[Talk-is] 'Nýr' mapper og Síðumúlinn

Thorhallur Sverrisson toti at toti.is
Mon Apr 25 01:27:07 BST 2011


Sæll,

Nei, það er svo sem góður punktur.  Spurning hvort þetta væri svona
'opt-in', eða 'handle your own s**t', að því leiti að menn setji inn tags
sem þeir bera ábyrgð á, og haldi þeim uppfærðum.

Annað með Síðumúlann (og líklega fleiri staði) eru göngustígar úr LUKR.  Og
þá helst gangstéttir fyrir framan fyrirtæki oþh stubbar.  Ætti að tengja þá
saman með crossing=unmarked og mynda þannig 'routeable' footpath eftir
veginum, eða bara skilja þá eftir eins og þeir eru?  Þeir líta hálf
undarlega út eins og þeir eru, þó það sé réttara.

Anyways, Síðumúlinn er 'done' hvað varðar hús og bílastæði, ég er mjög opinn
fyrir athugasemdum og alls ekki hörundsár.

Kveðja,

Þórhallur

2011/4/24 Yngvi Þór Sigurjónsson <blitzkopf at gmail.com>

> Sæl
>
> Eitt sem mér finnst að þurfi að ræða, eru menn alveg harðir á því að fara
> að skrá fyrirtæki í hús? Húsnúmer kirkjur og skólar eru frekar statisk
> fyrirbrigði en fyrirtæki eru meira dynamisk og eiga það til að flytja,  það
> verður  erfitt að fara að eltast við þau um allan bæ.
>
> Kv.
> Yngvi
>
>
> 2011/4/24 Thorhallur Sverrisson <toti at toti.is>
>
>> Takk fyrir Setbergið, það var alveg ómppað fyrir utan Hamrabergið svo það
>> var upplagt að byrja þar, enda bý ég einmitt þar.  Ég byrjaði á því að hafa
>> 'turning-circle' á endanum á hverri götu, en það er hálfgert turningcircle í
>> hverjum enda, en það leit svo hrikalega illa út á kortinu að ég tók það út.
>> Þetta var fín æfing í heildar ferlinu, frá tracking að 'kláruðu' mappi.
>>
>> Ég kláraði aðra hliðina á Síðumúlanum núna í morgun, og gerði þá hvert hús
>> bara einfalt area.  JOSM og Mapnik virðast ekki alveg vera komin up to speed
>> með relation sem hús pæinguna, t.d. koma húsnúmerin ekki fram.  Ég breyti
>> líklega þessum þremur húsum í 'venjulegt' hús og bíði með relation sem hús
>> æfingarnar þar til seinna.
>>
>> Það virðist virka fínt að nota Karlsruhe Schema til að tengja götur og
>> hús, ætli ég haldi því ekki áfram þar til ég finn bögg sem stoppar mig :)
>>
>> Fínir punktar, ég reyni að pasas mig á þeim í framtíðini.
>>
>> Já, var nokkuð öruggur með hús þar sem eingöngu eitt fyrirtæki er í, ég
>> var einmitt að spá í hinu tilfellinu þar sem mörg fyritæki eru í einu húsi
>> eins og er á flestum stöðum í Síðumúla.  Ég verð að skoða betur erlendar
>> borgir og sjá hvort ég finni einhver dæmi.
>>
>> Það væri 'eðlilegast' ef hægt væri að nota area fyrir póstnúmerin, veit
>> samt ekki hver stuðningur er í Mapnik og OSM in general fyrir það.  Á
>> related topic, ef ég notaði iPad-inn til að skella inn 'pinna' á móti
>> Síðumúla 28, þá sagði 'OpenMaps' að hann væri í Kópavogi.  Ég er að spá
>> hvort það séu einhver area eða points sem vanti sem designate-i Reykjavík
>> (og þessvegna hverfin).  Nú er ég bara ekki nógu sjóaður í þessu til að
>> leita að 'villuni'.  Þetta gæti einnig verið eitthvað í OpenMaps bara.
>>
>> Læt þetta duga í bili, langar að komast aftur í mapping gírinn :)
>>
>> Þórhallur
>>
>>
>>
>>
>> 2011/4/24 Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is>
>>
>>> Velkominn Þórhallur!
>>>
>>> Svo þú ert sá sem gerðir norðurhluta Setbergs á sínum tíma. Nokkuð gott
>>> verk hjá þér (þó ég hafi endurmælt þann hluta Setbergsins á sínum tíma). Til
>>> að auka á tilviljunina var ég einmitt að teikna húslínur fyrir Fellsmúla,
>>> Háaleitisbraut og mýrin rétt fyrir vestan Síðumúla núna í nótt.
>>>
>>> Nú hafa margir mismunandi verklög við að teikna hús en ég hef reynt að
>>> temja mér að fara eftir því sem ég hef fundið á OSM wiki-inu. Fyrst reyni ég
>>> að teikna raðfjölbýlishús þannig að hvert húsnúmer er með sér 'svæði' því
