[Talk-is] Reykjavíkurborg gefur OpenStreetMap verkefninu gögn

Björgvin Ragnarsson nifgraup at gmail.com
Fri Sep 17 21:37:13 BST 2010


Leyfið er ekki sérstaklega nefnt heldur fylgir gögnunum undirskrifuð
viljayfirlýsing um að þau verði notuð í OpenStreetMap. Af
viljayfirlýsingunni leiðir að gögnin eru gefin út undir OpenStreetMap
samhæfu leyfi (CC-BY-SA-2.0 & ODbL-1.0). Ég hef átt gott samstarf við
fólk frá borginni varðandi þetta og þau eru meðvituð um að eftir að
gögnin fara inn í OpenStreetMap munu þau nýtast í fleira en
hjólavefsjá.

kv.
Björgvin

2010/9/17 Arnar Birgisson <arnarbi at gmail.com>:
> Gott að heyra!
>
> Eru gögnin gefin til OSM sérstaklega undir takmörkuðu leyfi, eða er
> verið að opna þessi gögn almennt?
>
> kv,
> Arnar
>
> 2010/9/17 Björgvin Ragnarsson <nifgraup at gmail.com>:
>> Á morgun verður okkur gefin gögn úr Landsupplýsingakerfi
>> Reykjavíkurborgar sem borgin telur að muni nýtast við gerð
>> hjólavefsjáar.
>> Á móti mun ég fyrir hönd OpenStreetMap verkefnisins á Íslandi gefa
>> borginni lénin hjolavefsja.is / hjólavefsjá.is.
>>
>> Þessi gjörningur mun fara fram í Ráðhúsinu sem hluti af dagskrá sem
>> hefst kl. 13:00 í tilefni samgönguviku. Allir velkomnir.
>>
>> Björgvin Ragnarsson
>>
>> ps.
>>
>> gleðilegan Software Freedom Day á morgun :)
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>



More information about the Talk-is mailing list