[Talk-is] POI söfnun - reynsla og úrbætur
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Sat Jul 28 16:33:37 BST 2012
„Laugaveginn eða Hverfisgötuna“, átti þetta að vera. Heilinn minn hefur
hoppað yfir þennan bút þegar ég las póstinn yfir.
- Svavar
On 28/07/12 15:15, Svavar Kjarrval wrote:
> Hæ.
>
> Í gær fór ég í POI söfnun í miðbæ Hafnarfjarðar, vopnaður eyðublaðinu.
> Gangan tók u.þ.b. 2 klst. 45 mín en hins vegar náði ég eingöngu 31 stað.
> Þetta gerir að meðaltali um 5 mínútur á hvern stað. Þið getið haft þetta
> í huga ef þið ætlið í POI söfnun með þessum hætti.
>
> Reynslan mín var á þá leið að flestir voru hjálpsamir þótt þeir vissu
> ekki fyrir hvað þetta var. Ég nefndi alltaf að ég væri að safna
> upplýsingum um verslanir á svæðinu en ekki að þetta væri fyrir
> OpenStreetMap. Ég nefndi auðvitað OpenStreetMap ef þau spurðu fyrir
> hvern þetta væri og fyrir hvað OSM stendur fyrir. Einstaka staðir voru
> óhjálpsamir en ég náði þá upplýsingum sem voru fáanlegar með því að líta
> í kringum mig. Ég held að eigandi einnar verslunarinnar hafi haldið að
> ég væri frá ríkinu og að OSM væri cover story til að fá upplýsingar um
> staðinn til að hanka hana á einhverju. Hún hafði ekki einu áhuga á að
> vita hvaða upplýsingar ég vildi fá.
>
> Það gæti sparað tíma ef það væri þegar búið að safna einhverjum
> upplýsingum um fyrirtækin áður eða í það minnsta staðsetja þau á korti
> áður en lagt er af stað. Tók smá tíma hjá mér að merkja staðina inn á
> réttum stað. Þá væri hægt að prenta út upplýsingar á blöð og biðja
> eingöngu um þær upplýsingar sem á vantar og mögulega um yfirferð á þeim
> upplýsingum sem liggja fyrir. Það hentar til dæmis sérstaklega fyrir
> stóran hóp að úthluta (hálf)útfylltum blöðum og fólkið myndi eingöngu
> fara í þær verslanir sem þeim var úthlutað, svo fólk sé ekki að hópast í
> sömu verslanirnar og þar af leiðandi pirra starfsfólkið. Annar kostur er
> sá að sumir staðir hafa fleiri gagnlegar upplýsingar sem hægt er að afla
> eins og aðgengi að Internetinu (matstaðir t.d.), hvort það megi
> reykja(hótel t.d.), og svo framvegis, og það væri gott að geta spurt að
> því um leið.
>
> Varðandi hjólastólaaðgengi tók ég eftir því að starfsfólk sagði oft að
> það væri hjólastólaaðengi þrátt fyrir að staðlar myndu segja nei. Því
> borgar sig ekki að treysta eingöngu á svör starfsfólks þegar spurt er um
> téð aðgengi. Einnig tók ég eftir að það gekk betur að fá fólk til að
> taka þátt ef maður sagðist vera með eyðublað með einföldum upplýsingum
> og óskaði eftir hjálp við að fylla það út, í stað þess að óska eftir því
> að spyrja spurninga um verslunina.
>
> Hver myndi til dæmis vilja hjálpa mér að fara um laugarveginn eða
> hverfisgötuna og merkja verslanir og staði inn á kortið áður en við
> förum í alvöru POI söfnun á því svæði? Við getum gert þetta eftir
> skrifstofuvinnutíma ef það hentar fólki betur. Býst nú ekki við miklum
> viðbrögðum eins og venjulega en það sakar varla að spyrja.
>
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20120728/90c0c7e9/attachment.pgp>
More information about the Talk-is
mailing list