[Talk-is] Drög að bréfi til sveitarstjórna
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Thu Sep 6 03:43:15 BST 2012
Hæ.
Takk kærlega fyrir að gefa þér tíma fyrir þessar pælingar. Hef framkvæmt
breytingar á bréfinu í samræmi við pælingarnar þínar og eru þær komnar á
wiki síðuna. Því miður þurfa svona erindi að vera stutt svo ég taldi
best að sleppa my-OSM pælingunni þinni.
Fer á ljósritunarstofuna eftir hádegi á morgun svo að ef þið hafið
athugasemdir varðandi bréfið, komið með þær sem fyrst. Þetta eru 4 bls.
og 75 sveitar- og hreppsstjórnir eintak, sem gera samtals 300 blaðsíður.
Ekki hika við að láta vita ef þið hafið grun um að eitthvað gæti verið
orðað betur, stafsetningarvillur, málfarsvillur, eða eitthvað sem ætti
að vera öðruvísi. Vil ekki þurfa að borga fyrir endurprentun.
ODT skjalið er í viðhengi svo þið getið séð hvernig þetta kemur út.
Setti líka inn bréfið eins og Hafnarfjörður myndi fá það svo þið getið
séð hvernig þetta kemur út.
- Svavar Kjarrval
On 06/09/12 00:26, Pjetur G. Hjaltason wrote:
> Sælir félagar,
>
> Fyrirgefið, og mín er *skömmin,* leit á þráðinn og sá að þú ætlaðir að senda
> bréfið í september, svo ég var ekki að hafa áhyggjur af þessu.
> Krassaði niður drög að svari, og var ekki komin neitt lengra.
> Tíminn líður svo ósköp hratt stundum.
>
> Þarft verk og gott - Sérstaklega ef við fáum viðbrögð.
>
> Eitt sem mér fannst þó vanta í bréfið - Það er að minna á hvurn *hag*
> sveitarfélögin hafa af þessu samstarfi.
>
> Ekki aðeins hvað *þeir* þurfa að tína saman handa okkur (tómt vesen).
>
> Enn og aftur *mín er skömmin,* og svona á ekki að gera kvöldið fyrir prentun.
>
> Og hér á eftir fylgir óskipulagt raus og hugleiðingar um OSM !
>
> ================================================================
>
> *Ferðagrunnur:*
> OSM er nú notað beint og óbeint sem ferða- og staðsetningargrunnur.
>
> Og það eru ekki bara Garmin GPS o.þ.h. leiðsögutæki sem taka við OSM kortum,
> heldur einnig allir snjallsímar (sem allir eiga eða eignast innann fárra ára).
> Ýmis forrit í android (og eflaust i* líka) nota OSM sem grunnkort við
> vegaleiðsögn, eða sem leit að þjónustu af ýmsu tagi.
>
> Ferðamenn, innlendir sem erlendir leita nú í símanum sínum að næstu
> bensínstöð, veitingahúsi, sundlaug, verslun, póstkassa, lækni..! og allt sem
> við skráum yfirleitt.
>
> Gönguleiðir, hjólaleiðir, reiðleiðir, aðgengi, áhugaverðir staðir (tengdir
> Wikipedia)
>
> Og það sem á við um farsíma, á ekki síður við um forrit á vefnum.
> Wikipedia og OSM eru órjúfanlega tengd :-)
> Þegar heim er komið, þá nota vefsíður flickr, iPhoto, yahoo og bing, OSM sem
> hluta af sínum leitar-og staðsetningar-síðum fyrir myndasafnið og ferða-annála
> ((we)blog).
>
> Þannig má lengi telja.
>
> Og til að *koma sjálfum sér á kortið* þá þurfa sveitarstjórnir helst að
> *vera með* í leiknum.
