[Talk-is] Húsnúmeraskráning

Svavar Kjarrval svavar at kjarrval.is
Tue Feb 15 16:26:47 GMT 2011


Sælt fólk.

Sá á talk listanum áðan forrit fyrir Android sem auðveldar 
húsnúmeraskráningu og var að spá hvort einhver hér myndi vilja 
prufukeyra þetta forrit með mér? Ég geri ráð fyrir að við myndum prófa 
nokkrar samliggjandi götur á höfuðborgarsvæðinu.

Ég redda Android síma með forritinu uppsettu og keyri bílinn. Það eina 
sem viðkomandi þyrfti að gera væri að skrá upplýsingarnar inn í 
forritið. Tengillinn fyrir neðan hefur upplýsingar um hvernig forritið 
virkar.

http://help.openstreetmap.org/questions/1385/what-is-the-best-mobile-application-for-large-scale-house-number-collection

Það eru tvær leiðir sem hægt væri að fara en sú fyrri væri að skrá hvert 
hús inn í forritið og sú seinni væri að skrá eingöngu endana á 
húslengjum og láta render ferlið reikna út staðsetningar húsanna á 
milli. Þar sem við höfum gervihnattamyndir af Reykjavík getum við notað 
húslengjuenda til að skrá fljótt niður hvaða númer eru sitt hvoru megin 
í húslengjunum og sett inn tölurnar á milli skv. staðsetningu á 
gervihnattamyndunum.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval



More information about the Talk-is mailing list