eins og þeir eru "on the ground". Sem er
> grunngildi OpenStreetMap (sjá "On the ground rule").
>
> 2. Þar að auki, að vegir séu merktir highway=cycleway eftir ákveðnu
> óljósu huglægu mati. Það er *engin* opinber flokkun fyrir þessa
> vegi sem er vit í, og ef vegirnir eru merktir sem cycleway sjást
> þeir á áberandi hátt á kortum eins og OpenCycleMap o.fl.
>
> Í staðin fyrir #2 væri algerlega hægt að sleppa þessu huglæga mati og
> merkja basically allt sem highway=path.
>
> Þetta myndi endurspegla lagalega stöðu þessara vega, og forðast þann
> bias sem kemur óhjákvæmilega inn þegar verið er að merkja hluti
> huglæga, ég er mun hrifnari að þessari pælingu en ég var þegar við
> ræddum þetta síðast 2008. Sérstaklega þar sem það hefur komið á daginn
> að það eru margar mismunandi hugmyndir um hvað ætti að vera cycleway,
> sjá t.d. fossvoginn v.s. Grafarholtið v.s. Mosfellsbæinn.
>
> > Varðandi “Details about cycleways“ tel ég að flokkunin ætti að vera nokkurn vegin svona:
> >
> > Stígar (útivistarstígar), aðskildir frá akbraut, blönduð umferð gangandi (sem eru í forgangi) og hjólandi.
> > Venjulega eru þeir ca. 2,5m breiðir en breiddin er samt misjöfn allt niður í 1,5 m líklega.
> > Til stóð að leggja 4 m breiða stíga á höfuðborgarsvæðinu og var það gert t.d. fyrir Blikastaðanes en ekki annar staðar svo ég viti til. Þarf mismunandi flokka af útivistarstígum eftir breidd? Þarf að merkja varasama staði s.s. blindbeygjur/blindhorn, holur eða annað?
> > Merking: Tag:highway=path with Tag:bicycle=yes and Tag:foot=yes
>
> Ég held þú þurfir ekki mismunandi flokka eftir breidd, bara
> width=<breidd í metrum>.
>
> Blindbeygjur, horn og annað er um að gera að merkja. Gætir t.d. notað
> þetta skema:
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/hazard
>
> > Gangstéttir, samsíða akbrautum en aðgreind með kantsteini, blönduð umferð gangandi (sem eru í forgangi) og hjólandi. Á að merkja þær með öðrum hætti en stíga?
>
> Hljómar eins og eitthvað sem er hægt að merkja með auka-taggi,
> t.d. kantsteinn=yes eða eitthvað þannig.
>
> > Hjólreiðabraut, merkt með hjólamerki, aðskilin frá akbraut (eins og útivistarstígur), aðeins hjólandi umferð (eða a.m.k. umferð hjólandi í forgangi). Oftast hjólað í gagnstæðar áttir á sömu braut. T.d. Ægissíða.
> > Merking Tag:highway=cycleway value=track?? and also have ??Tag:foot=designated ?? and Tag:segregated=yes og líka Tag:surface=paved.
>
> Já, eða í "on the ground" stíl:
>
> highway=path
> segregated=yes
> foot=designated
> bicycle=designated
> surface=paved
> cycleway:width=1m
> footway:width=2m
>
> Eða eitthvað þannig.
>
> > Hjólreiðarein, merkt með hjólamerki, sérrein á akbraut fyrir umferð reiðhjóla, ætluð aðeins hjólandi umferð (eða a.m.k. umferð hjólandi í forgangi). Hjólað í stefnu með umferð. T.d. Hverfisgata. (Athugið samt að Hverfisgata er ekki merkt með akreinalínu og er því í raun ekki sérrein í lagalegum skilningi).
> > Merking Merking Tag:highway=cycleway value=lane?? and also have ??Tag:foot=designated ?? and Tag:segregated=yes og líka Tag:surface=paved.
>
> Hljómar eins og cycleway=lane, t.d. er þetta merkt þannig á
> Langholtsveginum:http://www.openstreetmap.org/browse/way/5118949
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:cycleway?uselang=is
>
> > Hjólavísar (bike and chevron) á akbraut. Hjólreiðamenn hjóla á akbraut í aksturstefnu með bílum á þeirra akrein en hjólavísamerki sýna aksturstefnu og staðsetningu hjólreiðamanna inna akreinar. Geta verið hluti af markaðri hjólaleið (Local Cycle Network) eins og á Einarsnesi.
> > Merking Hvernig er hægt að merkja þá???
>
> Ég veit ekki :)
>
> > Hjólaleiðir skilgreindar (Cycle network). Á að merkja þær inná að einhverju leyti.
>
> Já, það er spurning að merkja þetta opinbera fantasíu-reiðhjólanet
> einhvernvegin. En oftast þegar er verið að nota "cycle network" merkir
> það *einhverja* séraðstöðu fyrir hjólreiðamenn, það er ekki tilfellið
> í Reykjavík t.d. á Nesveginum, sem er bara venjuleg gata, en er merkt
> í þetta opinbera hjólanet því einhverjum fannst þurfa einhverja leið
> út á Seltjarnarnes.
>
> > Merking ???
> > Local cycle network lcn_ref = “ZZ” or lcn = “yes” Various, including London Cycle Network
> >
> > Hjólaslóðar sem eru hjólaðar t.d. í Heiðmörk og viðar. Á að setja þær inná?
> > Merking: Tag:highway=track tracktype=* with Tag:bicycle=yes and Tag:foot=yes
> >
> >
> > Hjólabúðir.
> > Vantar
> > Kríu í Ármúla 42
> > Hjólasprettur Bæjarhrauni 22
> > Hjólreiðameistarinn á Nýbýlavegi
>
> Endilega bættu þessum við með svipuuð tögg og t.d. Markið, ættir að
> geta gert það tilturulega nákvæmt upp úr minni útfrá núverandi
> veganeti, eða eftir GPS.
>
> En til samantektar: Ég er basically sammála því sem Christoph Hess var
> að segja á sínum tíma, að við ættum að sleppa því að merkja hluti sem
> eru ekki lagalega séð sérhjólabrautir sem highway=cycleway og merkja
> basically allt sem highway=path.
>
> Það er mikið til gert í Þýskalandi þar sem lagastaðan er svipuð, og
> það er mun einfaldara að kenna fólki að merkja *bara* hluti sem það
> sér "on the ground" en að vera spá í stóru myndina.
>
> Ef við viljum eitthvað sér hjólakort sem sýnir ákveðnar leiðir
> áberandi er alltaf hægt að gera það út frá gögnunum seinna.
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
> --
> Kveðja,
> Karl Georg
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20100829/7f6d2262/attachment-0001.html>
More information about the Talk-is
mailing list