>
> *Samstarf við heimamenn:*
> Best er auðvitað að heimamaður taki sig til og kortleggi og skrái upplýsingar
> um sína heimahaga - Starfsmaður sveitastjórnar, (kennarar? verkefni í skóla
> sveitarfélags? (nýta OSM sem tæki við kennslu í landafræði, náttúrufræði ?))
> Það hljóta að vera nördar eins og ég hér og þar um landið. Gamlir fræðingar,
> sem vantar tilgang með röltinu sínu.
>
> Við getum auðvitað aðstoðað, kennt, eða tekið við upplýsingum.
>
> *GIS:*
> Ég endurtek að fyrst og fremst eru ferðaþjónustutengdar upplýsingar í OSM
> gagnagrunninum - Ekki *nákvæmar* staðsetningar húsa, lagna o.þ.h eins og í
> stærri GIS kerfum.
>
> En ég myndi (verkfræðimenntaður) telja, að sem grófur GIS grunnur, þá sé OSM
> *fyllilega* nægilegt (Nú hoppa auðvitað GIS hreintrúarmenn hæð sína í öllum
> herklæðum).
>
> Fyrst og fremst er um að ræða hvaða tög er hægt að setja og tengja
> landfræði/staðsetningarupplýsingum (í báðar áttir), nákvæmum eða grófum.
>
> Og það eru ekki öll sveitarfélög sem hafa efni á að eignast, reka og viðhalda
> flottum GIS gagnagrunni, en gætu samt haft hag af (ég veit að þetta eru ekki
> nema nokkrar milljónir - en það eru bara ekki allir sem eiga nokkrar
> milljónir).
>
> Til dæmis - Tegund, staðsetning og yfirborð/ástand vega og skilta, lagnaleiðir
> (þar sem hitaveitu/vatns/ljósleiðara/raf-lögnin sem var lögð með jarðýtu-
> ripper - stefnan svo tekin á næsta bæ), rotþrær, brunnar, tengikassar,
> girðingar, skurðir, landnýting og skipulag, eru dæmi um upplýsingar sem
> krefjast ekki millimetra nákvæmni.
> Gagnlegar upplýsingar fyrir skipulag verka og útboð á vegum sveitarfélags.
> Þá gætu íslensk sveitarfélög frekar tekið sig saman um að nota fyrirliggjandi
> OSM kortagrunn og leggja ofan á þær meira prívat upplýsingar, s.s. íbúaskrá,
> landamerki, fasteigna-nr...
>
> Það vantar semsagt svona My-OSM.
>
> *Breytileiki grunns:*
> Þar utan má nefna að landið okkar góða er alltaf að stækka um nokkra
> sentimetra á ári, þannig að eftir 50 ár eru mannvirki komin hálfan til einn
> meter frá upprunalegri staðsetningu :-)
>
> Jarðfræðingur, góður félagi - vildi hafa þetta allt upp á millimeter, hæð og
> halla Heklu og Kötlu, og allt annað eins!
> Ég skil það vel, og er honum alveg sammála í því tilviki (Sem er í raun
> tímaröð hreyfinga).
>
> Hann gat þó ekki sagt mér í fljótu bragði, hvort sumarkofinn minn væri á leið
> austur (Frá Seltjarnarnesi - Sem er GPS-nafli Íslands) - eða vestur, kannski
> bara mitt á milli, eða örlítið á leið norður!
>
> http://osm.org/go/e0c_ewLNv--
>
> ================================================================
>
> Semsagt, muna eftir að *hagnaður* sveitarfélags við að nota OSM er margur.
>
> Kveðja,
> Pjetur
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bei?nir til sveitaf?laga.odt
Type: application/vnd.oasis.opendocument.text
Size: 347693 bytes
Desc: not available
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20120906/a6eeff05/attachment-0001.odt>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Hafnarfjar?arb?jar0.pdf
Type: application/pdf
Size: 222807 bytes
Desc: not available
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20120906/a6eeff05/attachment-0001.pdf>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20120906/a6eeff05/attachment-0001.pgp>
More information about the Talk-is
mailing list