[Talk-is] Bréf til sveitarfélaga - staðan 17. október

Svavar Kjarrval svavar at kjarrval.is
Wed Oct 17 15:36:01 BST 2012


Nokkrum sekúndum eftir að ég ýtti á ‚Send‘ takkann fékk ég risastóran
pakka frá Fjallabyggð. Ég mæli með því að við komum Fjallabyggð inn á
kortið sem fyrst, sérstaklega þegar þeir hafa sýnt svo mikið örlæti í
afhendingu gagna. Gögnin sem ég nefndi eru komin fyrir utan stóru
myndirnar. Þær taka líka um 1,3 gígabæti.

Þetta bókaði ég á Wiki-inu undir liðnum Fjallabyggð:

Fékk svar 17. október með tenglum á gögn sem eru örugglega afar gagnleg.
Þau eru:
* Hæðarlínugrunnur fyrir Siglufjörð og næsta nágrenni, hnitsettur í
staðbundnu kerfi Siglufjarðarkaupstaðar
* Miðlínur gatna á Siglufirði í ISN93 hnitakerfinu.
* Götukort af Siglufirði með áhugaverðum stöðum merktum inn.
* Loftmyndir af bænum, óhnitsettar, í þrem stórum .tif skrám.
* Leyfi til að nota þau deiliskipulög fyrir sveitarfélagið sem finna má
í gegnum skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.
* Leyfi til að nota aðalskipulag sem finna má á www.fjallabyggd.is,
undir útgefnu efni.

---

Hversu mikið mál er annars að setja upp imagery provider fyrir gögnin
sem við fengum, svo hægt sé að setja myndagögn inn til rakningar? Bæði
fyrir Fjallabyggð og aðra sem hafa og munu gefa okkur myndir til notkunar.

- Svavar Kjarrval

On 17/10/12 14:06, Svavar Kjarrval wrote:
> Hæ.
>
> Ýmislegt hefur gerst síðan 8. október þrátt fyrir að eitthvað hefur
> hægst á vegna anna hjá mér. Því hef ég ekki getað ýtt eins mikið við
> málunum og áður. Ef þið viljið vita betur um stöðu ákveðins
> sveitarfélags er hana að finna á
> https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Icelandic:Bréf_til_sveitarstjórna .
> Reyni að bæta upp aðgerðaleysið á næstu dögum en við sjáum til hvernig fer.
>
> Sbr. ósk Ævars reyndi ég að biðja um að fá gögnin á .dxf eða .shp en það
> fellur ekki vel í þá sem ég bað um gögnin hjá, sérstaklega þar sem þeir
> telja sig þurfa að fara í ákveðna vinnu til þess að gera það. Stundum er
> um að ræða fyrirtæki eða einstaklinga sem telja sig hafa nóg annað að
> gera og eiga mjög erfitt með að veita þá vinnu frítt. Því taldi ég það
> betra að biðja bara um upprunalegu skrárnar og við reynum að umbreyta
> sjálfir. Ég þarf að reyna að „selja það“ að beiðnin sé fljótafgreidd og
> einföld í framkvæmd; Umbreytingaróskir af þessu tagi eru alls ekki að
> hjálpa til.
>
> Málum lokið:
> * Reykjavík, með opnun vefhluta á
> http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3546/5704_view-5809/.
> Setti gögnin á http://osm.is/gogn/ en einnig hægt að ná í þau beint af
> vef þeirra. Netfangið lukr at rvk.is var ekki sett upp þegar ég tilkynnti
> um afritun þeirra af minni hálfu.
> * Fjarðabyggð, með afhendingu gagna. Setti gögnin á http://osm.is/gogn/
>
> Málum næstum lokið:
> * Akureyri sendi inn gagnapakka með loforði um seinni hluta síðar. Setti
> gögnin á http://osm.is/gogn/
> * Skeiða- og Gnúpverjahreppur nefndi að við mættum nota það sem við
> fyndum á vef þeirra. Er samt að athuga stöðuna hjá skipulags- og
> byggingafulltrúaembætti uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps. Að sögn
> þeirra eru þeir nýlega byrjaðir að setja upp sinn eiginn grunn sem er
> fátæklegur þessa stundina.
>
> Ég vona að þið hellið ykkur í gögnin til að setja þau inn. Þó væri betra
> ef þið létuð vita hvað þið eruð að taka svo það séu ekki tveir að taka
> sömu gögnin á sama tíma, sérstaklega í tilfelli gagnanna frá Reykjavík.
>
> - Svavar Kjarrval


-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20121017/f6728b0c/attachment.pgp>


More information about the Talk-is mailing list