[Talk-is] INSPIRE tilskipunin

Svavar Kjarrval svavar at kjarrval.is
Sat Apr 30 05:13:44 BST 2011


Hæ.

Ef þið vissuð ekki, þá er til umræðu frumvarp til að innleiða INSPIRE 
tilskipun ESB (2007/2/EB) um notkun og miðlun landupplýsinga. Í stuttu 
máli er hún þannig að Landmælingar Íslands eigi að reka stafræna 
upplýsingagátt með landupplýsingum. Þó aðaltilgangurinn sé umhverfismál 
þá er ljóst að það er víðtækara en svo. Enginn þingmaður hefur mótmælt 
frumvarpinu hugmyndafræðilega séð svo það eru talsverðar líkur á að það 
nái í gegn á þessu þingi. Þið getið fylgst með málinu á 
http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=139&mnr=121 
<http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=139&mnr=121>.

Þegar/Ef frumvarpið verður að lögum verður áhugavert að athuga hvort það 
verði til þess að meira af opinberum gögnum verði fáanleg til 
innsetningar í OSM.

Upp á forvitnina fletti ég upp á umsögnum sem bárust umhverfisnefnd og 
vildi vita hvort ég fyndi einhverja áhugaverða búta. Þeir fylgja hér:

Háskóli Íslands:
„Að mati háskólans getur gjaldtaka sú sem heimiluð er skv. 11. gr. 
frumvarpsins skapað óþarfa hindranir við notkun gagna. Eðlilegt er að 
menntastofnanir á borð við Háskóla Íslands hafi aðgang að slíkum 
opinberum landfræðilegum gögnum án endurgjalds.“

ÍSOR:
„Sú skilgreining á landupplýsingum sem sett er fram í frumvarpinu [er] 
ófullnægjandi þar sem einungis er átt við gögn tengd yfirborðið[sic] 
jarðar. Ýmsar landupplýsingar vísa til staða neðan yfirborðs jarðar s.s. 
í borholum og á hafsbotni.“
- Þakka ÍSOR fyrir þessa athugasemd. Breytingartillaga nefndarinnar 
víkkaði gildissvið frumvarpsins til gagna „á, í eða yfir jörðu“. Umsögn 
Náttúruminjasafnsins kom líka að þessu atriði.



More information about the Talk-is mailing list