[Talk-is] Varðandi merkingar á hjólaleiðum

Arni Davidsson arnid65 at gmail.com
Mon Aug 30 01:26:18 BST 2010


2010/8/29 Karl Georg <kalli at ekkert.org>

> Á meðan Routing tólin Gúddera síga taggaða "highway=path" sem hjólaleið þá
> er það fín skilgreining á milli hjólreiðabrautar og hjólaleiðar í almenna
> stíga/götu kerfinu. Það hlýtur að vera mikilvægt að setja footway tag á
> almenna stíga þar sem það á við. Skokkar og göngufólk hljóta að njóta góðs
> af því.
>
> Ég er frekar sáttur við þessar skilgreiningar á stígum sem fram hafa komið.
> Væri ekki ráð að búa til Presets fyrir þessar skilgreiningar ásamt wikisíðu
> með ljósmyndum og guidelines af hvernig ætti að tagga leiðirnar.
>
>
> Nöfn á presetin gæti hljómað svona:
> (Ég tek það fram að ég er glænýr notandi og þekki ekki virkni presets
> fullkomnlega)
>
> Stígur,malbik
> Stígur Möl (gæti átt við heiðmörk og fl útivistarsvæði)
> Hjólreiðabraut
> Gangstéttir
> Hjólreiðarein
> Hjólavísar
>
>
> Persónulega skil ég ekki merkingu orðsins Hjólavísir en það er væntanlega
> bara orðaforðaskortur hjá mér. Mér dettur í hug "Almenn akbraut" ef að ég
> túlka þessa skilgreiningu rétt. Er þetta ekki basicly þeir staðir þar sem
> hjólreiðamenn kjósa eða þurfa að hjóla á götunni?
> Svona reiðhjólaumferð eins og hefur td. stóraukist við Hafnarfjarðarveginn
> Ásamt ýmissa tenginga á milli annara hjólaleiða í gegnum íbúðargötur, yfir
> bílastæði, gatnamót og fl.
>
> Hjólavísar eru útskýrðir hér:
http://www.lhm.is/lhm/pistlar/299-hjr-reykjavr- og hér
http://www.lhm.is/lhm/pistlar/236-hjolavisar-nyjung-a-goetum-reykjavikur
Þeir eru nú komnir á Einarsnesi, Suðurgötu sunnan Hringbrautar, Lanholtsvegi
og Laugarásvegi og nú síðast við Hverfisgötuna í tilraunaverkefni umhverfis-
og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar.


> Er hægt að skilgreina götur sem þegar eru inni sem hjólavísa? Eða eru þetta
> leiðir sem við ættum að teikna upp á nýtt ? Skiptir það máli þegar það kemur
> að virkni hjolavefsjáa?
>
>
> það væri ekki vitlaust að finna svo nokkur vel valin aukatögg til að
> auðvelda áframhaldandi úrvinnslu (td. fyrir hjólavefsjá)
>
> Ég veit ekki hvernig þessar vefsjár sem eru að routa hjólaleiðir skilgreina
> öryggi leiðanna  geta tögg eða stöðluð preset hjápað þar ?
>
> Það væri kanski hægt að gefa leiðunum einkun eftir hversu hjólavænar þær
> eru (A leið B leið og C leið?). Aðkoma að gatnamótum, bílaumferð,
> stígabreidd, útsýni og brekkur geta spilað þarna inní.
>
> Ég útbjó drög að flokkun gatna með tilliti til þæginda til hjólreiða í 6
flokka. Ef hægt væri að tagga götur í flokka A til F eftir því hversu
þægilegt er að hjóla þær  yrði til einskonar gæðaflokkun hjólreiðaleiða
eftir götum. Það væri þá líka hægt að setja einhverja flokkun við
gangstéttir, útivistarstíga, hjólreiðabrautir, hjólreiðareinar og götur með
hjólavísa. Þá mætti líka ímynda sér að hægt væri að flokka leiðirnar eftir
breidd stíga og hættum sem hafa verið færðar innn við þá, s.s. blindhorn,
blindbeygjur, hálkustaði o.s.frv.

