[Talk-is] Húsnúmeraskráning

Morten Lange morten7an at yahoo.com
Tue Feb 15 22:13:31 GMT 2011


Sæll Svavar 

Er til í þessu, amk eitt skipti til að prófa. 
En ég er svolítið upptekinn næstu 7-10 daga. 
Hafðu samband.

--
Regards / Kvedja
Morten Lange, Reykjavík


--- On Tue, 15/2/11, Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is> wrote:

> From: Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is>
> Subject: [Talk-is] Húsnúmeraskráning
> To: talk-is at openstreetmap.org
> Date: Tuesday, 15 February, 2011, 16:26
> Sælt fólk.
> 
> Sá á talk listanum áðan forrit fyrir Android sem
> auðveldar húsnúmeraskráningu og var að spá hvort
> einhver hér myndi vilja prufukeyra þetta forrit með mér?
> Ég geri ráð fyrir að við myndum prófa nokkrar
> samliggjandi götur á höfuðborgarsvæðinu.
> 
> Ég redda Android síma með forritinu uppsettu og keyri
> bílinn. Það eina sem viðkomandi þyrfti að gera væri
> að skrá upplýsingarnar inn í forritið. Tengillinn fyrir
> neðan hefur upplýsingar um hvernig forritið virkar.
> 
> http://help.openstreetmap.org/questions/1385/what-is-the-best-mobile-application-for-large-scale-house-number-collection
> 
> Það eru tvær leiðir sem hægt væri að fara en sú
> fyrri væri að skrá hvert hús inn í forritið og sú
> seinni væri að skrá eingöngu endana á húslengjum og
> láta render ferlið reikna út staðsetningar húsanna á
> milli. Þar sem við höfum gervihnattamyndir af Reykjavík
> getum við notað húslengjuenda til að skrá fljótt
> niður hvaða númer eru sitt hvoru megin í húslengjunum
> og sett inn tölurnar á milli skv. staðsetningu á
> gervihnattamyndunum.
> 
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
> 


      



More information about the Talk-is mailing list