[Talk-is] Bréf til sveitarfélaga - staðan 17. október
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Wed Oct 17 15:06:06 BST 2012
Hæ.
Ýmislegt hefur gerst síðan 8. október þrátt fyrir að eitthvað hefur
hægst á vegna anna hjá mér. Því hef ég ekki getað ýtt eins mikið við
málunum og áður. Ef þið viljið vita betur um stöðu ákveðins
sveitarfélags er hana að finna á
https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Icelandic:Bréf_til_sveitarstjórna .
Reyni að bæta upp aðgerðaleysið á næstu dögum en við sjáum til hvernig fer.
Sbr. ósk Ævars reyndi ég að biðja um að fá gögnin á .dxf eða .shp en það
fellur ekki vel í þá sem ég bað um gögnin hjá, sérstaklega þar sem þeir
telja sig þurfa að fara í ákveðna vinnu til þess að gera það. Stundum er
um að ræða fyrirtæki eða einstaklinga sem telja sig hafa nóg annað að
gera og eiga mjög erfitt með að veita þá vinnu frítt. Því taldi ég það
betra að biðja bara um upprunalegu skrárnar og við reynum að umbreyta
sjálfir. Ég þarf að reyna að „selja það“ að beiðnin sé fljótafgreidd og
einföld í framkvæmd; Umbreytingaróskir af þessu tagi eru alls ekki að
hjálpa til.
Málum lokið:
* Reykjavík, með opnun vefhluta á
http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3546/5704_view-5809/.
Setti gögnin á http://osm.is/gogn/ en einnig hægt að ná í þau beint af
vef þeirra. Netfangið lukr at rvk.is var ekki sett upp þegar ég tilkynnti
um afritun þeirra af minni hálfu.
* Fjarðabyggð, með afhendingu gagna. Setti gögnin á http://osm.is/gogn/
Málum næstum lokið:
* Akureyri sendi inn gagnapakka með loforði um seinni hluta síðar. Setti
gögnin á http://osm.is/gogn/
* Skeiða- og Gnúpverjahreppur nefndi að við mættum nota það sem við
fyndum á vef þeirra. Er samt að athuga stöðuna hjá skipulags- og
byggingafulltrúaembætti uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps. Að sögn
þeirra eru þeir nýlega byrjaðir að setja upp sinn eiginn grunn sem er
fátæklegur þessa stundina.
Ég vona að þið hellið ykkur í gögnin til að setja þau inn. Þó væri betra
ef þið létuð vita hvað þið eruð að taka svo það séu ekki tveir að taka
sömu gögnin á sama tíma, sérstaklega í tilfelli gagnanna frá Reykjavík.
- Svavar Kjarrval
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20121017/3569f1be/attachment.pgp>
More information about the Talk-is
mailing list