[Talk-is] Póstnúmeraskrá
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Thu Jul 5 13:45:50 BST 2012
Hæ.
Það gengur nokkuð hægt að ákveða málið varðandi póstnúmeraskrá inn á
Wiki-inu (
https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Iceland_postal_code_database) svo ég
vil flytja umræðuna hingað.
Að mínu mati ættum við að merkja relations með götuskrá:id (eða hentugri
merkingu) og síðan keyra scriptuna reglulega sem fer yfir gögnin.
Scriptið myndi bæta við þeim tögum sem á vantar og uppfæra þær
upplýsingar sem hafa breyst. Það væri hægt að keyra það handvirkt í
hverri viku eða mánuði.
Ástæðan fyrir því að ég sé fylgjandi relations er að vegir skiptast
nokkuð oft í marga hluta og það gæti verið helvíti að viðhalda slíkri
skráningu á þeim. Auk þess er það betra til þess að leita eftir húsi þar
sem húsið sjálft væri í viðkomandi relation. It just makes sense. :þ
Mig langar helst að klára þetta mál sem fyrst þar sem ég verð líklegast
búinn að teikna öll hús fyrir Hafnarfjörð fyrir sumarlok (eða jafnvel í
lok júlí) og setja húsnúmer á þau. Mig langar helst að geta sett
götuskrá:id í þessi relation sem ég bý til vegna þessa, svo
upplýsingarnar muni rata þangað á endanum.
Hver er ykkar skoðun?
- Svavar Kjarrval
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20120705/dc0c3fcd/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20120705/dc0c3fcd/attachment.pgp>
More information about the Talk-is
mailing list