[Talk-is] [Hakkavélin - 579] Re: Verkefni: Skrá öryggismyndavélar í miðborg Reykjavíkur inn á Open Street Map

Svavar Kjarrval svavar at kjarrval.is
Sat Jan 12 17:49:25 GMT 2013


Þá skil ég af hverju það var eitthvað iPhone app að setja inn
öryggismyndavélar í miðbæ Reykjavíkur. Endilega haldið áfram. :)

- Svavar Kjarrval

On 12/01/13 17:27, Björgvin Ragnarsson wrote:
> Ég bæti íslenska OpenStreetMap póstlistanum í CC.
>
> Talk-is: Hakkavélin er íslenskt "hackerspace", félagsrými til virkja
> do-it-yourself menningu.
>
> kv.
>
> Björgvin
>
> 2013/1/12 Gummi A <gakera at gmail.com>:
>> Hérna er frábær síða sem sýnir bara myndavélar og hvað þær eru margar á mjög
>> flottan og aðgengilegan hátt:
>> http://osmcamera.tk/index.php?lat=64.12648781&lon=-21.83790207&zoom=12
>>
>> (Þakkir fær Björgvin fyrir að benda á).
>>
>> Kv, Gummi A
>>
>>
>> 2013/1/12 Hakkavélin <hakkavelin at gmail.com>
>>> Góðan daginn,
>>>
>>> Hér er verkefni sem allir geta tekið þátt í. Markmiðið er að skrá inn á
>>> Open Street Map (OSM) í það minnsta 100 öryggismyndavélar á almenningssvæðum
>>> utandyra á höfuðborgarsvæðinu, þá sérstaklega í miðborg Reykjavíkur, á árinu
>>> 2013.
>>>
>>> Verkefnið skiptist í nokkra þætti.
>>>
>>> 0: Skipulag
>>> Til að virkja sem flesta í skráningu er mikilvægt að ásýnd verkefnisins sé
>>> ekki íþyngjandi. Því er mikilvægt að þeir sem slíkt geta setji fram
>>> leiðbeiningar um hvernig hægt er að framkvæma skráningu. Fyrsta skrefið er
>>> nú þegar tekið, hérna eru leiðbeiningar um hvernig á að nota iPhone til skrá
>>> slíkar upplýsingar inn á OSM:
>>>
>>> http://www.instructables.com/id/Add-POI-locations-to-OSM-using-your-iPhone/?ALLSTEPS
>>> Endilega komið á framfæri sambærilegum skrefum fyrir önnur tæki og tól. Ef
>>> þið viljið setja slíkt fram í nafni hakkavélarinnar, líkt og iPhone
>>> leiðbeiningarnar eru, sendið þá tölvupóst varðandi slíkt á
>>> hakkavelin at gmail.com.
>>>
>>> 1: Skráning
>>> Það er líklega mesta vinnan fólgin í því að skrá niður sjálfar
>>> staðsetningarnar inn á OSM. Því er mikilvægt að sem flestir nýti sér öll
>>> tækifæri til slíks. Því fleiri sem hafa tækifæri til skráningar, því fleiri
>>> skráningar verða framkvæmdar.
>>> Það sem þarf er OSM aðgangur, sem skýrt er í leiðbeiningunum hér fyrir
>>> ofan. Athugið sérstaklega að öryggismyndavélar innandyra eru ekki í umfangi
>>> þessa verkefnis
>>>
>>> 2: Skoðun
>>> Open Street Map hefur þann kost að vera opið og því allir möguleikar opnir
>>> við að skoða það. Framsetning og samantekt á stöðu skráningar mætti
>>> hinsvegar vera betri, augljós leið til að skoða bara skráðar
>>> öryggismyndavélar á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki fundist enn. Ef þið vitið
>>> um auðvelda leið til að skoða bara skráðar öryggismyndavélar á
>>> höfuðborgarsvæðinu megið þið endilega koma þeim á framfæri.
>>>
>>> Allar tillögur er vel þegnar, varðandi öll þessi skref. Ekki hika við að
>>> segja ykkar skoðun á hvernig og hvað er best að skrá.
>>>
>>> Kv,
>>> Hakkavélin.
>>>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20130112/ab56936f/attachment.pgp>


More information about the Talk-is mailing list