Drög að flokkun gatna:

A. flokkur. Þægileg til hjólreiða. Hæg umferð ca. 30 km. Lítil umferð.
Ráðandi staða þægileg. Akrein 3,5 m breið. Dæmi botnlangar.

B. flokkur. Þægileg til hjólreiða en meiri umferð og ráðandi staða
óþægilegri. Hæg umferð ca. 30 km. Meiri umferð. Þarf oft að taka ráðandi
stöðu í umferð vegna aðstæðna (þrengingar, hliðargötur, útkeyrslur,
bílastæði í götu). Akrein 3,5 m breið. Dæmi Hverfisgata.

C. flokkur. Þægileg til hjólreiða en meiri umferð og meiri hraði. Ökuhraði
um 50 km. Breidd götu leyfir víkjandi stöðu hjólreiðamanns og framúrakstur
bíla án þess að þeir fari yfir miðlínu eða þá að umferð er lítil. Akrein
yfir 4,2 m breið. Dæmi Suðurgata sunnan Hringbrautar hæri akrein.
Kársnesbraut í austurátt.

D. flokkur. Minna þægileg til hjólreiða (einkum á annatíma). Ökuhraði um 50
km. Breidd götu leyfir ekki framúrakstur bíla án þess að þeir fari yfir
miðlínu og umferð er nokkuð þétt. Akrein 3,5 m breið. Dæmi Bústaðavegur.

E. flokkur. Þægileg til hjólreiða en hentar frekar þjálfuðum
hjólreiðamönnum. Hröð umferð 60 km og yfir. Bílar geta tekið framúr án þess
að fara yfir akreina línu. Fáar að- og fráreinar og/eða fullnægjandi hönnun
og pláss. Breidd akreinar 4,2-4,8 m eða  fullnægjandi vegöxl eða
öryggissvæði. Dæmi Reykjanesbraut endurbyggð sunnan/vestan Hafnarfjarðar.

F. flokkur. Frekar óþægileg til hjólreiða en getur hentað þjálfuðum
hjólreiðamönnum. Hröð umferð 60 km og yfir. Bílar geta ekki tekið framúr án
þess að fara yfir akreina línu. Margar að- og fráreinar og/eða ekki
fullnægjandi hönnun og pláss. Breidd akreinar 3,5 m og ekki fullnægjandi
vegöxl eða öryggissvæði. Dæmi Miklabraut, Kringlumýrarbraut o.fl.

