[Talk-is] Nýir skilmálar Landmælinga Íslands
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Fri Oct 11 14:06:50 UTC 2013
Tók nokkurn tíma að umbreyta mörgum gögnunum í .osm snið svo ég gat ekki
farið að skoða þetta fyrr en í dag.
Helstu þekjurnar sem við gætum haft áhuga eru:
* fjarskiptamannvirki - nóður.
* mannvirki - línur, held rafmagnslínur.
* mannvirki - punktar, veit samt ekki alveg hvað þeir eiga að standa
fyrir en þeir eru aðallega utan þéttbýlisins.
* mörk, héraðsdómstólar - þau svæði sem hver þeirra nær til.
* mörk, efnahagslögsaga - svæði sem spannar sjóinn umhverfis Íslands.
* mörk, heilbrigðiseftirlit - svæði sem hvert heilbrigðiseftirlit sér um.
* mörk, heilbrigðisumdæmi -
http://www.velferdarraduneyti.is/stofnanir/nr/31633
* mörk, kjördæmi - kjördæmi fyrir alþingiskosningar.
* mörk, landhelgi - 12 mílna landhelgi frá ströndinni, þó fer línan ekki
eins mikið inn í firði og er nú þegar á OSM.
* mörk, lögregluumdæmi - skipting Íslands í umdæmi lögregluembætta.
* mörk, póstnúmer - svæði sem hvert póstnúmer nær yfir.
* mörk, sóttvarnarumdæmi -
http://www.velferdarraduneyti.is/stofnanir/nr/31640
* mörk, sveitarfélög - svæði sem tilheyra hverju sveitarfélagi.
* mörk, umdæmi - sýslumannaumdæmi.
* samgöngur, svæði - flugvellir á Íslandi.
* samgöngur, línur - miðlínur gatna á Íslandi. Galli, það stendur að
Samsýn sé gagnaeigandi lína í mörgum sveitarfélögunum svo leyfismál eru
óviss þessa stundina.
* slökkvilið - svæði slökkviliðsumdæma.
* strandlína - strandlína meginlandsins og eyja sem tilheyra því. Nöfn
fylgja ekki í þessari skrá.
* sveitarfélög - mörk sveitarfélaga frá upphafi 20. aldar. Höfum mestan
áhuga á nýjustu útgáfunni (frá 2012).
* vatnafar, svæði - vötn og ár skilgreind sem svæði.
* vatnafar, línur - ekki alveg viss en grunar að það séu ár og skurðir.
* yfirborð - ekki viss. Gætir verið tegund yfirborðs eins og gras, hraun
og svoleiðis.
* örnefni, svæði - ýmis svæði sem heita eitthvað. Ekki augljóst
hverskonar svæði er um að ræða í hvert skipti.
* örnefni, línur - örnefni sem eru skilgreind með línum, erfitt að setja
inn en gæti verið gagnlegt sem tilvísun.
* örnefni, punktar - örnefni í punktaformi. Virðast vera margir
fjalltindar þarna.
Einnig eru hæðarlínur en skráin er of stór til að ég gæti hlaðið henni
inn í Merkaartor og hef ekki náð að skoða.
- Svavar Kjarrval
On 11/10/13 00:15, Jóhannes Birgir Jensson wrote:
> Hvað nákvæmlega er að fá þarna, vegakerfið, hæðarlínur, ár, og svo
> framvegis?
>
> Massíft að fá þetta inn.
>
> Þann 10.10.2013 15:33, skrifaði Svavar Kjarrval:
>> Hæ.
>>
>> Frá og með deginum í dag er hægt að skrá sig inn á niðurhalssíðu
>> kortagagna hjá Landmælingum Íslands og fá kortagögn stofnunarinnar
>> undir nýjum skilmálum[1]. Þeir eru byggðir á Open Government Licence
>> og það eru fordæmi fyrir því að gögn undir því leyfi hafi verið
>> formlega sett inn á OSM. Við getum því byrjað að undirbúa
>> innleiðingarferlið fyrir þau gögn. Gagnamagnið er það mikið að við
>> ættum (helst) að nota formlega ferlið.
>>
>> Ætla að skoða gögnin nánar og reyna að búa til lista yfir þau helstu.
>> Við getum síðan í framhaldinu ákveðið forgangsröðunina. Einnig finnst
>> mér að stofnfundurinn 24. október næstkomandi ætti að þakka
>> Landmælingum Íslands fyrir gagnaframlagið.
>>
>> [1]
>> http://www.lmi.is/wp-content/uploads/2013/10/Leyfi-fyrir-gjaldfrj%C3%A1ls-g%C3%B6gn-LM%C3%8D-Almennir-skilm%C3%A1lar.pdf
>>
>> Með kveðju,
>> Svavar Kjarrval
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20131011/f127419b/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20131011/f127419b/attachment.pgp>
More information about the Talk-is
mailing list