[Talk-is] Upplýsingar frá Íslandspósti

Björgvin Ragnarsson nifgraup at gmail.com
Mon Oct 1 14:40:24 BST 2012


Götuskráin er á csv formi svo ef þú kannt smá python þá geturðu notað
scriptið sem ég bjó til fyrir strætóstoppistöðvarnar sem grunn:
https://github.com/nifgraup/straeto-utilities/blob/master/csv2osm.py

Ég notaði JOSM til "upload-a" .osm skránni sem cvs2osm.py bjó til.

kv.

Björgvin

2012/10/1 Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is>:
> Hæ.
>
> Hringdi í Kristínu Birnu hjá Íslandspósti, þeirri sömu og afgreiddi
> málið með póstnúmeraskrána, og spurði hana hvort við gætum fengið hnitin
> fyrir alla póstkassa á landinu. Póstkassarnir eru merktir inn á
> póstappið svo ég vildi forvitnast hvort ég gæti fengið þau hnit. Hún
> ætlar að athuga málið.
>
> Það varð smá vandræðalegt þegar hún spurði mig varðandi nýtingu okkar á
> póstnúmeraskránni. Sérstaklega þar sem við erum ekki enn byrjaðir að
> sníða og keyra scriptið sem sér um að setja þær upplýsingar inn og
> viðhalda þeim. Í sjálfu sér höfum við ekki notað þær upplýsingar að
> neinu marki og það er liðinn dágóður tími. Sérstaklega þegar nær öll
> göturelation í Hafnarfirði eru nú þegar með viðeigandi merkingu. Þetta
> eru líka grunnupplýsingar og við hljótum að geta sett þetta í gang sem
> fyrst. Myndi gera það sjálfur ef ég kynni að gera svona plugin í JOSM.
>
> Er einhver hér sem getur tekið að sér að gera þetta script? Ég get alveg
> séð um að keyra það reglulega.
>
> - Svavar Kjarrval
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>



More information about the Talk-is mailing list