[Talk-is] Kortagögn fyrir OpenStreetMap
Thorir Jonsson
thorirmar at gmail.com
Tue Nov 16 23:08:11 GMT 2010
Sæll Stefán.
Í framhaldi af spjallinu okkar í gær sendi ég hér formlega beiðni um
kortagögn fyrir OpenStreetMap. Gögnin sem við óskum eftir eru þau sem eru
aðgengileg á heimasíðu Snertils (
http://www.infrapath.is/mapguide/fusion/templates/mapguide/Seltjarnarnes/).
Þessum gögnum yrði bætt í OpenStreetMap gagnagrunninn og yrðu þar með
aðgengileg öllum sem hann vilja nota.
OpenStreetMap grunnurinn er gefin út undir opnu og frjálsu hugbúnaðar/gagna
leyfi sem gerir hverjum sem er kleift að nýta hann í hvaða tilgangi sem er.
Nánar má lesa um leyfis mál á þessari síðu og undirsíðum hennar:
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Licence
Á Snertils síðunni er hægt að skoða þessi gögn en ekki virðist vera hægt að
hlaða þeim niður, þyrftum við því að geta nálgast þessi gögn með einhverjum
öðrum leiðum ef þessu verður.
Kort teiknað upp úr þessum kortagrunni má sjá á heimasíðu OpenStreetMap:
http://www.openstreetmap.org og til gamans þá er hér hlekkur beint á
Seltjarnarnes:
http://www.openstreetmap.org/index.html?mlat=64.1545&mlon=-21.995&zoom=14
Ég sendi þennan póst líka á íslenska OpenStreetMap póstlistann (
talk-is at openstreetmap.org), og best væri ef öll frekari tölvupóstsamskipti
færu í gegnum hann. Annars er hægt að ná í mig persónulega á
thorirmar at gmail.com eða í síma 698 6314.
Bestu kveðjur,
Þórir Már
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20101116/996635b7/attachment.html>
More information about the Talk-is
mailing list