[Talk-is] ourFootPrints.de gögnin að koma á OpenStreetMap

Svavar Kjarrval svavar at kjarrval.is
Sun Jan 10 22:08:33 GMT 2010


Sæll Ævar.

Verð að óska þér til hamingju með árangurinn, svo ég byrji á hrósi.

Það er alltaf galli á gjöf Njarðar, ef manni leyfist að nota það orðtak, 
þegar kemur að gögnunum frá OFP. Alveg eins og hjá OSM eru hnútarnir 
misnákvæmir eftir því hver safnar þeim og með hvaða tæki. Því verð ég að 
nefna að það yrði erfitt að meta hvort OSM eða OFP hafi betri útgáfu af 
ákveðnu svæði/veg.

Í versta falli, þótt okkur takist ekki að nýta ferlana hans, væri að 
setja alla vegi sem „of öðruvísi“ eða vantar alveg, yfir í 
OpenStreetBugs og við tækifæri gæti sjálfboðaliði safnað nýjum hnútum. Í 
framhaldinu ætti að koma fram ný mæling sem hægt sé að taka tillit til.

Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval (svavar at kjarrval.is)
s. 863-9900



Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote:
> Ég er búinn að vera í sambandi við Tom sem heldur við ourFootPrints á
> síðasta ári og þessu um að leggja til gögn til OpenStreetMap.
>
> Fyrir þá sem ekki kannast við ourFootPrints er það verkefni eldra en
> bæði OpenStreetMap og Google Maps þess efnis að búa til kort af
> Íslandi sem hefur frá upphafi verið verkefni eins manns.
>
> Tom að mestu rakið vegi bæði frá egin GPS ferlum og u.þ.b. 30 annara
> sem hafa sent honum gögn en hann segir að um 95% af kortinu sé búið
> til svona, 5% er teiknað eftir lokuðum kortum (LMÍ kortum geri ég ráð
> fyrir), ár, vötn, jöklar og strandlengjan eru svo teiknuð eftir Google
> Satellite myndum.
>
> Ég er að vinna í því að vinna úr dumpi af GPX tracks og vegum sem Tom
> sendi mér og er áætlunin að hlaða þessu upp í þeirri röð undir nafni
> sérstaks upload notanda þegar ég er búinn að laga þetta aðeins til.
>
> Ég er þegar búinn að gera fyrsti tilraun til að breyta þessum gögnum í
> .osm skrá, þetta eru 29MB af .osm gögnum samanborið við þau 67MB sem
> allt ísland er í dag. Hérna er afraksturinn:
>
>     !!! EKKI HLAÐA ÞESSU UPP EÐA REKJA EFTIR ÞESSU:
> http://v.nix.is/~avar/noindex/ourfootprints/ofp.osm.bz2 !!!
>
> Það á eftir að vinna þetta frekar áður en hægt er að hlaða þessu upp,
> en endilega skoðið þetta. Á myndunum sem fylgja póstinum má sjá
> suðurlandsundirlendið og Kópavoginn þar sem vegirnir frá ourFootPrints
> sjást gráir í bakgrunninum. Einnig er skjáskot með GPX ferlunum
> meðfylgjandi.
>
> Hérna er planið til að koma þessu inn sem fyrst:
>
>   1. Ég bý til notanda sérstaklega til að hlaða þessu upp
>   2. Hleð upp GPX ferlunum með réttum töggum
>   3. Breyti forritinu sem býr til þessa .osm skrá hér að ofan þannig
> hún sé c.a. rétt, t.d. búi ekki til highway=motorway
>   4. Breyti henni þannig hún bæti við réttum töggum í þetta import,
> t.d. source=ourfootprints ourfootprints:source=some_gpx_track og annað
> sérdót
>   5. Breyti öllum "highway" tags í "ofp_highway"
>   6. Hlaði þessu upp
>
> Þá verðum við með slatta af "ofp_highway" vegum sem sjást ekki á t.d.
> mapnik, garmin kortinu en sjást í grunngögnunum, svo vinnum við saman
> í að gera, eftir tilfellum:
>
>   * Eyða þessum vegum (því við erum með betri útgáfu á kortinu nú þegar).
>   * Eyða okkar vegum (því ofp vegurinn er betri).
>   * Breyta "ofp_highway", í "highway" tengja veginn við OSM gögnin og hlaða upp.
>
> Svona ættum við að geta unnið saman í því að sameina osm og ofp
> grunninn á ekkert svo lóngum tíma þótt gagnagrunnurinn verði aðeins
> subbulegur í millitíðinni.
>
> Mér allavegana líst betur á þetta heldur en að reyna sjálfkrafa að
> finna út hvaða vegir mega fara inn og hverjir ekki eða að ég sorteri
> þetta allt sjálfur. Það tekur langann tíma og þarnast sérhugbúnaðar
> sem verður örruglega til þess að þetta klárast seint eða aldrei.
>
> Hvað finnst ykkur?
>   
>
> ------------------------------------------------------------------------
>
>
> ------------------------------------------------------------------------
>
>
> ------------------------------------------------------------------------
>
> ------------------------------------------------------------------------
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>   




More information about the Talk-is mailing list