kveðja
Árni


>
>
> 2010/8/28 Ævar Arnfjörð Bjarmason< <avarab at gmail.com> <avarab at gmail.com><avarab at gmail.com>
> avarab at gmail.com>
>
> 2010/8/27 Arni Davidsson < <arnid65 at gmail.com> <arnid65 at gmail.com><arnid65 at gmail.com>
>> arnid65 at gmail.com>
>> >
>> > Varðandi merkingar á hjólaleiðum.
>> > Á vefnum:<http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways><http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways><http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways>
>> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways
>> > Ég er sammála merkingu á hjólaleiðum eins og fram kemur í “Suggested
>> rules for cycleways in Reykjavík” Nær allir stígar og gangstéttir eru
>> blandaðir stígar og gangstéttir en ekki sérstakar hjólaleiðir hönnuð með
>> umferð reiðhjóla í huga.
>> > Ég skil því ekki merkingarnar sem eru á :<http://www.opencyclemap.org/><http://www.opencyclemap.org/><http://www.opencyclemap.org/>
>> http://www.opencyclemap.org/ þar sem virðist vera sagt að mjög mikið af
>> stígum séu sérstakir hjólreiðastígar (bláar brotalínur) ef ég skil það rétt.
>>
>> Þessar merkingar hjá okkur eru í svoldlu rugli, og ég ber örruglega
>> meiri ábyrgð á þessu rugli en margir aðrir.
>>
>> Ég fór einhvertíman í gegnum megnið af þessum vegum á
>> höfuðborgarsvæðinu og endurmerkti þetta eitthvað, en þetta hefur
>> breyst síðan þá. Það má endilega endurhugsa hvernig á að gera þetta,
>> og það hefur verið rætt áður t.d. hér:
>>
>> <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000056.html><http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000056.html><http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000056.html>
>> http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000056.html
>>
>> Ég veit ekki hvort ég er sammála nokkru sem ég færði fram í þeirri
>> umræðu ennþá, en sá punktur var í grunninn (og mikið af
>> höfuðborgarsvæðinu er merkt út frá þessu):
>>
>>  1. Að við merkjum hluti eins og þeir eru "on the ground". Sem er
>>     grunngildi OpenStreetMap (sjá "On the ground rule").
>>
>>  2. Þar að auki, að vegir séu merktir highway=cycleway eftir ákveðnu
>>     óljósu huglægu mati. Það er *engin* opinber flokkun fyrir þessa
>>     vegi sem er vit í, og ef vegirnir eru merktir sem cycleway sjást
>>     þeir á áberandi hátt á kortum eins og OpenCycleMap o.fl.
>>
>> Í staðin fyrir #2 væri algerlega hægt að sleppa þessu huglæga mati og
>> merkja basically allt sem highway=path.
>>
>> Þetta myndi endurspegla lagalega stöðu þessara vega, og forðast þann
>> bias sem kemur óhjákvæmilega inn þegar verið er að merkja hluti
>> huglæga, ég er mun hrifnari að þessari pælingu en ég var þegar við
>> ræddum þetta síðast 2008. Sérstaklega þar sem það hefur komið á daginn
>> að það eru margar mismunandi hugmyndir um hvað ætti að vera cycleway,
>> sjá t.d. fossvoginn v.s. Grafarholtið v.s. Mosfellsbæinn.
>>
>> > Varðandi “Details about cycleways“ tel ég að flokkunin ætti að vera
>> nokkurn vegin svona:
>> >
>> > Stígar (útivistarstígar), aðskildir frá akbraut, blönduð umferð gangandi
>> (sem eru í forgangi) og hjólandi.
>> > Venjulega eru þeir ca. 2,5m breiðir en breiddin er samt misjöfn allt
>> niður í 1,5 m líklega.
>> > Til stóð að leggja 4 m breiða stíga á höfuðborgarsvæðinu og var það gert
>> t.d. fyrir Blikastaðanes en ekki annar staðar svo ég viti til. Þarf
>> mismunandi flokka af útivistarstígum eftir breidd? Þarf að merkja varasama
>> staði s.s. blindbeygjur/blindhorn, holur eða annað?
>> > Merking: Tag:highway=path with Tag:bicycle=yes and Tag:foot=yes
>>
>> Ég held þú þurfir ekki mismunandi flokka eftir breidd, bara
>> width=<breidd í metrum>.
>>
>> Blindbeygjur, horn og annað er um að gera að merkja. Gætir t.d. notað
>> þetta skema:
>> <http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/hazard><http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/hazard><http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/hazard>
>> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/hazard
>>
>> > Gangstéttir, samsíða akbrautum en aðgreind með kantsteini, blönduð
>> umferð gangandi (sem eru í forgangi) og hjólandi. Á að merkja þær með öðrum
>> hætti en stíga?
>>
>> Hljómar eins og eitthvað sem er hægt að merkja með auka-taggi,
>> t.d. kantsteinn=yes eða eitthvað þannig.
>>
>> > Hjólreiðabraut, merkt með hjólamerki, aðskilin frá akbraut (eins og