>>> það gæti gagnast þegar einhver bætir húsnúmerinu við. Það er ekki
>>> nauðsynlegt að greina á milli mishárra svæða í byggingum en ég ætla ekki að
>>> stoppa þig. Það getur verið nokkuð leiðinlegt að breyta relations, bara svo
>>> þú vitir það. En annars eru hlutir þarna sem ég vissi ekki af, t.d. með að
>>> nota relations til að ákvarða addr:street tagið.
>>>
>>> Varðandi það sem hefði mátt fara betur, þá eru það aðallega smámunir:
>>> 1. Gera nóðu þar sem göngustígur og gata hittast. Passa samt að gatan sé
>>> nokkuð jöfn áður svo ekki þurfi að hreyfa nóðuna síðar. Setja crossing tagið
>>> á téða nóðu og tilheyrandi tög (muna að setja bicycle=yes).
>>> 2. Ýmsar crossing ways villur á Síðumúla 30. Leyst með join node to way
>>> (flýtitakkinn j).
>>> 3. Þessi 3 hús virðast ekki tilheyra restinni af Síðumúla relation-inu.
>>>
>>> Með fyrirtækin er ég ekki viss en veit að það ætti að vera óhætt að
>>> merkja fyrirtækið beint í bygginguna ef það er bara eitt fyrirtæki í henni.
>>> Sumir hafa verið að setja nóður þegar það er augljóst að það er augljóst að
>>> byggingin hefur bara einn tilgang, t.d. sem skóli eða kirkja. Þegar þau eru
>>> mörg er ég ekki alveg viss. Gætir þurft að athuga hvernig þetta er gert í
>>> útlöndum og finna vitrænt skipulag til að herma eftir.
>>>
>>> Veit ekki enn svarið við einni pælingu en var að spá í póstnúmerin. Hvort
>>> að það sé nóg að gera area þar sem hægt er að merkja póstnúmerin inn eða
>>> hvort það þurfi að merkja hvert einasta götu-relation með póstnúmerinu. Veit
>>> einhver hér um einfalda leið til að setja póstnúmer, sérstaklega þegar götur
>>> hafa meira en eitt póstnúmer?
>>>
>>> Með kveðju,
>>> Svavar Kjarrval
>>>
>>>
>>> On 04/24/2011 07:16 AM, Thorhallur Sverrisson wrote:
>>>
>>>> Daginn,
>>>>
>>>> Ég heti Þórhallur og bý í Hafnafyrði.  Ég trackaði og mapaði upp fremri
>>>> hluta Setbergs á sínum tíma, en hef ekki gert neitt í talsverðan tíma.
>>>>  Áhuginn vaknaði á ný eftir að ég fékk iPad með GPS tæki.
>>>>
>>>> Ég prófaði í gær teikna upp 3 hús í Síðumúla (changeset 7948589) sem og
>>>> bílastæðin í kring.  Húsin í hverfinu er oft 'flókin', þeas margar einingar
>>>> sem eru mis háar og byggðar á mismunandi tíma.  Mér fannst því eðlilegast að
>>>> fara eftir
>>>> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Relations/Proposed/Buildings.  Þegar
>>>> ég var að uploada þessu kvartaði JOSM sáran, og fór mig þá að gruna að ég
>>>> hafi verið of fljótur á mér með leiðina sem ég valdi.
>>>>
>>>> Hvernig hafa menn verið að mappa upp 'flókin' hús, einhver dæmi?
>>>> Væru reyndari menn til í að rúlla yfir changesettið og commenta á það
>>>> sem betur mætti fara?
>>>> Einhver tög sem ég er að gleyma að setja?
>>>>
>>>> Endilega benda á allt, langar helst að gera þetta sem réttast, með sem
>>>> mestum upplýsingum.
>>>>
>>>> Ég ætla að halda áfram með Síðumúlann, en ætli ég haldi mig ekki við
>>>> útlínur húsa.
>>>>
>>>> Annað, hvernig er best að skrá inn fyrirtæki í húsin?  Skella bara punkt
>>>> sem fyrirtækið, eða einhversskonar relation?  Svo sem ekki stórmál ef bara
>>>> eitt fyrirtæki er í húsinu, en það er ekki oftast málið í Síðumúlanum.
>>>>
>>>> Jæja, back to mapping :)
>>>>
>>>> Þórhallur
>>>>
>>>>
>>>> _______________________________________________
>>>> Talk-is mailing list
>>>> Talk-is at openstreetmap.org
>>>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>>>
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Talk-is mailing list
>>> Talk-is at openstreetmap.org
>>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>>
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20110425/5845382c/attachment.html>


More information about the Talk-is mailing list