>> útivistarstígur), aðeins hjólandi umferð (eða a.m.k. umferð hjólandi í
>> forgangi). Oftast hjólað í gagnstæðar áttir á sömu braut. T.d. Ægissíða.
>> > Merking Tag:highway=cycleway value=track?? and also have
>> ??Tag:foot=designated ?? and Tag:segregated=yes og líka Tag:surface=paved.
>>
>> Já, eða í "on the ground" stíl:
>>
>>    highway=path
>>    segregated=yes
>>    foot=designated
>>    bicycle=designated
>>    surface=paved
>>    cycleway:width=1m
>>    footway:width=2m
>>
>> Eða eitthvað þannig.
>>
>> > Hjólreiðarein, merkt með hjólamerki, sérrein á akbraut fyrir umferð
>> reiðhjóla, ætluð aðeins hjólandi umferð (eða a.m.k. umferð hjólandi í
>> forgangi). Hjólað í stefnu með umferð. T.d. Hverfisgata. (Athugið samt að
>> Hverfisgata er ekki merkt með akreinalínu og er því í raun ekki sérrein í
>> lagalegum skilningi).
>> > Merking Merking Tag:highway=cycleway value=lane?? and also have
>> ??Tag:foot=designated ?? and Tag:segregated=yes og líka Tag:surface=paved.
>>
>> Hljómar eins og cycleway=lane, t.d. er þetta merkt þannig á
>> Langholtsveginum: <http://www.openstreetmap.org/browse/way/5118949><http://www.openstreetmap.org/browse/way/5118949><http://www.openstreetmap.org/browse/way/5118949>
>> http://www.openstreetmap.org/browse/way/5118949
>> <http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:cycleway?uselang=is><http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:cycleway?uselang=is><http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:cycleway?uselang=is>
>> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:cycleway?uselang=is
>>
>> > Hjólavísar (bike and chevron) á akbraut. Hjólreiðamenn hjóla á akbraut í
>> aksturstefnu með bílum á þeirra akrein en hjólavísamerki sýna aksturstefnu
>> og staðsetningu hjólreiðamanna inna akreinar. Geta verið hluti af markaðri
>> hjólaleið (Local Cycle Network) eins og á Einarsnesi.
>> > Merking Hvernig er hægt að merkja þá???
>>
>> Ég veit ekki :)
>>
>> > Hjólaleiðir skilgreindar (Cycle network). Á að merkja þær inná að
>> einhverju leyti.
>>
>> Já, það er spurning að merkja þetta opinbera fantasíu-reiðhjólanet
>> einhvernvegin. En oftast þegar er verið að nota "cycle network" merkir
>> það *einhverja* séraðstöðu fyrir hjólreiðamenn, það er ekki tilfellið
>> í Reykjavík t.d. á Nesveginum, sem er bara venjuleg gata, en er merkt
>> í þetta opinbera hjólanet því einhverjum fannst þurfa einhverja leið
>> út á Seltjarnarnes.
>>
>> > Merking ???
>> > Local cycle network lcn_ref = “ZZ” or lcn = “yes” Various, including
>> London Cycle Network
>> >
>> > Hjólaslóðar sem eru hjólaðar t.d. í Heiðmörk og viðar. Á að setja þær
>> inná?
>> > Merking: Tag:highway=track tracktype=* with Tag:bicycle=yes and
>> Tag:foot=yes
>> >
>> >
>> > Hjólabúðir.
>> > Vantar
>> > Kríu í Ármúla 42
>> > Hjólasprettur Bæjarhrauni 22
>> > Hjólreiðameistarinn á Nýbýlavegi
>>
>> Endilega bættu þessum við með svipuuð tögg og t.d. Markið, ættir að
>> geta gert það tilturulega nákvæmt upp úr minni útfrá núverandi
>> veganeti, eða eftir GPS.
>>
>> En til samantektar: Ég er basically sammála því sem Christoph Hess var
>> að segja á sínum tíma, að við ættum að sleppa því að merkja hluti sem
>> eru ekki lagalega séð sérhjólabrautir sem highway=cycleway og merkja
>> basically allt sem highway=path.
>>
>> Það er mikið til gert í Þýskalandi þar sem lagastaðan er svipuð, og
>> það er mun einfaldara að kenna fólki að merkja *bara* hluti sem það
>> sér "on the ground" en að vera spá í stóru myndina.
>>
>> Ef við viljum eitthvað sér hjólakort sem sýnir ákveðnar leiðir
>> áberandi er alltaf hægt að gera það út frá gögnunum seinna.
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> <Talk-is at openstreetmap.org> <Talk-is at openstreetmap.org><Talk-is at openstreetmap.org>
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> <http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is><http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is><http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is>
>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>
>
>
> --
> Kveðja,
> Karl Georg
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>


-- 
Árni Davíðsson
arnid65 at gmail.com
arnid.blog.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20100830/6c6d2118/attachment-0001.html>


More information about the Talk-is mailing list